Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
LNK Sporta Parks
RFS
RFS
4 - 1
Vestri
Vestri
Stefan Panic 17'1 - 0Janis Ikaunieks 23'2 - 0Rostand Ndjiki 43'3 - 03 - 164' Þórður Gunnar Hafþórsson Darko Lemajic 66'4 - 1
Dómari: Aaron Wyn Jones (Wales)
Leik lokið!
RFS fara með þæginlega stöðu í seinni leikinn
Fínasta leik lokið hér í Lettlandi, RFS voru betra liðið mestan part leiksins en Vestri létu aðeins til sín taka í seinnihálfleik.

Ég þakka fyrir mig, skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
90. mín
+3 mínútum bætt við seinni hálfleikinn
86. mín
RFS eru að ógna fimmta markinu
Hornspyrna fyrir hjá RFS sem Duah hreinsar stutt og boltinn berst aftur inn á teiginn þar sem Strahinja Rakic á skalla sem Marvin ver yfir.

Í næstu hornspyrnu átti RFS góða tilraun að marki og Cafu bjargar á nánast á marklínu.
85. mín
Dauðafæri!
Sylla á frábæran sprett upp kantinn og kemst inn á teiginn. Sylla leggur síðan boltann á Ikaunieks sem er galopinn í teignumen Marvin ver aftur frá honum.
84. mín
Frábær varsla!
RFS senda bolta fyrir markið sem endar á fjær á Ikaunieks sem á fast skot að marki en Marvin er með fljót viðbrögð og ver mjög vel.
79. mín
Vestri í færi hinum meginn!
Birkir Eydal gerir vel að vinna sig upp hægri kantinn og á flotta sendingu fyrir Þórð Gunnar. Þórður á ágæts tilraun að marki sem Jevgenijs Nerugals í markinu grípur.
78. mín
RFS í færi!
Mamadou Sylla gerir vel í pressunni og vinnur boltann af Duah og fær síðan boltann á vinstri kantinum. Sylla sendir boltann fyrir á Janis Ikauniek sem á skot sem Cafu kemst fyrir á síðustu stundu.
Vestri
76. mín
InnBirkir Eydal
ÚtJacob Stensson
Vestri
76. mín
InnAlbert Ingi Jóhannsson
ÚtElmar Atli Garðarsson
RFS
76. mín
InnMamadou Sylla
ÚtMartinš Kigurs
75. mín
Leikurinn hefur verið þokkalega jafn síðustu mínútur. En eins og svo oft áður er rólegt yfir leiknum.
Vestri
68. mín
Gult spjald

Elmar Atli Garðarsson

Brýtur af sér og fær réttilega gult spjald.
RFS
66. mín
Heimamenn snöggir að svara fyrir sig

Darko Lemajic (stoðsending: Janis Ikaunieks)

Janis Ikaunieks kemst í virkilega góða stöðu úti vinstra meginn og sendir frábærar fyrirgjöf beint á kollinn á stóra manninum Darko Lemajic sem klárar vel með sterkum skalla.
Vestri
64. mín
Fyrsta Evrópumarkið komið!

Þórður Gunnar Hafþórsson

Breki Þór tekur langt innkast inn á teiginn, þar er Cafu í baráttunni. Hann kemur boltanum á Edson sem vippar boltanum fyrir á Albin Mörfelt sem á skalla í slánna. Eftir það skoppar boltinn fyrir framan mark RFS, þar henda bæði Þórður Gunnar og Mörfelt á boltann, Þórður er sá sem kemur hausnum í boltann og skorar

Fyrsta evrópumark í sögu Vestra hefur litið dagsins ljós og það við mikla gleði stuðningsmanna í stúkunni.

