SKÝRSLAN: Mark á fyrstu mín og Selfoss í undanúrslit
Hvað réði úrslitum?
Það tók tíma að sækja öruggan sigur en gott skipulag og vandaður leikur Selfoss ræði úrslitum i dag
Bestu leikmenn
1. Viðar Örn Kjartansson
Tvö mörk, nálægt þrennunni. Orðinn markahæstur í Gatorade bikarnum líkt og í deildinni. Alvöru striker!
2. Ivan Paponja
Passaði vel upp á að Selfoss þurfti ekki að lenda í veseni í dag. Stjórnaði vörninni vel og fær hreint lak í verðlaun
Atvikið
Mark á einhverjum met tíma er atvikið. Held það hafi verið komið 25sek á klukkuna þegar Viðar Örn klobbar markvörðinn og boltinn í fyrsta sinn i netið.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss heldur áfram góðu skriði. Undanúrslit framundan fyrir þá.
Vondur dagur
2-78mín. Þetta stefndi í veislu strax en það rættist seint en eintómt þakklæti að veislan skilaði sér.
Dómarinn - 8
Ekkert bras og frekar lítið að gera hjá dómgæslunni í sólinni, var bara mjög góður og sanngjarn.


