Fotbolti.net
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Ægir
Ægir
0 - 0
Afturelding
Afturelding
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Fyrir leik
Breyta einum dollara í tvo?
Stuðlarnir á Epicbet:
Ægir 7,90
X 6,62
Afturelding 1,29
Mynd: EPA

Fyrir leik
Svokallaða þriðja liðið!
ÞÞÞ er dómari þessa leiks og af mörgum talinn sá besti.
Honum til halds og trausts eru þeir:
Guðni Freyr Ingvason, Kári Mímisson sjá um flöggin.
Eftirlitsmaður er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Förum yfir söguna góðu
Samkvæmt heimasíðu KSÍ hafa þessi lið mæst 13 sinnum. Afturelding unnið 11 sinnum, tvisvar hefur þessi leikur farið jafntefli en Ægir hefur aldrei unnið Aftureldingu.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna var slátrun!
Afturelding slátraði Ægi í Mosó, Leikurinn endaði 8-1 fyrir Aftureldingu og var botninum sennilega náð á slöppu tímabili Ægis. Það sem er áhugavert að það var aðeins 2-0 í hálfleik og opnuðu flóðgáttir í þeim seinni.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Gestirnir úr Mosó!
Afturelding eru að berjast um toppsætið að komast aftur beint upp í deild þeirra bestu. Strákarnir úr Mosó sitja í öðru sæti einu stigi á eftir Þrótti, en Afturelding á einn leik inni. Afturelding hafa núna gert tvö jafntefli í röð gegn Fylki og núna síðast HK þar sem leikurinn endaði 2-2 í hörku leik. Afturelding hafa aðeins unnið einn leik af síðustu fjórum, Hausinn kominn á Laugardalsvöll?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Fallnir Ægismenn!
Ægir eru fallnir úr Lengjudeildinni í ár eftir mjög mislukkað tímabil.
Ægismenn eru með átta stig eftir 19 leiki tólf stigum á eftir Völsungi sem er í sætinu fyrir ofan, Ægir hafa aðeins unnuð tvo leiki á liðnu tímabili. Liðið geta fallið með kassann smá úti og geta strítt liðunum fyrir ofan sig.
Ægismönnum var slátrað í síðasta leik töpuðu 6-1 þegar þeir heimsóttu Breiðholtið, sem var síðasta hnífstunga þeirra.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Lengjudeildin klár í slaginn
Góðan daginn, og verið hjartanlega velkominn í þessa beinu textalýsingu frá Þorlákshöfn!
Það fer fram skemmtilegur leikur í dag þegar Ægismenn taka á móti Aftureldingu á GeoSalmo-vellinum í Þorlákshöfn.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.