Arsenal gerir nýtt tilboð í Bruno - Tchouameni til Man Utd? - Kone, Baleba og Adams á blaði á Old Trafford
Besta karla
Víkingur R.
LL 5
1
Keflavík
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 3
2
HK
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
0
Grindavík
Lengjudeild kvenna
Haukar
LL 0
2
HK
Mjólkurbikar kvenna
Þróttur R.
LL 1
0
ÍBV
Haukar
0
2
HK
0-1 Valgerður Lilja Arnarsdóttir '78
0-2 Henríetta Ágústsdóttir '81
24.07.2026  -  19:15
BIRTU völlurinn
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Stillt og fínt veður
Dómari: Jovan Subic
Maður leiksins: Valgerður Lilja Arnarsdóttir
Byrjunarlið:
1. Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir (m)
4. Anna Rut Ingadóttir
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('71)
9. Ísold Hallfríðar Þórisdóttir ('63)
10. Berglind Þrastardóttir
11. Halla Þórdís Svansdóttir
13. Kristín Fjóla Sigþórsdóttir (f) ('85)
16. Maggý Lárentsínusdóttir
20. Ragnheiður Tinna Hjaltalín ('71)
22. Elma Dís Ólafsdóttir ('85)
77. Sara Björk Gunnarsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
6. Bryndís Halla Gunnarsdóttir ('85)
7. Rakel Lilja Hjaltadóttir ('71)
14. Ásthildur Lilja Atladóttir ('71)
15. Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir ('85)
21. Hekla Björk Sigþórsdóttir
25. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('63)
30. Sandra Dís Hlynsdóttir
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Hörður Bjarnar Hallmarsson (Þ)
Svanberg Óskarsson (AÞ)
Guðrún Halla Guðnadóttir (Sjúkraþj.)
Sigmundur Einar Jónsson (MÞ)

Gul spjöld:
Berglind Þrastardóttir ('25)
Anna Rut Ingadóttir ('77)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Snæbjört Pálsdóttir
Skýrslan: HK stal senunni í endurkomuleik Söru Bjarkar
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mjög kaflaskiptur leikur þar sem liðin skiptust á að hafa yfirhöndina. Það sem réði þó úrslitum í kvöld, var hreinlega baráttan og seiglan í HK konum í lok leiks þegar þær brutu loksins ísinn með marki fyrirliðans Valgerðar Lilju og svo rak Henríetta síðasta naglann í kistuna með frábæru marki stuttu síðar.
Bestu leikmenn
1. Valgerður Lilja Arnarsdóttir
Að öðrum ólöstuðum þá fær fyrirliðinn þennan titil í kvöld, barðist eins og ljón inn á vellinum og fór fyrir sínum konum í baráttunni. Braut síðan ísinn fyrir HK og setti fyrsta mark leiksinsþegar hún fylgdi eftir skalla frá Henríettu. Ekki á hverjum degi sem hún setur mörk!
2. Henríetta Ágústsdóttir
Átti frábæran leik í kvöld, kom sér í góðar stöður og var sí ógnandi. Átti skallann sem skóp fyrsta markið og setti svo sjálf frábært mark af löngu færi yfir Viktoríu í markinu. Ragnhildur Sóley Jónasdóttir og Ísabel Rós Ragnarsdóttir áttu sömuleiðis góðan leik fyrir HK
Atvikið
Seinna mark HK sem Henríetta skoraði þremur mínútum á eftir fyrra markinu undir lok leiksins, gjörsamlega rak síðasta naglann í kistu Hauka. Það var enn von þegar Haukakonur voru bara 0-1 undir en það er erfitt að koma til baka úr 0-2 stöðu og hvað þá þegar lítið er eftir af leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að HK tekur stigin þrjú og stekkur þar með úr 7. sætinu og upp yfir Hauka í 3. sætið. Bæði lið eru þá með 17 stig, HK með betri markatölu og því í 3. sæti en Haukarnir eiga þó leik til góða.
Vondur dagur
Það var nú enginn sem átti slæman dag en það getur ekki hafa verið gaman fyrir Söru Björk að tapa 0-2 í stóra endurkomu leiknum. Hún má þó eiga það að hún er í hörkuformi! Þær þurfa bara að slípa sig aðeins til og þá er voðin vís fyrir önnur lið deildarinnar.
Dómarinn - 6
Fínasti dagur bara hjá dómarateyminu í dag, leyfði leiknum að fljóta vel og sýndist þeir hafa dæmt hárrétt þegar boltinn fór í höndina á Völu í aðdraganda marksins sem Haukar skoruðu í fyrri hálfleik en var dæmt af í kjölfarið.
Byrjunarlið:
1. Kaylie Erin Bierman (m)
3. Anja Ísis Brown
5. Valgerður Lilja Arnarsdóttir (f)
6. Henríetta Ágústsdóttir ('89)
14. Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('78)
16. Cally Queen Togiai
17. Alma Mathiesen ('42)
19. Ragnhildur Sóley Jónasdóttir
22. Kristjana Ása Þórðardóttir
29. Thelma Sól Óðinsdóttir
33. Klara Mist Karlsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
32. Rakel Sara Ægisdóttir (m)
8. Eva María Ívarsdóttir
9. Viðja Ævarsdóttir
21. Þorbjörg Rún Emilsdóttir ('78)
23. Ástrós Birna Hólmsteinsdóttir ('89)
27. Eydís Helgadóttir ('42)
99. Freyja Dís Ingibersdóttir
- Meðalaldur 17 ár

Liðsstjórn:
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Pálmi Þór Jónasson (AÞ)
Guðný Björk Halldórsdóttir (Sjúkraþj.)
Birkir Örn Arnarsson (MÞ)

Gul spjöld:
Henríetta Ágústsdóttir ('58)

Rauð spjöld: