Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Rigning búin=topp stöff
Ægir
Ægir
0 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 13' Valdimar Jóhannsson
Dómari: Hreinn Magnússon
Leik lokið!
1-0 lokastaða
Njarðvík fer heim með stigin þrjú!
Jafn seinni hálfleikur en það var alvarlegur skortur á færum. Betra frá Ægismönnum en Njarðvík 3stigum ríkari og eflaust sáttir.
Takk fyrir mig í kvöld frá Þorlákshöfn.
94. mín
Fara með boltann að horn fána bara úr aukaspyrnunni
Ægir
94. mín
Gult spjald

Bjarki Rúnar Jónínuson

Njarðvík að fá auka á flottum stað.
93. mín
Eiður Aron átti heldur betur mikilvægan skalla til að hreinsa og þeir fá síðan aukaspyrnu á miðjum velli.
91. mín
Brotið á Ægismanni á miðjum velli, nú er allra síðasti séns.
Eiga hornspyrnu núna.
90. mín
Alexander Helgi með aukaspyrnu langt frá teig sem svífur langt og hátt yfir pakkann í teignum og markið.
89. mín
Mjög slakt skot hjá að mér sýndis Hrafni Guðmundsson sem Ómar Castaldo tekur þægilega.
87. mín
Fer að fjara út hér
Má ekki gleymast að það er einungis eitt mark í þessu og mark hér á síðustu mínútum fyrir annað hvort liðið getur orðið dýrmætt. Eins og í svo sem nánast öllum fótboltaleikjum.
84. mín
Arnleifur með bolta fyrir markið en Björn Aron var ekki alveg tilbúin í þennan bolta og nær ekki góðri snertingu á hann.

Njarðvík fær þó hornspyrnu.
83. mín
Enn ein rangstaðan á Ægismenn og Jordan Adeyemo er það í þetta sinn en alls ekki í fyrsta sinn.

Eiður Aron búinn að vera til fyrirmyndar að stýra vörn Njarðvíkur.
Njarðvík
80. mín
InnBjörn Aron Björnsson
ÚtStefán Gísli Stefánsson
Njarðvík
80. mín
InnHaraldur Ágúst Brynjarsson
ÚtSímon Logi Thasaphong
78. mín
Ivan Sanabria með fyrirgjöf sem fer í gegnum allan pakka og síðan kemst Njarðvík með skot en það er ekkert varið í það.
77. mín
Leikurinn hefur alveg jafnast út í seinni bæði liðin að eiga kafla með boltann en það vantar einfaldlega uppá að komast í einhver færi.
Njarðvík
74. mín
InnHrafn Guðmundsson
ÚtLeandro Fernandes
Njarðvík
72. mín
Gult spjald

Arnar Helgi Magnússon

70. mín
Ægismenn í smá sóknar gír um þessar mundir.
Ægir
68. mín
InnHilmar Óli Viggósson
ÚtSigurður Óli Guðjónsson
67. mín
Hefur mjög lítið reynt á markmennina í þessum seinni hálfleik.
Njarðvík
62. mín
InnAron Einarsson
ÚtViktor Nói Vidarsson
Viktor Nói í sínum öðrum leik aftur með rúman klukkutíma leik fyrir þá Grænklæddu, solid frammistaða hjá honum á miðjunni í kvöld.
60. mín
Viktor Nói brýtur á Bjarka Rúnar á miðjum velli.
59. mín
Stefán Gísli með skalla á markið af fjær en aldrei nein hætta á þessum skallaða bolta.
Ægir
58. mín
InnAlfredo Ivan Arguello Sanabria
ÚtPaul Leonard Skoczylas JR
Paul Leonard tekinn útaf eftir að hafa orðið fyrir einhverju hnjaski.
55. mín
Örugglega besta færi Ægirs!
Harley Willard fékk vænlega sendingu í teiginn en mistekst að gera eitthvað úr þessu, nær ekki skoti heldur lekur einhvern veginn í jörðina með mann í bakinu.

Skot á markið þarna hefði heldur betur látið Guy Smit þurfa sýna alvöru markvörslutakta.
53. mín
Fyrsta hornspyrna Ægismanna.

