SKÝRSLAN: Markalaust jafntefli á Ásvöllum
Hvað réði úrslitum?
Haukakonur voru betra liðið í dag, en fóru illa með færin. ÍA konur fóru einnig illa með sín færi sem voru þó ekki mörg, þannig færanýtingin í dag réði úrslitum.
Bestu leikmenn
1. Valgerður Ósk Valsdóttir
Valgerður var góð í dag, gerði vel í návígjum og átti bara flottan leik.
2. Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir
Þorbjörg henti sér fyrir alla bolta í dag og átti stóran þátt í að þær héldu hreinu.
Atvikið
Skot Höllu Þórdísar í stöngina á lokamínútu leiksins, mark hefði komið þeim í góða stöðu um baráttu um sæti í deild þeirra bestu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA heldur 7. sætinu með 15 stig eins og er, liðin í sætunum fyrir neðan eiga leik til góða. Haukarnir fara í 18 stig og fara í 3 sæti.
Vondur dagur
Sóknarlína Hauka fær þetta í dag, fengu aragrúa af færum sem þær fóru illa með. Halla Þórdís var extra óheppin í dag, átti skot í stöngina á lokamínútu leiksins.
Dómarinn - 8
Ekki mikið að gera hjá dómarateyminu í dag, gerðu vel í því sem þurfti að gera.