RFS
62. mín
Inn Gauthier Mankenda
ÚtRostand Ndjiki
RFS
62. mín
InnDarko Lemajic
ÚtLasha Odisharia
61. mín
Flott sókn Vestra endar á fyrstu hornspyrnu liðsins í dag.
Vestri
57. mín
InnBreki Þór Hermannsson
ÚtSergine Modou Fall
Vestri
57. mín
InnGuðmundur Arnar Svavarsson
ÚtGuðmundur Páll Einarsson
Vestri
57. mín
InnÞórður Gunnar Hafþórsson
ÚtMarinó Steinar Hagbarðsson
55. mín
Fyrstu 10 mínútur seinni hálfleiks hafa verið mjög rólegar og frekar bragðdaufar.
51. mín
Vestramenn hafa lyft sér aðeins ofar á völlinn hér í byrjun seinni hálfleiks. Þeir vilja líklega bæta stöðuna fyrir seinni leikinn.
46. mín
Seinni hálfleikur farin af stað!
45. mín
Hálfleikstölfræði
Mynd: UEFA

45. mín
Hálfleikstölur 3-0
Leikurinn var í fínu jafnvægi framan af, en eftir fyrsta mark RFS hefur leikurinn verið algjör einstefna heimamanna.

Tökum okkur 15 mínútna pásu.
45. mín
+2 mínútum bætt við fyrri hálfleikinn
RFS
43. mín
Núna verður þetta erfitt

Rostand Ndjiki

Löng sókn RFS endar á skoti frá vinstri bakverði RFS Dmitrijs Zelenkovs. Skotið er fast og Marvin sér það seint. Marvin ver boltann út í teiginn og Rostrand Ndjiki er fyrstur á hann og skorar í opið markið.

Vestri voru einum færri þegar markið var skorað vegna þess að treyjan hans Gunnars Jónasar var blóðug og finna þurfti nýja.
40. mín
Gunnar Jónas liggur eftir í báráttunni við Stefan Panic og fær aðhlynningu. Gunnar þarf að vera utanvallar í eina mínútu.
38. mín
Rólegt yfir þessu síðustu mínútur. RFS halda vel í boltann og leita af opnunum á þéttum 4-4-2 varnarmúr Vestra.
32. mín
Fyrsti alvöru spilkafli Vestra, þeir héldu boltanum í rúma mínútu og reyndu að finna opnun á vörn RFS en fundu hana ekki.
28. mín
Eftir ágætis byrjun Vestra varnarlega varð staðan fljótt 2-0 fyrir heimamönnum í RFS. Spurning hvernig þessi leikur mun þróast. Munu Vestri færa sig ofan á völlinn og reyna að skora eða ætla þeir að vernda stöðuna og keyra á þetta á heimavelli?
RFS
23. mín
Þetta var auðvelt

Janis Ikaunieks (stoðsending: Strahinja Rakic)

Strahinja Rakic fær boltann á hægri kantinum og sendir hann fyrir pressulaus. Janis Ikaunieks lúrir á fjærstönginni og laumar sér fram fyrir Elmar Atla sem er of lengi að átta sig og Ikaunieks skallar í netið.
RFS
17. mín
RFS brjóta ísinn!

Stefan Panic (stoðsending: Janis Ikaunieks)

Lasha Odisharia sendir boltann fyrir. Boltinn dettur af bakinu á Ikaunieks beint fyrir Panic sem á gott skot með vinstri fæti í vinstra horn.
17. mín
Sláinn!
Lasha Odisharia dansar með boltann á hægri kantinum og sendir góðann bolta fyrir á Aleksandar Filipovic sem skallar í slánna.
15. mín
Flott mæting stuðningsmanna Vestra
Það er flottur hópur Vestrastuðningsmanna mættur til Lettlands og það heyrist nokkuð vel í þeim.
13. mín
Besta staða Vestra hingað til
Gunnar Jónas kemst í góða stöðu á hægri kantinum og sendir boltann fyrir. Vestramenn fylla teiginn vel en boltinn rúllar í gegnum allan pakkann.
9. mín
RFS eru mun meira með boltann fyrstu mínúturnar en gera lítið við hann. Vestramenn verjast ágætlega og reyna að halda boltanum þegar þeir vinna hann.
5. mín
Gunnar Jónas á fyrsta skot Vestra en það fer beint í varnarmann.
4. mín
RFS taka hornspyrnu sem ratar á fjærstöngina þar sem Strahinja Rakic
á skalla framhjá.
1. mín
RFS sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Liðin tvö ganga inn á völlinn með Thunderstruck eftir AC/DC undir og stuðningsmenn RFS taka víkingaklappið.
Fyrir leik
Byrjunarlið Vestra
Daniel Badu, þjálfari Vestra gerir þrjár breytingar á sínu liði frá síðasta leik gegn HK í Lengjudeildinni.

