Fotbolti.net
Ívar Björgvinsson
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 0
Ilves
Ilves
Guðmundur Baldvin Nökkvason 84'1 - 0
Dómari: Oscar Johnson (Svíþjóð)
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Stjarnan fer með sigur af hólmi!
1-0 sigur í afar tíðindalitlum leik. Stjarnan ógnaði marki Ilves seinasta korterið en eins marks forskot sanngjörn niðurstaða. Enn allt galopið í einvíginu en sterkt að fara með forskot til Finnlands.
Skýrsla og viðtöl væntanleg. Ég þakka fyrir mig.
96. mín
Nú hlýtur þetta að vera búið
Stjarnan fær aukaspyrnu á miðjum vellinum. Virðast ætla að senda þetta inn á teiginn.
Stjarnan
95. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtGuðmundur Baldvin Nökkvason
94. mín
Um 30 sekúndur voru eftir þegar Guðmundur lagðist niður.
94. mín
Stjarnan á markspyrnu en Guðmundur Baldvin liggur eftir og þarfnast aðhlynningar.
93. mín
Þetta er að verða búið
Finnarnir aðeins að sækja núna en Garðbæingar verjast vel. Gustav sér um að hreinsa boltanum burt.
Stjarnan
91. mín
Gult spjald

Daníel Finns Matthíasson

Steig á Kalle.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma.
88. mín
Birnir Snær með skot!
Úr þröngu færi með vinstri en fær engu að síður horn. Krkalic varði vel.
85. mín
Ilves menn fá færi!
Strax eftir mark Stjörnunnar. Teemu slapp nánast einn í gegn en skaut beint á Árna.
Ilves
84. mín
InnLauri Ala-Myllymäki
Út Matias Rale
Stjarnan
84. mín
ÞAÐ VAR EKKERT AÐ FRÉTTA!

Guðmundur Baldvin Nökkvason

Loksins loksins loksins!
Við fengum loksins mark en þetta hefur verið einn rólegast leikur í manna minnum. Skot frá Guðmundi við teiginn sem ratar niðri í nærhornið.
1-0 Stjarnan!
Stjarnan
82. mín
InnÁrni Vilhjálmsson
ÚtÖrvar Eggertsson
Stjarnan
82. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtBenedikt V. Warén
Ilves
81. mín
Gult spjald

Anton Popovitch

Neglir niður Benedikt og fær réttilega gult spjald.
76. mín
Annað færi!
Úr hornspyrnunni fær Gustav Kjeldsen gott færi á fjærsvæðinu en Krkalic ver mjög vel.
76. mín
Hættulegasta færi leiksins!
Örvar kemur aftur með góðan bolta milli markvarðar og varnar sem Birnir á fjærsvæðinu nær ekki til og Finnar hreinsa í horn.
73. mín
Örvar Eggertsson kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Krkalic kýlir burt. Hættulegt svæði en enginn svört treyja inni á teignum.
Ilves
70. mín
InnVille Kumpu
ÚtSauli Väisänen
Ilves
70. mín
InnGoudousse Bamba
Út Oliver Pettersson
67. mín
Faris Krkalic að verða sér til skammar
Reynir að fiska Emil út af en sem betur fer fellur dómarinn ekki fyrir þessu. Hornspyrna sem hann greip en Emil kom á ferðinni og virtist varla snerta Faris sem lá í tvær mínútur áður en hann loks stendur upp.

Áfram með leikinn.
Stjarnan
67. mín
InnBjarki Hauksson
ÚtÞorri Mar Þórisson
Stjarnan
64. mín
Þessi Svíi er giftur reglubókinni

Emil Atlason

Elskar að flauta í sína flautu og spjaldar Emil fyrir að rétt fara utan í miðjumann Ilves í pressunni.
63. mín
Besta færi Stjörnunnar!
Kom eftir síðari hornspyrnuna. Smá klafs á teignum sem endar með því að Örvar Eggerts fær frían skalla í miðjum teignum. Nær litlum krafti og boltinn beint á Krkalic.
63. mín
Stjarnan fær horn
Hafa fengið tvær hornspyrnur með skömmu millibili.
60. mín
Finnarnir fá færi!
Góð sending inn á teiginn sem Riski setur yfir. Hættulegt færi sem Stjarnan fékk á sig þarna.
Ilves
57. mín
InnRoope Riski
Út Jesse Kilo
Ilves
57. mín
InnOskari Multala
Út Joona Veteli
56. mín
frábær varnarleikur hjá Gustav
teemu slapp einn í gegn en Gustav náði honum og vann boltann af honum.
55. mín
Svipmyndir úr fyrri hálfleiknum
Á meðan liðin neita að skemmta okkur deili ég nokkrum myndum úr fyrri hálfleiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

52. mín
Spyrnan kemur á teiginn...
Þorri nær skalla en boltinn fer hátt yfir markið.
51. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu
Dæmd hendi og Jóhann gerir sig kláran í að koma með fyrirgjöf.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Þetta var dauft
Fyrri hálfleik er lokið!

Við vonum eftir meiri skemmtun í seinni hálfleik og mörkum frá Stjörnunni. Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Skot frá gestunum
Kalle Wallius snýr hann í fjærhornið og boltinn fer í Sindra en markspyrna dæmd.
42. mín
Styttist í hálfleikinn
Þetta hefur verið virkilega rólegur fyrri hálfleikur. Nánast að maður hlakki til hálfleikspásunnar.
37. mín
Ilves fær hraðaupphlaup
Léleg sending til baka frá Birni og gestirnir þjóta upp völlinn en að lokum handsamar Árni Snær knöttinn.
33. mín
Fyrsta skot Stjörnunnar!
Benedikt Warén með boltann við teiginn og á kröftugt skot sem fer beint á markið.
32. mín
Svíinn aðeins of mikið að flauta á smábrot. Leikurinn fær ekki nægilega mikið að fá að fljóta.
31. mín
Léleg var hún
Spyrnan hátt yfir markið.
30. mín
Benedikt Waren sækir aukaspyrnu!
Tekinn niður á hættulegum stað. Emil Atla gerir sig líklegan til þess að taka spyrnuna.
28. mín
Gestirnir fá færi
Teemu Hytönen snýr Örvar Loga af sér og er við teigslínuna en skýtur yfir.
26. mín
Stjarnan fær horn
Vel spilað upp hægri kantinn og Örvar Eggerts krækir í horn.
20. mín
Emil með skalla!
Í góðu færi en brýtur af sér.
18. mín
Afar rólegt og Stjarnan enn ekki komist í færi. Gestirnir svo sem ekki heldur.
10. mín
Stjarnan fær horn
Frábær fyrirgjöf frá Jóhanni Árna sem Finnarnir setja aftur fyrir.
9. mín
Spyrnan fer aftur yfir allan pakkann og aftur fyrir.
8. mín
Gustav Kjeldsen brýtur af sér
Á nokkuð hættulegum stað, líklega koma Finnarnir með fyrirgjöf.
6. mín
Bæði lið skiptast á að halda í boltann.
2. mín
Gestirnir fá fyrstu hornspyrnuna
Spyrnan yfir allan pakkann og aftur fyrir.
1. mín
Þrír búnir að renna á rassinn eftir 40 sekúndur.
1. mín
Loksins!
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin bíða
Klukkan er 18:58 og allt klárt en þá þarf að bíða þar til klukkan slær 19:00 og ekki sekúndu fyrr.
Fyrir leik
Liðin ganga á völlinn
Stjarnan í sínum svörtu og gylltu Evrópubúningum en Finnarnir virðast hafa fengið lánaða Norwich búninga þar sem þeir leika í gulum treyjum, grænum stuttbuxum og gulum sokkum.
Fyrir leik
Liðin farin í búningsklefana
Upphitun lokið og það styttist í að veislan hefjist. Stúkan frekar tómleg en 15 mínútur eru í upphafsflautið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Jón Þór gerir eina breytingu frá liði sína sem byrjaði útileikinn gegn Víkingi Götu. Í millitíðinni var stórt tap gegn KR á sunnudaginn þar sem Jón Þór hvíldi marga lykilmenn.
Eina breytingin er sú að Guðmundur Kristjánsson byrjar á bekknum en inn í hans stað kemur Sindri Þór.
Fyrir leik
Mögulegir andstæðingar Stjörnunnar
Takist Stjörnunni að sigra Ilves og komast í 3. umferðina mætir liðið sigurliðinu úr einvígi milli HNK Rijeka frá Króatíu, eða Derry City FC frá Írlandi. Fyrirfram er Rijeka talið sigurstranglegra en fyrst þurfa Stjörnumenn að byrja á því að sigra þetta einvígi.
Fyrir leik
Ekki er notast við VAR
VAR-tæknin kom Víkingum svo sannarlega til bjargar á þriðjudaginn gegn Hapoel í undankeppni Meistaradeildarinnar en ekki er boðið upp á þá þjónustu í dag. VAR kemur ekki inn í undankeppni Sambandsdeildarinnar fyrr en í 3. umferðinni, s.s. þeirri næstu.

Svíarnir þurfa því að vera með allt á hreinu hér í dag.
Fyrir leik
Dómarateymið
Þriðja liðið er ekki langt undan en teymið er sænskt svo þessi leikur er svo sannarlega Norðurlandaslagur! Aðaldómari leiksins heitir Oscar Johnson en þetta er hans annar leikur sem aðaldómari í undankeppni Sambandsdeildarinnar.
Mynd: EPA

Fyrir leik
Andstæðingar Stjörnunnar
Liðið sem Stjarnan mætir heitir Ilves og kemur frá Finnlandi. Á síðasta tímabili endaði liðið í 3. sæti finnsku deildarinnar og tryggði sér þannig þátttökurétt í 1. umferðinni. Þar sló Ilves út FC Differange 03 frá Lúxemborg. Núna er Ilves í 9. sæti finnsku deildarinnar og skipti nýverið um þjálfara.
Það má því segja að staða félagsins sé ekki svo ólík stöðunni hjá Stjörnunni en þetta einvígi getur farið í hvaða átt sem er.

Fyrir leik
Leið Stjörnunnar hingað
Stjarnan endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar í fyrra og vann sér þannig inn þátttökurétt í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrir tveimur vikum síðan tók liðið á móti færeyska liðinu Víkingur Götu, sem enduðu í 4. sæti í færeysku deildinni síðasta sumar. Stjarnan sigraði leikinn 3-1 eftir að hafa lent undir og fóru síðan til Færeyja í seinustu viku þar sem þeir náðu í 2-2 jafntefli eftir að hafa lent 2-0 undir í upphafi síðari hálfleiks.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Eru Finnarnir með besta merki fótboltans?
Fyrir leik
Stærsti leikur Garðbæinga í langan tíma
Það er aldeilis stór leikur fram undan en þetta er fyrri leikur liðanna í einvíginu og því ansi mikilvægt að ná í góð úrslit hér í kvöld. Sigur í einvíginu þýðir það að liðið sé komið í 3. umferð undankeppninnar og einungis tvö einvígi til viðbótar á milli þess og deildarkeppni Sambandsdeildarinnar!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fimmtudagskvöld í Garðabænum!
Sælir kæru lesendur Fótbolta.net og verið hjartanlega velkomnir í beina textalýsingu fyrir leik Stjörnunnar og Ilves í 2. umferð í undankeppni Sambandsdeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.