SKÝRSLAN: Markið lá í loftinu en aldrei í netinu
Hvað réði úrslitum?
Tjahhh það sem réði úrslitum í kvöld var hreinlega það að hvorugt liðið skoraði, svo markalaust jafntefli var það heillin.
Bestu leikmenn
1. Hildur Katrín Snorradóttir
Átti góðan leik í dag, hefur vaxið svo þvílíkt sem leikmaður í sumar og er hreinlega að blómstra í þessu liði. Fær að vera aggresív og keyra á varnarmenn andstæðingana. Er síðan með frábæran spyrnufót hvort sem er í aukaspyrnum eða hornum. Ása Björg kom síðan vel til greina og hefði fengið þetta ef hún hefði skorað úr einhverju af færunum sínum! Þarf að æfa finish og þá eru henni allir vegir færir.
2. Bridgette Nicole Skiba
Var solid í marki Stjörnunnar í dag og kom í veg fyrir all nokkur færi hjá Grindavík/Njarðvíkurliðinu þegar þær tóku yfir fyrri hálfleikinn. Greip vel inn í, var örugg og stjórnaði sínu liði vel! Jakobína átti sömuleiðis góðan leik í hjarta varnarinnar.
Atvikið
í jafn steindauðu 0-0 jafntefli þá hreinlega dettur mér ekkert atvik í hug! Ekkert sem stendur uppúr þannig, nema bara að þetta var alvöru baráttu leikur þar sem dómarinn leyfði hörku.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða svo sem lítið, bæði lið taka eitt stig úr leiknum. Stjarnan enn í 3. sætinu nú með 22 stig og Grindavík/Njarðvík eru áfram í 5. sætinu nú með 16 stig.
Vondur dagur
Það átti nú enginn vondan dag en þetta var frekar slakur dagur hjá sóknarmönnum beggja liða svona ef ég skell skuldinni á einhvern. Það hefði verið hægt að gera betur úr allnokkrum færum hjá báðum liðum.
Dómarinn - 5
Svona bara þokkaleg dómgæsla í dag, það var orðin skrítin lína í lokin eða svona já bara engin lína, beið eftir því hreinlega að það hæfust slagsmál... bæði lið komust upp með margt. Svo sem fínt að stoppa ekki leikinn vegna smábrota en öllu má nú ofgera. Verður líka að hafa stjórn á leiknum. svo voru bara margar skrítnar ákvarðanir, skrítinn hagnaður og ekki hagnaður.



