Leik lokið!
Og þannig fór það! Jafntefli í Laugardal, viðtöl og skýrsla koma á eftir
92. mín
Björg gerir frábærlega í sókn Þróttara kemst framhjá Víkingi en setur hann beint á Telmu sem tekur hann auðveldlega upp
91. mín
Dómarinn bætir þremur við
89. mín
Gult spjald
Jasmín Erla Ingadóttir
Skil ekki alveg rangstæðudóminn þarna á Jasmínu. Hún fær gult fyrir kjaft við dómarann88. mín
Arna Ísold fær frábæran bolta og manni finnst hún eigi að gera betur þarna! Þrumar honum yfir
87. mín
InnKristrún Ýr Holm
ÚtMaría Eva Eyjólfsdóttir
86. mín
Mollee með góða vörslu, ver hann eftir flotta sókn hjá Víkingum. Jasmín með frábæran bolta yfir á Jöhnnu Elín og Mollee ver hann frábærlega
81. mín
Horn fyrir Víkinga
Boltinn fer inn í teig en fer af varnarmanni Þróttar og í annað horn.
Þróttarar á að skalla þennan burt
Þróttarar á að skalla þennan burt
79. mín
Víkingar brjálaðir út í dómarann og kalla heimadóm! Jasmín ein í gegn og nær að pota boltanum framhjá Mollee en flautuð rangstæð!
76. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtÁlfhildur Rósa Kjartansdóttir
76. mín
InnSelma Dögg Björgvinsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
71. mín
VÍKINGAR JAFNA
Dagný Rún Pétursdóttir
Mikið klafs í þessu marki hjá Dagnýju, boltinn endar á henni eftir að Mollee ver frábærlega, hún slúttar vel og setur hann í fjærhornið68. mín
InnÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
ÚtÞórhildur Þórhallsdóttir
66. mín
Lítið að gerast seinustu mínútur og lítið af færum. Bríet Fjóla er hins vegar að gera sig klára til að koma inná
Auðvitað þegar ég segi þetta þá nær Þórdís Nanna góðu skoti sem Telma ver í hornspyrnu
Auðvitað þegar ég segi þetta þá nær Þórdís Nanna góðu skoti sem Telma ver í hornspyrnu
59. mín
Gott færi í horninu, boltinn endar á kollinum á Kaylu sýndist mér eftir fyrirgjöf eftir hornið, en boltinn fer yfir
58. mín
Slök spyrna hjá Sæunni. Varnarmaður hreinsar burt en hættan ekki öll úti! Smá darraðardans í teignum og boltinn fer af varnarmanni í horn
57. mín
Gult spjald
Emma Steinsen Jónsdóttir
Brýtur á Þórdísi rétt hliðina á teignum vinstra megin55. mín
Þróttarar næla sér í horn
Góð sókn endar í horni, boltinn endaði hjá Mist sýndist mér á vinstri væng. Reyndi fyrirgjöfina en fór í varnarmann og út.
Sæunn með flottan bolta út en Telma kýlir þessum frá í innkast
Sæunn með flottan bolta út en Telma kýlir þessum frá í innkast
53. mín
Þróttarar hættulegar, Katie nær flottum bolta á Kaylu á vinstri vænginn. Sendir síðan á Þórdísi en hún hittir boltann illa og sparkar honum útaf í markspyrnu
47. mín
Horn fyrir Víkinga
Spila stutt, koma svo háum bolta í teiginn sem Mollee grípur auðveldlega
46. mín
Seinni farinn af stað
Sýnist hvorug lið hafa gert breytingar
45. mín
+1
Brynjar bætir engu við og flautar til hálfleiks.
44. mín
Lítið að gerast seinustu 5 mínúturnar, Víkingar búnar að vera meira með boltann um þessar mundir finnst mér
37. mín
Víkingar komast í gegn, Jóhanna Elín fær boltann og reynir fyrirgjöfina en Mollee stekkur kvenna hæst og grípur þennan auðveldlega
31. mín
Kayla ætlaði að setja hann aftur. Katie vinnur boltann við miðjuna og sendir boltann á Kaylu. Kayla nær honum milli lappa varnarmanns en boltinn fer útaf
26. mín
Helvíti líkt skallanum hjá Jared Borgetti á HM 2002, þeir sem vita vita
VÁVÁVÁVÁVÁ
Kayla Marie Rollins (stoðsending: Jelena Tinna Kujundzic )
Þvílíkur skalli!!! Jelena Tinna með geggjaða fyrirgjöf rétt hjá miðjunni og Kayla með þvílík tilþrif í þessum skalla! Þróttarar leiða!Helvíti líkt skallanum hjá Jared Borgetti á HM 2002, þeir sem vita vita
24. mín
Sæunn tekur aukaspyrnu fyrir Þrótt, boltinn endar á kollinum á Kaylu sýndist mér, en hann fera fa varnarmanni og út í horn.
Víkingar hreinsa þetta burt, en boltinn endar að lokum við fæturna á Þórdísi Nönnu sem tekur volleyið og sendir hann útaf í markspyrnu
Víkingar hreinsa þetta burt, en boltinn endar að lokum við fæturna á Þórdísi Nönnu sem tekur volleyið og sendir hann útaf í markspyrnu
21. mín
Jóhanna Elín fær boltann á vinstri vængnum, reynir lága fyrirgjöf inn í teig en Mollee gerir frábærelga vel og dýfur sér í þennan bolta
16. mín
Katie Cousins líkleg þarna, hleypur upp völlinn, leikur á Víking og tekur skotið sem fer af varnarmanni.
15. mín
Stuttu eftir kemst Víkingur í aðra sókn, sýnist það vera Kristín Erla með skotið aðeins utan úr teig, en boltinn fer rétt yfir og ekki mikið að trufla Mollee
14. mín
Kristín Erla fær boltann á vinstri kantinn, reynir sendinguna inn í teig, Þróttarar reyna hreinsa en boltinn endar beint á Örnu Ísold, en hún tekur að lokum skotið og hann fer útaf
12. mín
Hvernig skorar Þróttur ekki þarna!
Katie kemur boltanum yfir á vinstri kant til Þórdísar, hún leikur á einn varnarmann og kemur með fyrirgjöfina inn, en skotið afleitt og fer langt útaf!
11. mín
Fyrsta horn leiksins fyrir Þróttara
Mikill darraðardans í teignum en boltinn endar að lokum í markspyrnu fyrir Víkinga
10. mín
Varnarleikur ekki upp á marga fiska hjá Kötturum. Missa hann í teignum og Víkingar nálægt því að skora, Bergdís með lága fyrirgjöf en Þróttur hreinsar
9. mín
Held það séu svei mér þá fleiri Víkingar í stúkuni frekar en Þróttarar, það heyrist allavega meira í Fossvoginum
7. mín
Frábært skot hjá Bergdísi! Víkingar fá boltann og boltanum komið á Bergdísi sem er langt fyrir utan teig, hún reynir skotið og Mollee ver í horn. Víkingar ná hins vegar ekki að nýta sér þetta
5. mín
Lítið búið að gerast fyrstu mínúturnar.
1. mín
Það eru Víkingar sem sparka þessu af stað! Góða skemmtun!
Fyrir leik
Liðin eru að labba út á völl
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir
Þessi lið hafa mæst 18 sinnum í gegnum tíðina, en Þróttur hefur sigrað 9, Víkingur 4 og liðin skilið jöfn 5 sinnum.
Fyrsti leikur milli þessara liða sem KSÍ sýnir var 2002, en Þróttur vann þar 1-2 sigur. Seinasti leikur fór einnig Þrótturum í vil, en hann fór 1-0 í bikarnum.
Stærsti sigur Þróttar var 6-3 sigur í Bestu Deildinni í fyrra , en stærsti sigur Víkinga var 0-6 sigur í Reykjavíkurmótinu frækna nú í vetur.

