Fotbolti.net
Birgitta Hallgrímsdóttir
Lengjudeild kvenna
BIRTU völlurinn
Bjart og lítill vindur
Haukar
Haukar
0 - 0
ÍA
ÍA
Dómari: Þorsteinn Magnússon
Áhorfendur: 110
Leik lokið!
Leiknum lýkur hér með 0-0 jafntefli. Skemmtilegur leikur á köflum og Haukakonur óheppnar að skora ekki.

Þakka samfylgdina og skýrsla væntanleg innan skamms

93. mín
Dómarinn dæmir aukaspyrnu á ÍA á hættulegum stað, Valgerður tekur spyrnuna sem er fín en brotið á markmanninum
92. mín
HALLA ÞÓRDÍS
Aftur er það Halla Þórdís sem á skotið í stöngina! Virkilega óheppin í dag.
91. mín
Hornspyrna sem ÍA fær, Haukar setja boltan útaf, önnur hornspyrna!
Alliyah gerir vel en skotið er vel yfir!
90. mín
Uppbótartími eru 3 mínútur
ÍA
86. mín
InnElvira Agla Gunnarsdóttir
ÚtErla Karitas Jóhannesdóttir
86. mín
HALLA ÞÓRDÍS!
Halla fær enn og aftur dauðafæri, skotið rétt framhjá!

Haukakonur búnar að vaða í færum síðustu mínútur!
82. mín
FÆRI
Halla Þórdís komin í gegn en aftur fara heimakonur illa með gott færi!
81. mín
Valgerður fær aukaspyrnu hjá varamannabekk ÍA, þjálfarateymið hjá gestunum eru ekki sátt með ákvörðun dómarans og lætur hann aðeins heyra það!
80. mín
DAUÐAFÆRI
Rakel Lilja með frábæra fyrirgjöf, óheppnar að ná ekki að pota í boltann
Haukar
76. mín
InnRakel Lilja Hjaltadóttir
ÚtKristín Fjóla Sigþórsdóttir
76. mín
Aftur eru ÍA konur að pressa vel, vinna innkast svo hornspyrnu í kjölfarið!
Selma Dögg nær skallanum en rétt framhjá!
ÍA
74. mín
InnErna Björt Elíasdóttir
ÚtNadía Steinunn Elíasdóttir
74. mín
FÆRIII!
Sanda Dís með fyrirgjöf sem Halla Þórdís nær, boltinn fer rétt framhjá!!
69. mín
Eitthvað samskiptaleysi hjá Viktoríu og Önnu Rut, Erla Karitas nálægt því að komast í boltann en Anna Rut bjargar.
68. mín
Enn ein hornspyrnan sem ÍA fær, Ísabel með skot sem fer í þvöguna!
67. mín
Ragnheiður Tinna gerir vel og vinnur aukaspyrnu á fínum stað, Berglind tekur spyrnuna sem drífur ekki yfir fyrsta mann.
64. mín
ÍA fær aðra hornspyrnu, Kristín Fjóla vinnur boltann á sínum vallarhelming og reynir skyndisókn sem misheppnast.
62. mín
Erla á skot hinu megin á vellinum sem endar í hornspyrnu sem kemur þó ekkert úr.
60. mín
SLÁIN!
Lilja Þórdís með skot í slánna!! Halla Þórdís með flotta sendingu á Lilju sem gerir allt rétt en óheppin að skora ekki!
Haukakonur halda sókninni áfram en Þorbjörg Jóna hendir sér fyrir boltann og fær eitthvað högg á höfuðið og dómarinn stöðvar leikinn.
Haukar
59. mín
InnHalla Þórdís Svansdóttir
ÚtÁsthildur Lilja Atladóttir
58. mín
FÆRIIII!
ÍA konur fá heldur betur gott færi, Madison með stungusendingu á Nadíu sem á skot rétt framhjá.

Þær fá hornspyrnu í kjölfarið sem ekkert kemur úr
53. mín
PRESSA!
ÍA konur með góða pressu á Viktoríu sem er of sein að losa boltann, boltinn fer réttsvo yfir markið! Viktoría heppin þarna.
52. mín
Alliyah gerir vel og er nálægt því að komst ein í gegn en varnamenn Hauka komst fyrir.
49. mín
Hornspyrna
ÍA konur fá hornspyrnu, Viktoría gerir vel í markinu og grípur boltann.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Gestirnir setja seinni hálfleikinn í gang.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur í frekar tíðindalitlum leik, Haukarnir heilt yfir sterkari í fyrri hálfleik en ÍA konur hafa aðeins verið að stíga upp!

