Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 4
1
Afturelding
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 1
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 3
1
Völsungur
2. deild karla
Selfoss
LL 2
1
Dalvík/Reynir
Besta kvenna
Fram
LL 4
1
Valur
Besta kvenna
ÍBV
LL 2
2
FH
Besta kvenna
Breiðablik
LL 2
0
Þór/KA
Lengjudeild kvenna
HK
LL 3
2
Selfoss
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Hapoel Be'er Sheva
LL 2
0
Víkingur R.
Fram
4
1
Valur
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir '33 1-0
1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir '49
Alda Ólafsdóttir '52 2-1
Katrín S. Vilhjálmsdóttir '54 3-1
Taylor Marie Hamlett '63 4-1
29.07.2026  -  19:15
Lambhagavöllurinn
Besta kvenna
Dómari: Reynir Ingi Finnsson
Maður leiksins: Sara Svanhildur Jóhannsdóttir (Fram)
Byrjunarlið:
24. Ashley Brown Orkus (m)
4. Emma Kate Young
7. Alda Ólafsdóttir ('82)
10. Una Rós Unnarsdóttir ('82)
11. Brookelynn Paige Entz
14. Hildur María Jónasdóttir (f) ('94)
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('89)
23. Isabelle Rose Gilmore
25. Kristín Magdalena Barboza ('46)
32. Taylor Marie Hamlett
36. Harpa Helgadóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
6. Katrín Erla Clausen ('89)
8. Karítas María Arnardóttir
9. Hlín Heiðarsdóttir ('82)
17. Katrín S. Vilhjálmsdóttir ('46)
18. Júlía Margrét Ingadóttir ('82)
20. Freyja Dís Hreinsdóttir
22. Halla Helgadóttir ('94)
26. Sylvía Birgisdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Anton Ingi Rúnarsson (Þ)
Arna Diljá Guðmundsdóttir (AÞ)
Stefán Óli Hallgrímsson (MÞ)
Sævar Halldórsson (Leikgr.)
Petra Rós Ólafsdóttir (Liðsstj.)
Krista Dís Kristinsdóttir (Liðsstj.)
Telma Hjaltalín Þrastardóttir (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('35)
Hildur María Jónasdóttir ('67)
Júlía Margrét Ingadóttir ('96)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Helgi Inguson
Skýrslan: Sjóðheitir Framarar rúlluðu yfir Val á tíu mínútna kafla
Hvað réði úrslitum?
Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik. Valskonur voru kraftmiklar og náðu að jafna metin í byrjun seinni hálfleiks. Heimakonur voru hins vegar fljótar að svara fyrir sig og gengu á lagið. Þrjú mörk á tíu mínútum og það vantaði allt sjálfstraust í gestina eftir það.
Bestu leikmenn
1. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir (Fram)
Það var unun að horfa á Söru spila í kvöld. Þvílík gæði og mýkt í henni. Hún skorar fyrsta mark leiksins og það skein af henni sjálfstraustið eftir það. Hikaði ekki við að taka menn á og skjóta fyrir utan teig.
2. Taylor Marie Hamlett (Fram)
Taylor er Frömurum ótrúlega mikilvæg. Mjög kraftmikill leikmaður sem heldur vel í boltann. Hún skoraði í dag og var sífellt ógnandi. Mig langar líka að minnast á Margréti Brynju í Valsliðinu sem var frábær í fyrri hálfleik og skoraði mark liðsins.
Atvikið
2-1 mark Framara var ákveðinn vendipunktur í leiknum. Valskonur voru slegnar útaf laginu eftir það og leyfðu heimakonum að keyra yfir sig.
Hvað þýða úrslitin?
Fram er komið upp í 6. sæti deildarinnar og jafna Grindavík/Njarðvík að stigum í 5. sætinu. Nú er liðið fjórum stigum frá fallsæti. Valur vermir botnsæti deildarinnar og er tveimur stigum frá öruggu sæti.
Vondur dagur
Sjálfstraust Valsliðsins. Liðið hafði átt góðan leik og jafnaði leikinn verðskuldað. Þá tók við hrikalegur kafli sem erfitt er að útskýra. Allt liðið koðnaði og ekki hægt að velja neinn sérstakan leikmann sem var lélegur.
Dómarinn - 5
Þetta var skrítinn leikur og erfitt að gefa Reyni einkunn. Mér fannst spurning um hvort Marie hefði átt að vítaspyrnu í fyrri hálfleik en annars engin stór ákvörðun sem Reynir þurfti að taka. Það var mikið um gul spjöld enda mikil barátta inn á vellinum og hann hefði getað haft betri stjórn á leiknum.
Byrjunarlið:
33. Vera Varis (m)
4. Helga Rut Einarsdóttir ('72)
5. Bryndís Eiríksdóttir
6. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('81)
7. Ísabella Sara Tryggvadóttir ('64)
8. Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('72)
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir ('81)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir (f)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Emma Hawkins
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
2. Sigrún Ísfold Valsdóttir
3. Sóley Edda Ingadóttir ('72)
9. Sonja Björg Sigurðardóttir ('81)
13. Nadía Atladóttir ('64)
25. Glódís María Gunnarsdóttir ('81)
26. Ása Kristín Tryggvadóttir
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir ('72)
36. Aníta Björk Matthíasdóttir
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Hallgrímur Heimisson (AÞ)
Hilmar Andrew McShane (Styrktarþj.)
Eiríkur Raphael Elvy (AÞ)
Sigurður Bjarni Sigurðsson (MÞ)
Anna Sóley Jensdóttir (Sjúkraþj.)
María Hjaltalín (Liðsstj.)
Jónas Breki Kristinsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('38)
Margrét Brynja Kristinsdóttir ('50)
Lillý Rut Hlynsdóttir ('60)
Eiríkur Raphael Elvy ('61)

Rauð spjöld: