Fyrir leik
Síðustu þrír leikir fóru allir 1-1
Fyrir leik
Þjálfarar og leikmenn spá 1. sæti en þeir eru í 4. sæti
Spáin sem Fotbolti.net birti fyrir Lengjudeildina var Þróttur sett í fyrsta sætið. Fotbolti.net fékk alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið, en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði
Þróttur var spáð 1. sætinu en núna sitja þeir í 4. sæti og fjórum stigum frá 1. sætinu. Á tímabilinu hefur Þróttur unnið átta leiki, þrjú jafntefli og þrjú töp.

Í síðustu fjórum leikjum hefur Þróttur spilað gegn Vestra, Njarðvík, ÍR og Völsung. Þróttur fékk bara 5 stig af 12 mögulegum. Það má segja ef Þróttur vill ekki færast lengra frá toppsætinu þá er þetta mjög mikilvægur leikur fyrir þá. Næstu tveir leikir eftir Leikni er gegn Aftureldingu á heimavelli og Gróttu á útivelli, Þróttur tapaði báðum leikjum fyrr á tímabilinu.

Nýbúnir að missa eitt af betri leikmönnum liðsins til Vals
Leiknir er í 9. sæti með 19 stig, fimm sigrar, 4 jafntefli og 5 töp. Ef allt gengur vel og aðrar niðurstöður falla með Leiknismönnum geta þeir komið sér alla leið í 6. sætið. Þrátt fyrir að vera neðarlega í töflunni þá er liðið samt ekki langt frá umspilssæti og ekkert er útilokað.

Eitt af betri leikmönnum Leiknis, Shkelzen Veseli er farinn til Vals og byrjaði strax fyrir Val gegn Fram, þegar Valur tapaði 3-2. Shkelzen Veseli var nr. 10 hjá Leikni. Shkelzen er 22 ára miðjumaður sem er uppalinn í Leikni. Hann hefur skorað fjögur mörk á tímabilinu fyrir Leikni. Í fyrra skoraði hann sex mörk í deild og bikar.
Samningur Shkelzens var að renna út eftir tímabilið en Leiknir og Valur komust að samkomulagi um að hann myndi fara strax til Vals í sumarglugganum.

Lengjudeildin heilsar!
Það er komið að 15. umferð lengudeildarinnar þar sem Leiknir fær Þrótt í heimsókn. Leikurinn byrjar kl 19:15.

Á síðasta tímabili fóru báðir leikir liðanna 1-1, alveg eins og leikurinn sem var fyrr á tímabilinu. En á undirbúningstímabilinu vann Þróttur Leikni 4-1.