Vonandi verður seinni hálfleikurinn skemmtilegri
45. mín
Sara Björk nálægt því að komast ein í gegn en Michaela gerir vel.
39. mín
Heimakonur eru að spila vel saman á vallahelming gestanna og fá aukaspyrnu á flottum stað

Valgerður tekur spyrnunna en beint í hendurnar á Michaelu
36. mín
Sara með flottan bolta í gegn á Lilju Þórdísi en Þorbjörg verst vel og kemur boltanum í innkast
33. mín
Lilja Þórdís!!
Lilja Þórdís komin ein í gegn en Michaela ver frá henni en það var dæmt rangstaða
30. mín
Heimakonur ná að spila mjög vel saman fyrir framan teig gestanna en fyrirgjöfinn frá Berglindi fer útaf
28. mín
Hornspyrna
Haukakonur vilja fá hendi, en fá í staðinn aðra hornspyrnu!

Úff þessi hornspyrna fer beint útaf
27. mín
Frekar lítið að gerast, bæði lið með klaufaleg mistök á báðum enda vallarins

Haukakonur vinna hornspyrnu í þessum töluðu orðum
22. mín
Skot!!
Sigrún Eva með skot fyrir utan teig sem fer réttsvo yfir!
21. mín
Sending!!
Valgerður með geggjaða stungusendingu á Lilju Þórdísi sem fer illa með dauðafæri
17. mín
Vel gert
Berglind og Sara Björk spila vel saman á vinstri kantinum, Sara með góða fyrirgjöf sem endar með skoti frá Kristínu Fjólu sem fer beint yfir
15. mín
Haukakonur eru mun sterkari fyrsta korterið
14. mín
STÖNGINN
Valgerður Ósk á skot fyrir utan teig sem er í stöngina!!
10. mín
Góð sókn!
Anna Rut kemur með flottan bolta á Berglindi sem nær fyrirgjöfinni en Haukakonur fá hornspyrnu!

Darraðadans í teygnum og önnur hornspyrna sem ekkert kemur úr
6. mín
Færii!!
Ragnheiður Tinna með flotta fyrirgjöf sem Lilja Þórdís nær ekki að nýta sér, hefði þurft stóru tá til að stýra boltanum inn!
4. mín
Haukakonur með pressu á gestina og vinna innkast sem ekkert kemur úr
3. mín
Hornspyrna
Þetta byrjar hægt hérna í Hafnarfirðinu, gestirnir fá hornspyrnu

Viktoría á ekki í erfiðleikum með þetta og er fljót að koma boltanum aftur í leik
1. mín
Leikur hafinn
Leikur hafinn
Heimakonur setja þetta í gang
Fyrir leik
Þetta fer að byrja
Liðin ganga hér út á völl,

Góða skemmtun!
Fyrir leik
Byrjunarlið ÍA
ÍA konur gera eina breytingu á sínu liði, inn kemur Alexia og á bekkinn fer Dagbjört Líf.

18. Michaela Easter (m)
2. Madison Brooke Schwartzenberger (f)
7. Erla Karitas Jóhannesdóttir
8. Lilja Björg Ólafsdóttir
10. Sigrún Eva Sigurðardóttir
11. Ísabel Jasmín Almarsdóttir
12. Alliyah Monica Rowe
19. Alexa Maletis
22. Selma Dögg Þorsteinsdóttir
23. Nadía Steinunn Elíasdóttir
26. Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir
Fyrir leik
Byrjunarlið Hauka
Haukaliðið gerir 3 breytingar frá síðasta leik, inn koma Ásthildur, Lilja Þórdís og Sandra Dís fyrir þær Ísold, Höllu og Elmu.

1. Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir (m)
4. Anna Rut Ingadóttir
8. Valgerður Ósk Valsdóttir
10. Berglind Þrastardóttir
13. Kristín Fjóla Sigþórsdóttir (f)
14. Ásthildur Lilja Atladóttir
16. Maggý Lárentsínusdóttir
20. Ragnheiður Tinna Hjaltalín
25. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir
30. Sandra Dís Hlynsdóttir
77. Sara Björk Gunnarsdóttir
Fyrir leik
Dómararnir
Þorsteinn Magnússon er maðurinn með flautuna í kvöld, honum til aðstoðar eru þeir Dmytro Bondarenko og Damian Pawlik.
Fyrir leik
Haukar
Hauka konur eru í 4.sæti með 17 stig, jafnmörg stig og HK í 3.sæti. Haukarnir byrjuðu tímabilið með trompi og sigruðu fyrstu 5 leiki sína í deildinni. Þá fór heldur betur að halla undir fæti og í síðustu fjórum leikjum hafa þær einungis náð tveimur jafnteflum og tapað síðustu þremur leikjum. Það verður spennandi að sjá hvernig liðinu gengur eftir komu Söru Bjarkar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍA
Fyrir leikinn standan ÍA konur í 7 sæti með 14 stig, 2 stigum á eftir Selfossi.
ÍA konur tóku á móti KR í síðstu umferð og unnu 3-2, fyrir það hefur stigasöfnun gengið erfiðlega, tap-jafntefli-tap.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Velkomin á Ásvelli
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá BIRTU vellinum þar sem Haukar taka á móti ÍA.

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.