Símon Logi gerir vel að skalla boltann burtu og síðan er brotið á Njarðvíkur leikmanni á seinni boltanum.
50. mín
Ægir átti fínt hraðaupphlaup þar sem Adeyemo losaði boltann til hægri á Paul Leonard sem var á fullu gasi en mögulega of miklu því hann var kominn alveg upp að endalínu og reyndi að græja hornspyrnu en það virkaði ekki einu sinni.
Ægir
49. mín
Gult spjald

Baptiste Gateau

47. mín
Viktor Nói Vidarsson feldir rétt svo í teignum, en Hreinn Magnússon veifar þessu áfram.

Það var klárlega einhver snerting að mér sýndist en greinilega ekki nóg að mati dómarans.
Ægir
46. mín
InnBjarki Rúnar Jónínuson
ÚtKristinn Ásgeir Þorbergsson
Eina skiptingin í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Framundan seinni 45mín af fótbolta hér í Þorlákshöfn.
Fyrir þennan fyrri hálfleik voru Ægir búnir að fá á sig 4mörk í síðustu þremur fyrri hálfleikjum. Það er allavega jákvæð breyting að það sé einungis eitt mark í þessu til að byrja seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Hreinn Magnússon flautar til hálfleiks.
Þetta var að mínu mati skemmtilegur fyrri hálfleikur, mikil og góð barátta sem Njarðvík einfaldlega vann og er sanngjarnt 1-0 yfir í hálfleik.
Smá hlé svo keyrum við þetta aftur af stað!
Njarðvík
45. mín
Gult spjald

Leandro Fernandes

Eftir langa hugsun, hendir hann gulu á Fernandes fyrir tæklingu á Atla Rafn sem liggur eftir.
Fernandes virðist hafa mikið að segja en hjálpar Atla aftur upp og allir nokkuð sáttir held ég að lokum.
45. mín
45mín komnar, eflaust ekkert miklu bætt við kannski 1-2mín
43. mín
Nikola Kristinn reynir að finna Kristinn Ásgeir í hlaupi bakvið vörn Njarðvíkur en Eiður Aron Sigurbjörnsson í engu brasi með að skýla boltanum útaf.
41. mín
Þriðja hornspyrna Njarðvíkur á leiðinni.

hafa ekki verið uppá marga fiska.
40. mín
Ægismenn um þessar mundir komast ekki með boltann yfir miðju, verður bara að segjast að Njarðvíkur liðið er vel mætt til leiks og lýta vel út.
34. mín
Valdimar Jóhannsson með skot úr góðri stöðu en yfir markið.
30. mín
Arnleifur Hjörleifsson með skot en það er mjög þægilegt fyrir Ómar í marki Ægismanna.
29. mín
Símon Logi í fínu færi en hikar bara endalaust og endar með því að skjóta beint í varnarmann, fá samt hornspyrnu.

Jordan Adeyemo skallar hornið í burtu.
27. mín
Njarðvík pressa virkilega vel og neyða Ómar Castaldo í krefjandi sendingu sem endar útaf.

Njarðvík fær svo skotfæri eftir innkastið en skotið framhjá.
23. mín
Ægismenn búnir að eiga tvisvar á stuttum tíma uppspils tækifæri en fyrst alveg ferleg fyrirgjöf sem endaði bakvið mark Njarðvíkur og síðan og föst sending fyrir Kristinn Ásgeir og markspyrna niðurstaða.
19. mín
Fyrsta hornspyrna er Njarðvíkur grænt.
Endar í höndum Ómars Castaldo.
15. mín
Arnleifur tæklar Paul Leonard af krafti eftir að hafa misst boltann í sókn.

