Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Forkeppni Evrópudeildarinnar
AVIS völlurinn í Laugardal
Vestri
Vestri
0 - 3
Qarabag
Qarabag
Samtals 0 - 6
0 - 15' Jaly Mouaddib0 - 229' Pedro Bicalho0 - 356' Zakaria Sawo
Dómari: Marek Radina (Tékkland)

SKÝRSLAN: Evrópuævintýrið heldur áfram þrátt fyrir tap

Hvað réði úrslitum?

Það vita allir sem fylgdust með þessu einvígi að Qarabag er ógnar sterkt lið fullt af gæðum og góðum leikmönnum. Gæði leikmanna Qarabag eru einfaldlega í allt annari hillu en Vestraliðið. Þrátt fyrir það þá held ég að allir geti verið sammála um að Vestri spiluðu þetta einvígi nokkuð vel miðað við andstæðing og geta borið höfuðið hátt.

Bestu leikmenn

1. Albert Ingi Jóhannsson

Það er öllum sama um hverjir voru góðir í Qarabag svo menn leiksins koma frá Vestra. Hinn 17 ára gamli Albert Ingi spilaði sem miðvörður hjá Vestra í dag. Albert var frábær í kvöld, hann var óhræddur og áttu nokkur lykil blokk.

2. Birkir Eydal og Marínó Steinar

Birkir og Marínó spiluðu báðir á miðju Vestra í kvöld. Birkir var mjög góður og vinnusamur, hann hljóp endalaust og var virkilega sterkur í liði Vestra. Marínó Steinar er ennþá aðeins 16 ára gamall, Marínó spilaði allan leikinn í kvöld og átti mjög þroskaða frammistöðu.

Atvikið

Það var þegar Elmar Atli setti fyrirliðabandið á hendina á Alberti Inga. Albert hlýtur að vera sá yngsti í sögu Íslands að minnsta kosti til að bera fyrirliðaband í Evrópukeppni.

Hvað þýða úrslitin?

Þrátt fyrir tapað einvígi er Evrópuævintýri Vestra ekki lokið. Vestri á a.m.k. tvo leiki eftir í forkeppni Sambandsdeildarinnar, þeir leikir verða gegn RFS frá Lettlandi og fara fram 23 og 30 júlí.

Vondur dagur

Það átti enginn vondan dag í kvöld.

Dómarinn - 8

Tékkarnir voru virkilega flottir í kvöld, ekki erfiður leikur að dæma en það var skýr lína og Marek Radina var með góð tök á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.