Fotbolti.net
Guðmundur Jónasson
Fótbolti.net bikarinn
Dalvíkurvöllur
Sól 13 gráður og pínu vindur
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
1 - 5
Álftanes
Álftanes
Hektor Bergmann Garðarsson 19'1 - 01 - 129' Bessi Thor Jónsson1 - 245' Stefán Smári Halldórsson1 - 348' Arian Ari Morina1 - 488' Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson (víti)1 - 592' Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson

SKÝRSLAN: Álftanes pakkaði Dalvík/Reyni saman

Hvað réði úrslitum?

Dalvík/Reynir byrjuðu leikinn töluvert betur og náðu inn marki snemma en eftir að Álftanes náðu að jafna á 29. mínútu þá fengu þeir sjálfstraust og sýndu að þeir vildu miklu meira vinna þennan leik heldur en Dalvík/Reynir og keyrðu á þá og skoruðu fjögur í viðbót.

Bestu leikmenn

1. Arian Ari Morina

Arian var virkilega sprækur á vinstri kantinum. Arian skoraði eitt mark og lagði upp fyrstu 2 mörk Álftnesinga.

2. Sveinn Sær Vattness Ingólfsson

Sveinn var mjög öflugur á miðsvæðinun og náði svo inn 2 mörkum í lok leiks og tryggir þannig Álftanes áfram og sér annað sætið hér.

Atvikið

Jöfnunarmarkið hjá Álftanesi. Álftanes gerði virkilega vel í markinu og breytti það miklu í þeirra leik! Þeir þorðu að pressa meira og héldu betur í boltann eftir það og Dalvík/Reynir átti eiginlega aldrei séns eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

Dalvík/Reynir eru úr leik á meðan Álftanes eru komnir í undanúrslit og voru að slá út annað 2.deildar lið.

Vondur dagur

Hörður Snævar og allt Dalvíkur/Reynis liðið! Hörður gerir 9 breytingar fyrir leikinn og Dalvík/Reynir litu ekki út eins og lið sem hafði spilað mikið saman og vantaði upp á ýmislegt í leik liðsins í dag. Þeir töpuðu flest öllum einvígum og virtust vera frekar áhugalausir þrátt fyrir að halda vel í boltann og fá mögulega fleiri færi heldur en Álftanes en mér fannst eftir fyrsta markið hjá Dalvík/Reyni þá fengu þeir ekki neitt dauðafæri og voru aldrei líklegir að jafna eftir að þeir lenda undir.

Dómarinn - 8

Bergvin Fannar gerði bara sitt í dag, hann gaf nokkur gul sem mér fannst alveg verðskulda gul spjöld og gaf eitt víti sem var líka rétt dæmt að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.