Fyrir leik
Spilandi þjálfarar
Merkilegt nokk er að bæði lið hafa í raun spilandi þjálfara. Dominic Furness, þjálfari K/H, reimaði á sig skónna 7 sinnum í fyrra fyrir sitt lið, en Eggert Gunnþór Jónsson, þjálfari KFA, hefur spilað 17 sinnum fyrir KFA bara á þessu tímabili, og skorað fjögur mörk! Spurning hvort hann verði á bekknum!
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir
Liðin hafa mæst 6 sinnum, en Kormáksmenn hafa einungis náð einum sigri, Austfirðingar sigrað 4, og liðin skilið jöfn einu sinni.
Fyrsti leikurinn fór fram í Lengjubikarnum 2024, en KFA sigraði þann leik 0-3.
Stærsti sigurinn í þessum viðureignum kom í fyrsta leik 2. deildar í fyrra, en þar slátraði KFA Húnvetningum 8-1! Eini sigur K/H gegn KFA kom þó í 2. deild í fyrra, þegar KFA fór í heimsókn á Húnavöku, en stemningin þar var gríðarleg þar sem heimamenn sigruðu 5-1.
Seinasti leikur þessara liða endaði í 2-2 jafntefli. KFA komst í 2-0 en þegar það fór að líða undir lok leiks náðu Húnvetningar að jafna metin

Þriðja liðið
Dómari leiksins er Reynir Ingi Finnsson, en honum til aðstoðar verða Óliver Thanh Tung Vú og Ricardas Kanisauskas

Fyrir leik
Leið Kormaks/Hvatar í 8-liða úrslit
Í 32-liða úrslitum fengu Húnvetningar Víking frá Ólafsvík í heimsókn og sigruðu þann leik 3-2 eftir framlengingu. Mikill hiti var í þessum leik en þjálfari Víkings, Tomasz Luba, fékk að líta rauða spjaldið og einnig Fannar Hilmarsson eftir að K/H fékk vítaspyrnu, en það fóru 5 spjöld á loft á þeirri mínútu.
16-liða úrslitaleikurinn var þó meira spennandi en þá komu Káramenn í heimsókn norður. Allt virtist að K/H myndi sigla þessu heim en á 88. mínútu jafnaði Stefán Logi Sigurjónsson til að gera 2-2 og þurfti þá að fara í framlengingu. Finnbogi Laxdal skoraði þegar einungis 10 mínútur voru eftir af framlengingu en á 121. mínútu kom Sigurður Bjarni Aadnegaard og jafnaði metin til að senda viðureignina í vítaspyrnukeppni! Vítaspyrnukeppnin fór 4-1 fyrir heimamenn og þar við sat.
Lestu um leikinn

Leið KFA í 8-liða úrslitin
Í 32-liða úrslitum fékk KFA Árbæ í heimsókn og sigruðu þann leik 2-0. Árbæingar gagnrýndu þennan leiktíma, en leikurinn var á miðvikudegi klukkan 17:30 og liðið frekar þunnskipað hjá þeim.
Í 16-liða úrslitum fengu þeir svo Augnablik í heimsókn (Lestu um leikinn), en KFA sigraði þann leik 3-2, en Nenni Þór Guðmundsson gulltryggði sigurinn fyrir KFA á 79. mínútu.

Gatorade-bikarinn heilsar!
Gott kvöld lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Blönduósvelli, en hér mun Kormákur /Hvöt taka á móti Austfirðingunum í KFA í 8-liða úrslitum Gatorade-bikarsins!