SKÝRSLAN: Sólskin og Evrópusigur á Hlíðarenda!
Hvað réði úrslitum?
Þetta var sigur sem byggðist á liðsheild og seiglu! Bosnísku gestirnir voru betri meiri hlutann að leiknum og ógnuðu margoft í leiknum og stundum alveg ótrúlegt að þeir náðu ekki meira úr þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Frederik Schram
Þvílíkur leikur hjá drengnum! Náði held ég 10 vörslum í þessum leik og margar af þessum vörslum voru svo crucial fyrir Val! Ég held að ef hann hefði ekki verið milli stangann þá hefði Valur getað tapað.
2. Tryggvi Hrafn Haraldsson
Var frábær í þessum leik og skoraði frábært mark! Hefði hæglega getað sett hann einu sinni enn í mark gestanna!
Atvikið
Þegar Tryggvi náði knettinum í markið! Stúkan algjörlega trylltist af fögnuði og Valsarar í blaðamannastúkunni fögnuðu innilega, leikgreinanda Zrinjski ábyggilega til mikillar óánægju!
Hvað þýða úrslitin?
Valur leiðir í þessu einvígi 1-0, en þeim býður erfiður útileikur eftir viku þegar þeir mæta Zrinjski á þeirra heimavelli í Mostar-borg í Hersegovínu!
Vondur dagur
Það átti enginn vondan dag fannst mér. Held að Zrinjski-menn séu brjálaðir eftir þennan leik miðað við úrslit sem þeir hafa náð í Sambandsdeildinni, eins og jafnteflið gegn sigurvegurunum Crystal Palace í vetur. En vissulega er þetta fyrsti keppnisleikur þeirra á tímabilinu og langt ferðalag frá B/H.
Dómarinn - 7
Belarússinn bara flottur í þessum leik, fannst gula spjaldið á Shkelzen frekar soft að mínu mati en annars bara vel gert hjá Amine