Byrjunarliðsfréttir
Jóhann Kristinn gerir þrjár breytingar á Þróttaraliðinu í dag. Inn kemur Álfhildur Rósa aftur og fær fyrirliðabandið. Katie Cousins byrjar sinn fyrsta deildarleik með Þrótti síðan í fyrra. Inn kemur líka María Eva Eyjólfsdóttir.
Eiður Guðna gerir fjórar breytingar á Víkingsliðinu sínu. Telma Ívarsdóttir byrjar sinn fyrsta deildarleik fyrir Víking. Dagný Rún er komin aftur inn í byrjunarliðið. Þórhildur Þórhallsdóttir og Bergþóra Sól eru einnig komnar inn.

Spá fyrir leik
Alma Mathiesen, leikmaður HK í Lengjudeildinni, spáði fyrir 13. umferð í Lengjudeildinni og hafði þetta að segja um leikinn í kvöld.
Þróttur R. 1 - 2 Víkingur R. (19:15 í kvöld)
Víkingar koma gíraðar inn í leikinn staðráðnar í að koma sér upp úr fallsæti. Jafn leikur á milli tveggja góðra liða. Kristín Erla skorar sigurmark Víkings með skalla á lokamínútunum.

Víkingur
Víkingur hefur einnig átt erfitt uppdráttar og hefur ekki sigrað leik í rúma tvo mánuði.
Víkingur situr í neðsta sæti deildarinnar og eru með eitt jafntefli úr seinustu fimm og 4 tapleiki.
Víkingur hefur misst nokkra leikmenn í glugganum, þ.á.m. Birtu Birgisdóttir í Grindavík/Njarðvík og Freyju Stefánsdóttur í Djurgårdens í Svíðþjóð, en fengu alvöru liðsstyrk í markið í Telmu Ívarsdóttur, en hún kom frá Rangers í Skotlandi.

Þróttur
Þróttarar hafa átt það erfitt seinustu mánuði, en liðið hefur ekki unnið deildarleik síðan 29. maí. Þær töpuuðu fjórum leikjum í röð í deildinni en það gefur þeim smá kikk að þær séu komnar í úrslit Mjólkurbikarsins eftir að hafa slegið ÍBV út 1-0 24. júlí seinastliðinn.
Þróttur situr eins og er í 6. sæti en hafa gert eitt jafntefli í esinustu fimm og tapað rest.
Þær hafa fengið liðsstyrkingar í Katie Cousins og Bríeti Fjólu, en þær spiluðu sínar fyrstu mínútur í Þróttaratreyju þetta tímabilið í seinasta leik gegn Fram.

Dómarateymið
Dómari leiksins er Brynjar Þór Elvarsson, en honum til halds og trausts eru Óliver Thanh Tung Vú og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem. Fjórði dómari er Ásmundur Þór Sveinsson og eftirlitsmaður er Kristján Halldórsdóttir.

Fyrir leik
Laugardalsleikur!
Gott kvöld kæru lesendur og veirð hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá AVIS-vellinum, þar sem Þróttur og Víkingur etja kappi í 13. umferð Bestu Deildar kvenna!