Þeir Guðmundur Arnar Svavarsson, Breki Þór Hermannson og Þórður Gunnar Hafþórsson taka sér sæti á bekknum og þeir Marinó Steinar Hagbarðsson, Guðmundur Páll Einarsson og Emmanuel Duah koma inn í liðið.

Marinó Steinar er fæddur árið 2009 og verður 17 ára í desember.

Fyrir leik
Vestri í Riga
Mynd: Vestri

Mynd: Vestri

Mynd: Vestri

Fyrir leik
Leikmenn til að fylgjast með
RFS er á mikilli siglingu í deildinni heima fyrir og vann fyrsta einvígið sitt í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Liðið hefur tapað einum leik af síðustu 21 svo það er auðvelt að segja að Vestri eru að mæta sjóðandi heitu liði, en hverjir eru helstu leikmenn liðsins?

Janis Ikaunieks er þeirra verðmætasti leikmaður samkvæmt Transfermarkt, Ikaunieks er 31 árs gamall Letti og hans staða sóknarsinnaður miðjumaður. Ikaunieks hefur skorað fimm mörk og lagt upp þrjú í Virsliga á tímabilinu. Ikaunieks er eini leikmaður RFS sem hefur spilað leik á Íslandi en það var með Lettneska landsliðinu í undankeppni EM árið 2016 á Laugardalsvelli. Leikurinn endaði 2-2. Ikaunieks spilaði einnig eitt tímabil með Ara Leifsyni hjá Stromsgodset árið 2020.

Darko Lemajic framherji RFS hefur verið einn sterkasti leikmaður liðsins síðustu tímabil. Lemajic 32 ára Serbi og 198cm á hæð. Styrkileikar Lemajic eru best geymdir í teig andstæðingsins þar sem hann er virkilega hættulegur. Lemajic hefur skorað 11 mörk í Virsliga á tímabilinu og á síðasta tímabili skoraði hann 29 mörk í 31 leik.

Slóveninn Ziga Lipuscek er helsti varnarmaður RFS, Lipuscek er 199cm á hæð og er fyrirliði liðsins. Lipuscek er hættulegur í loftinu og hefur skorað 6 mörk á tímabilinu. Varnatölfræði hans er góð og hann er með að meðaltali 10 unna bolta (e. Balls recovered) í leik samkvæmt Sofascore.
Fyrir leik
Mögulegir andstæðingar sigurliðsins
Sigurvegarinn í einvígi Vestra og RFS mætir annað hvort Jablonec frá Tékklandi eða Varazdin Króatíu.


Fyrir leik
Þriðja liðið kemur frá Wales
Dómari leiksins í dag heitir Aaron Wyn Jones og honum til halds og traust eru Daniel Beckett og Martin Roberts. Fjórði dómari er Bryn Markham-Jones. Aaron Wyn Jones aðeins tvo leiki í undankeppni sambandsdeildarinnar í meistaraflokks fótbolta, það eru einu evrópuleikir hans á meistaraflokkssviði. Hann er ekki reyndur á Evrópusviðinu en í heimalandinu hefur hann dæmt 122 leiki í öllum keppnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hver er andstæðingur Vestra?
RFS á rætur sínar að rekja til unglingaliðs hjá Skonto FC. Árið 2003 yfirgaf hópur Skotno FC og stofnaði nýtt lið sem hét FSK Daugava.