Mikið búið að vera flauta enda þokkalegar stimpingar hjá báðum liðum á hvort annað.
14. mín
Stefán Gísli brýtur á Daníeli Karl sem var að eiga gott hlaupa á vinstri kantinum.
13. mín
Það er þokkaleg hreyfing á boltanum en mikið fram og tilbaka og nokkuð jafnt milli liða.
Njarðvík aggresívir í sinni pressu á bolta og það er að virka mjög vel.
7. mín
Njarðvík líflegir fyrstu mín, eiga aukaspyrnu á hægri kantinum núna.
6. mín
Rétt fyrir markið átti að mér sýndist Símon Logi Thasaphong sturlað færi með tvö liðsfélaga með sér í teignum, tók skotið og það fór lengst yfir.

Ekki að það breyti miklu núna.
Njarðvík
3. mín
Ekki lengi að brjóta ísinn!

Valdimar Jóhannsson

Var skuggalega aleinn frammi og smellir honum bara í netið.

Ekkert bras og Njarðvík komið yfir 1-0!!!
2. mín
Fínn kraftur til að byrja með hjá báðum liðum.

Ég kann að meta góða liti og þessi leikur en svoleiðis, Ægir í sínum gulu móti og Njarðvík í grænu. Þetta er one for the eye leikur.
1. mín
Við erum kominn af stað!
Njarðvík á upphafsspark og við hefjum þennan leik.

Vonandi skemmtilegur og góður leikur framundan því aðstæður bjóða svo sannarlega upp á veislu, KEYRUM ÞETTA Í GANG!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt
Halldór Geir Heiðarsson, kallaður Donni, er þjálfari Njarðvíkur í dag þar sem Davíð Smári tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt í síðasta leik. Ef mér skjátlast ekki þá fékk Halldór Geir rautt í síðasta leik gegn Ægir en þá að sjálfsögðu sem Aðstoðarþjálfari.
Fyrir leik
Síðasti leikur þessara liða
Þegar þessi lið mættust fyrr á tímabilinu var ekki beint flugelda sýning. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli á JBÓ-vellinum.
Við vonumst klárlega eftir skemmtilegri leik í kvöld.
Fyrir leik
Njarðvík
Það var heldur betur fjör og nógu um að vera í síðasta leik hjá Njarðvík.
3-2 sigur á HK var það í lokinn en Davíð Smári Lamude þjálfari og Oumar Diouck leikmaður Njarðvíkur fengu báðir að lýta rautt spjald og eru í banni í kvöld. En maður í manns stað og allt það. Liðið er í síðasta umsspilssætinu (5.sæti) einsog staðan er núna og stefna þeir eflaust að koma sér örugglega í þann pakka fyrir lok tímabils.
Njarðvík hefur unnið síðustu fimm heimaleiki sína, en á útivelli líkt og í kvöld hefur liðið tapað síðustu þremur. Þeir hafa ekki verið mikið fyrir jafnteflin þeir grænklæddu en síðasta jafntefli kom einmitt gegn Ægir þann 23.maí.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Bragi Karl Bjarkason er markahæstur í liði Njarðvíkur með 7mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Ægir
Heimaliðið hér í kvöld hefur verið að sýna allt annað en sýnar bestu hliðar upp á síðkastið. Síðasta stig þeirra í deildinni kom 26.júni með 0-0 jafntefli við Grindavík og síðasti sigur Ægis var 31.maí (3-2 gegn Völsungi). Síðasti leikur hjá Ægi var 6-1 tap gegn Gróttu, en liðið hefur fengið góðan tíma á milli því sá leikur var spilaður 18.júlí.
Spurning hvort það hafði góð eða slæm áhrif á liðið. Það er allavega verðugur andstæðingur og bæði lið koma eflaust hungruð í stigin þrjú þó þau séu í sitthvor baráttunni á töflunni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Jordan Adeyemo er markahæsti leikmaður Ægis með 8mörk sem gerir hann einnig fimmta markahæsta í Lengjudeildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Dómarar leiksins
Hreinn Magnússon er á flautunni.
Ronnarong Wongmahadthai og Rögnvaldur Þ Höskuldsson eru Aðstoðardómarar.
Dómaraeftirlitsmaður er Gunnar Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjudeildin
Heil og sæl veriði lesendur góðir, hér í kvöld verður lýsing frá GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn þar sem að Ægir fær Njarðvík í heimsókn.
Þetta er leikur í 16.umferð Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.