Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Djúpumýri í Klaksvík
Víkingur Götu
Víkingur Götu
2 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Samtals 3 - 5
Aron Benjaminsen 58'1 - 0Sölvi Vatnhamar 61'2 - 02 - 167' Birnir Snær Ingason2 - 281' Guðmundur Baldvin Nökkvason
Dómari: Karl Koppel (Eistland)

SKÝRSLAN: Sambandsdeildarlest Garðbæinga er ekki komin á endastöð

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var kaflaskiptur. Stjörnumenn byrja vel en í lok fyrri og byrjun seinni tekur Víkingur yfir leikinn. Eftir að heimamenn skora tvö þá tekur Stjarnan yfir leikinn aftur og refsa heimamönnum. Eftir að Stjarnan skoruðu tvö mörkin sín voru þeir samt alltaf líklegri til þess að skora fleiri.

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason

Eitt mark og tveir klobbar. Fyrir utan það þá var hann alltaf hættulegur og heimamenn voru í erfiðleikum með hann. Þegar Stjarnan var ekki að spila vel þá var hann samt góður.

2. Jóhann Árni Gunnarsson

Var oft á tíðum með flottar sendingar fram, var ekki oft að gera neitt rangt. Leikmaðurinn hjá Stjörnunni sem var ekki að stíga neitt feilspor.

Atvikið

Heimamenn byrja seinni hálfleikinn miklu betur en eftir seinna mark heimamanna þá allt í einu hætta þeir að taka þátt og Stjarnan tekur yfir leikinn aftur. Erfitt að segja hvort að þeir hafi orðnir þreyttir eða ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrir Stjörnuna þá er það KR á sunnudaginn. Í sambandsdeildinni er það Ilves frá Finnlandi. Fyrir Víking Götu þá er það EB/Streymur á sunnudaginn 2. ágúst, þannig að þeir fá smá hvíld núna.

Vondur dagur

Jakup Johansen var í miklu veseni og var orðinn mjög pirraður, fyrir utan það gerði hann lítið. Örvar Logi var oft á tíðum í veseni með Aron Benjaminsen sem var að sóla menn hægri vinstri, Stjörnumenn voru orðnir pirraðir á Aron Benjaminsen, sérstaklega Örvar. En Örvar vann stríðið á endanum.

Dómarinn - 4

Aron Benjaminsen var klókur og var oft að fara niður frekar létt. Dómarinn féll oftast í gildruna, svo held ég að Þorri hafi sent til baka á Árna og hann hafi tekið boltann upp, átti að vera aukaspyrna inn í teignum. Svo voru nokkrar skrýtnar ákvarðanir hér og þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.