Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Ægir
Ægir
0 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Dómari: Hreinn Magnússon
Fyrir leik
Ægir
Heimaliðið hér í kvöld hefur verið að sýna allt annað en sýnar bestu hliðar upp á síðkastið. Síðasta stig þeirra í deildinni kom 26.júni með 0-0 jafntefli við Grindavík og síðasti sigur Ægis var 31.maí (3-2 gegn Völsungi). Síðasti leikur hjá Ægi var 6-1 tap gegn Gróttu, en liðið hefur fengið góðan tíma á milli því sá leikur var spilaður 18.júlí.
Spurning hvort það hafði góð eða slæm áhrif á liðið. Það er allavega verðugur andstæðingur og bæði lið koma eflaust hungruð í stigin þrjú þó þau séu í sitthvor baráttunni á töflunni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Jordan Adeyemo er markahæsti leikmaður Ægis með 8mörk sem gerir hann einnig fimmta markahæsta í Lengjudeildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Dómarar leiksins
Hreinn Magnússon er á flautunni.
Ronnarong Wongmahadthai og Rögnvaldur Þ Höskuldsson eru Aðstoðardómarar.
Dómaraeftirlitsmaður er Gunnar Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjudeildin
Heil og sæl veriði lesendur góðir, hér í kvöld verður lýsing frá GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn þar sem að Ægir fær Njarðvík í heimsókn.
Þetta er leikur í 16.umferð Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.