Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
Leiknisvöllur
Leiknir R.
Leiknir R.
1 - 5
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 11' Örn Bragi Hinriksson0 - 241' Aron Snær Ingason0 - 352' Kári Kristjánsson0 - 455' Rúrik Gunnarsson (sjm)0 - 571' Aron Snær IngasonAdam Örn Arnarson 92'1 - 5
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Leiknir fær falleinkunn

Hvað réði úrslitum?

Leiknir fær góðan skell í byrjun leiks, fyrri hálfleikurinn var ágætur, þeir voru alveg að ógna og hefðu átt að skora úr einu dauðafæri. Seinni var ekki góður og Þróttur tók alveg yfir leikinn, Leiknir ógnaði ekki aftur fyrr en Þróttur var búin að skora sitt fimmta mark.

Bestu leikmenn

1. Örn Bragi Hinriksson

Skoraði fyrsta markið og lagði upp sjálfsmarkið, í markinu hjá Kára þá gefur hann sendinguna á Adam sem neglir svo í slána. Hann var góður á kantinum og Leiknismenn áttu erfitt með hann.

2. Aron Snær Ingason

Mörkin hans voru gjafir frá Leikni, sérstaklega seinna markið. Var samt alltaf ógnandi.

Atvikið

Birnir Breki fer niður og þarf að fara út af snemma í seinni hálfleik, þá kemur 5 mínútna kafli þar sem Leiknir eru tíu manns. Þá skorar Þróttur tvö mörk og þá hættir Leiknir að taka þátt og Þróttur tekur yfir leikinn eftir það og voru alltaf líklegri til þess að skora fleiri.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur setur pressu á topp lið Aftureldingar og önnur lið sem eru nálægt, núna er Þróttur í 2. sæti með 30 stig. Leiknir er í 8.sæti með 19 stig.

Vondur dagur

Allt liðið hjá Leikni var ekki að spila vel, erfitt að velja einn leikmann þegar allt liðið var ekki gott. Mörkin sem Þróttur skoraði voru of einföld og það er ekki gott hvernig þeir náðu að komast í gegnum allt liðið. Skólabókardæmi um hvernig á ekki að verja.

Dómarinn - 7

Ekkert hægt að kvarta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.