Árið 2005 var félagið FSK Daugava 90 stofnað. Liðið komst í 1. deild Lettlands árið 2007 og árið 2008 breytti félagið nafni sínu í FK Daugava. Sama ár komst liðið upp í efstu deild, en féll aftur niður árið 2009. Frá 2009 til 2011 starfaði félagið undir nafninu Rigas futbola skola.

Árið 2015 endaði Rigas futbola skola í þriðja sæti í 1. deild Lettlands og missti naumlega af sæti í efstu deild. Árið 2016 missti Skonto FC sæti sitt í efstu deild vegna fjárhagsvandræða og Rigas futbola skola fékk sæti þeirra í Virsliga. Þá byrjaði félagið að nota skammstöfunina RFS og sneri aftur í efstu deild Lettlands.

Eftir að RFS fegnu sæti í efstu deild Lettlands hefur liðið gegnið í gegnum hraðan og árangursríkan uppgang. Árið 2019 vann liðið Lettneska bikarinn. Árið 2022 var RFS fyrsta Lettneska liðið til að komast í lokakeppni í Evrópukeppni UEFA þegar það fór í Sambandsdeildina. Tímabilið 2024/25 komst liðið í lokakeppni Evrópudeildarinna, þar vann liðið Ajax frá Hollandi. Einnig gerði jafntefli við Anderlecht frá Belgíu og Galatasaray frá Tyrklandi.

Í dag situr liðið í 1. sæti efstu deildar Lettlands og kom komið áfram í aðra umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir sigur á Glentoran frá Norður-Írlandi.

Á pappír er RFS verra lið en Qarabag, þrátt fyrir það er liðið gott og hefur farið tvisvar sinnum í lokakeppni Evrópudeilda UEFA. Ljóst er að erfitt einvígi er í vændum en líklega meiri líkur á ákjósanlegum úrslitum fyrir Vestra.
Fyrir leik
Vestri ekki unnið leik í rúman mánuð
Það er öruggt að segja að Evrópuævintýri Vestra hafi haft áhrif á spilamennsku liðsins í Lengjudeildinni. Liðið hefur átt virkilega erfitt uppdráttar í leikjunum á milli Evrópuleikja.

Vestri tapaði 5-2 á heimavelli eftir fyrsta leikinn gegn Qarabag og núna á mánudaginn heimsótti liðið HK og tapaði 6-2. Fyrir það gerði liðið 0-0 jafntefli í Grindavík þar sem nokkrir leikmenn voru hvíldir.

Vestri fá frí frá Lengjudeildinni í 15 umferðinni sem er spiluð 23-25 júlí. Vestri mætti Ægi á Kerecis vellinum þann 17. júní, sá leikur var partur af 15. umferðinni og Vestri unnu 3-2.

Mynd: Vestri

Fyrir leik
Evrópuævintýri Vestra
Vestri byrjaði Evrópusögu sína í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar og fengu þar virkilega erfitt verkefni gegn aserska stórveldinu Qarabag. Einvígið fór 6-0 fyrir Qarabag, sem er nokkuð gott miðað við það að Vestri er í Lengjudeild og Qarabag spilaði í lokakeppni Meistaradeildar Evrópu síðasta vetur.

Vestri er þar með úr leik í forkeppni Evrópudeildarinnar, en þeir fá líflínu og detta niður í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Bikarmeistaraleiðin er næst besta Evrópuleið sem íslenskt lið getur fengið og hún felur í sér að minnsta kosti tvö einvígi, fer eftir árangri.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson



Fyrir leik
Sambandsdeildinn heilsar!
Góðan daginn kæra fólk og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik RFS frá Lettlandi og Vestra í annari umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn fer af stað kl 16:30 og ásamt því að vera í textalýsingu er leikurinn sýndur í beinni útsendingu á SÝN Sport.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.