Besta karla
Valur
19:15 0
0
Stjarnan
Lengjudeild karla
Vestri
LL 0
3
Grótta
Vestri
0
3
Grótta
0-1 Kristófer Dan Þórðarson '1
0-2 Caden Robert McLagan '25
0-3 Mattías Kjeld '85
03.08.2026  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Dagur Bjarkason
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
3. Edson Eduardo Dias Gomes
7. Jacob Stensson
10. Þórður Gunnar Hafþórsson ('75)
11. Johannes Selvén
12. Thibang Phete ('87)
14. Birkir Eydal ('46)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson
17. Gunnar Jónas Hauksson (f)
23. Breki Þór Hermannsson ('75)
45. Guðmundur Páll Einarsson ('46)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
13. Albert Ingi Jóhannsson
16. Marcos Campos Fernandez Marcote ('46)
18. Marinó Steinar Hagbarðsson ('75)
19. Emmanuel Duah ('87)
27. Chriss-Albin Mörfelt ('46)
77. Sergine Fall ('75)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Vladan Djogatovic (MÞ)
Jón Ólafur Ragnarsson (Liðsstj.)
Ferran Montes I. Corominas (Styrktarþj.)
Jonathan Awrohum (AÞ)

Gul spjöld:
Guðmundur Arnar Svavarsson ('38)
Gunnar Jónas Hauksson ('53)
Edson Eduardo Dias Gomes ('84)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Kristján Hrafn Kristjánsson
Skýrslan: Grótta með Vestra í vasanum
Hvað réði úrslitum?
Í stuttu máli þéttur varnarleikur og góð færanýting. Grótta var betri liðið á vellinum nánast allan leikinn, þeir fegnu Vestra til að spila sinn leik og Vestri náði þeim aldrei úr sínu kerfi. Sóknarleikur Vestra var stirður en það var að mestu vegna góðs varnarleiks frá Gróttu. Grótta fékk ekki mörg færi en nýttu þau vel þegar þau komu.
Bestu leikmenn
1. Dagur Bjarkason
Það voru margir góðir hjá Gróttu í dag og þrátt fyrir það að Dagur hafi hvorki skorað né lagt upp mark þá er hann maður leiksins. Dagur var frábær í hægri bakverðinum framan að og um miðjan seinni hálfleik færði hann sig inn á miðju, hann varðist vel og var yfir allan leikinn frábær.
2. Kristófer Dan Þórðarsson
Kristófer skoraði fyrsta mark Gróttu og var hættulegur fram á við þegar Grótta var með boltann. Einnig voru Andri Freyr Jónasson og Mattías Kjeld sterkir.
Atvikið
Atvikið var áhugavert og það var þegar Dagur Bjarkason rúllaði sér inn á völlinn beint fyrir framan Aðalbjörn dómara eftir að hann stoppaði leikinn vegna meiðsla Dags. Aðalbjörn virðist ekki hafa tekið eftir því og leyfði honum að halda leik áfram. Ég er ekki alveg með reglubókina á hreinu en ég er nokkuð viss um að þetta megi ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta vinnur þriðja leikinn í röð gegn Vestra á tímabilinu, Gróttu virðist líða vel að spila á móti Vestra. Grótta eru nú einu stigi frá Njarðvík sem er í 5. sæti og nálgast umspilið. Vestri eru í 7. sæti og fara hvorki upp né niður um sæti.
Vondur dagur
Sóknarleikur Vestra var ekki góður í dag, vörn Gróttu átti ekki í miklum erfiðleikum að verjast sóknaraðgerðum Vestra og færin voru fá hjá heimamönnum.
Dómarinn - 6
Aðalbjörn var ágætur í dag, nokkur sérstök atvik og tvö skipti sem Vestri vildi fá víti. Það fyrsta var að mínu mati hárrétt ákvörðun, seinna skiptið var erfitt að sjá og ég treysti því að hann hafi rétt fyrir sér þar.
Byrjunarlið:
32. Guðmundur Rafn Ingason (m)
2. Hrannar Ingi Magnússon
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson ('93)
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson
10. Grímur Ingi Jakobsson (f) ('93)
16. Halldór Hilmir Thorsteinson ('93)
20. Kristófer Dan Þórðarson ('82)
24. Nökkvi Már Nökkvason ('65)
30. Mattías Kjeld
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
3. Jónatan Ari Bragason ('93)
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('93)
21. Tristan Freyr Ingólfsson ('65)
22. Viktor Orri Guðmundsson ('82)
25. Elmar Freyr Hauksson
96. Emil Skúli Einarsson ('93)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren (AÞ)
Patrekur Ingi Þorsteinsson (Liðsstj.)
Anton Bogdanov (MÞ)
Halldór Svavar Sigurðsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Kristófer Dan Þórðarson ('62)
Hrannar Ingi Magnússon ('82)

Rauð spjöld: