Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Völsungur
Völsungur
0 - 0
Grindavík
Grindavík
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Fyrir leik
Viðtal við Borja Iglesias
Þjálfari Völsungs er í afar áhugaverðu viðtali á fotbolti.net í dag. Viðtalið má lesa hér: Til Húsavíkur eftir að hafa lært af einum áhrifamesta þjálfara heims
Fyrir leik
Gengi liðana
Eftir fjóra leiki án taps hafa heimamenn tapað síðustu tveim leikjum. Töpuðu afar illa gegn Aftureldingu í síðasta heimaleik og því fylgdi svo 1-0 tap gegn Þrótti í Laugardal. Völsungur er í 11. sæti deildarinnar með 8 stig.

Grindvíkingar eru á ágætis skriði þannig séð. Hafa einungis tapað einum af síðustu 6 leikjum en hafa þó líka bara unnið einn af þeim leikjum. Grindavík er í 9. sæti deildarinnar með 14 stig.
Fyrir leik
Mærudagar
Ég er nokkuð viss um að þetta sé rétt en mér vitrari menn segja mér að Völsungur hafi ekki tapað leik á Mærudögum síðan hörmungarárið 2013. Völsungur er alltaf Völsungur á Mærudögum.
Ég get hins vegar sagt með vissu að Völsungur vann Mærudagaleikinn í fyrra með glæsibrag, 4-0 gegn Selfossi þar sem að bárðdælingurinn Jakob Héðinn Róbertsson, núverandi leikmaður KA, gerði þrennu.
Fyrir leik
Mærudagar
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík, á hinum einu sönnu Mærudögum, þar sem að Völsungur og Grindavík mætast í Lengjudeild karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.