Leik lokið!
94. mín
Gult spjald
Ísak Logi Eysteinsson
92. mín
Lítið eftir og Haukar í færi
Reynismenn að henda öllum fram og þá galopnast allt. Sigurður Hrannar í dauðafæri en Sindri Snær ver vel frá honum!
88. mín
Þriðja hornið í röð hjá Reynismönnum fer framhjá öllum og aftur fyrir í markspyrnu.
87. mín
Það er smá hiti að færast í leikinn. Menn öskrandi á hvort annað, enda lítið eftir og Haukarnir bara einu marki yfir. Allt getur enn gerst og Reynismenn fá horn.
81. mín
Sláin!!
Jón Arnar með frábæran bolta inn í teig frá hægri beint á Ólaf Darra sem á skot með sinni fyrstu snertingu í leiknum beint í slánna!
80. mín
InnPáll Guttormsson
ÚtRóbert William G. Bagguley
80. mín
InnÓlafur Darri Sigurjónsson
ÚtMarkús Breki Steinsson
79. mín
Annað dauðafæri fyrir Hauka!
Góður bolti inn fyrir og í þetta skiptið er það Reynir Leó sem er í færinu. Hann er einn gegn markmanni og tekur skotið en Sindri ver mjög vel frá honum.
77. mín
Dauðafæri fyrir Hauka!
Reynir Leó með frábæran bolta inn fyrir vörn Reynismanna. Sigurður Hrannar þarf hins vegar að kasta sér á boltann til að ná skotinu en það gerir hann. Skotið þá reyndar bara beint á Sindra Snæ sem ver þetta í horn.
73. mín
InnJón Gestur Ben Birgisson
ÚtBóas Heimisson
71. mín
InnReynir Leó Egilsson
ÚtÓliver Steinar Guðmundsson
68. mín
Haukar komnir aftur yfir!
Sigurður Hrannar Þorsteinsson
Örugg spyrna hjá Sigurði, fast í mitt markið upp í þaknetið.68. mín
Haukar fá víti
Brotið á Jóni Barðdal inn í teig, endar á hárréttri niðurstöðu.
67. mín
Haukar fá aukaspyrnu á vítateigslínunni!
Mér fannst þetta alveg pottþétt vera inn í teig. Enda skiptir hann um skoðun núna
64. mín
Rétt yfir!
Breki Freyr reynir skotið fyrir utan teigin, virkilega gott skot sem er að detta niður en bara ekki alveg nóg og hann endar ofan á þaknetinu!
62. mín
InnSebastian Sigurðsson Bornachera
ÚtEinar Karl Ingvarsson
62. mín
InnPablo Oshan Punyed Dubon
ÚtHallur Húni Þorsteinsson
62. mín
InnJón Arnar Barðdal
ÚtArnar Númi Gíslason
58. mín
Fast skot hjá Einari
Einar reynir skotið fyrir utan teig en það fer eiginleg beint á Sindra í markinu. Það er hins vegar fast og Sindri nær ekki að halda boltanum, og ver boltann út í teig þar sem Sigurður Hrannar lúrir og ætlar að gera það sama og Ævar gerði áðan en þá er Sigurður dæmdur rangstæður.
53. mín
Ævar með fastan boltan fyrir frá hægri og Sigurður Hrannar nær skotinu í fyrsta. Þetta var hins vegar full villt skot og langt framhjá.
51. mín
Aftur er svarað strax!!
Ævar Daði Segatta
Breki Freyr kemst upp kantinn vinstra megin, kemur inn á teiginn og tekur skotið. Sindri Snær ver en setur boltann beint aftur út í teig þar sem Ævar er mættur og hann klárar í opið markið á meðan Sindri er ennþá að reyna að koma sér aftur á lappir.49. mín
Reynismenn komast yfir!!
Sævar Orri Valgeirsson (stoðsending: Ísak Daði Ívarsson)
Ísak Daði með aukaspyrnuna, hann lyftir boltanum inn á teig og Sævar rís hæst og nær að stanga boltanum niður í hornið! Frábær byrjun á seinni hálfleiknum hjá Reynismönnum!48. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu við vinstra vítateigs hornið.
46. mín
Sindri Lars með skot fyrir utan teig, nýkomin inná. Fast en beint á Franz í markinu.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
Tvær breytingar hjá gestunum í hálfleik
46. mín
InnSindri Lars Ómarsson
ÚtÓðinn Jóhannsson
46. mín
InnÍsak Logi Eysteinsson
ÚtArnór Siggeirsson
45. mín
Hálfleikur
Hallur Húni með þrumuskot fyrir utan teig sem Sindri Snær ver vel og þá flautar Þorfinnur til hálfleiks. Leikurinn hefur spilast þannig að Haukarnir liggja í sókn mest allan tímann en Reynismenn eru þéttir og gefa lítið af opnum færum á sig. Gestirnir eru síðan hættulegir í þau örfáu skipti sem þeir komast yfir miðju, það er því allt enn opið.
45. mín
Einar með skotið yfir
Haukarnir spila sig vel í gegnum vörn Reynismanna og Markús Breki leggur boltann á Einar Karl sem tekur skotið en hann skrúfast fyrir markið.
41. mín
Vel varið!
Óliver Steinar kemur hlaupandi að lausum bolta fyrir utan teig og tekur mjög fast skot sem stefnir í fjærhornið. Sindri Snær er fljótur niður og nær hendi á boltanum. Mjög vel varið.
40. mín
Haukar í góðu færi
Boltinn er skoppandi milli manna inn í teig Reynismanna og enginn nær almennilegu valdi á honum. Ævar Daði tekur þá snúninginn og skotið í fyrsta en það fer rétt framhjá markinu.
39. mín
Breki Freyr með gott hlaup
Breki kemur upp vinstri kantinn og fer skemmtilega framhjá einum, áður en hann tekur skotið en í varnarmann og aftur fyrir.
38. mín
Kári Vilberg með skotið fyrir utan teig eftir að Reynismenn hreinsuðu frá horni. Skotið hjá Kára frekar laust og beint á markið.
31. mín
Sigurður Hrannar með skotið frá hægra horni teigsins. Þessi endaði svo bara í innkasti hinumegin.
27. mín
Gangur leiksins
Leikurinn spilast eiginlega alveg á vallarhelmingi gestanna en Reynismenn eru þéttir og eru ekki að hleypa Hauka mönnum í mikið af góðum færum.
21. mín
Stöngin!!
Einar Karl töltir upp völlinn og enginn fer í hann. Hann gefur þá boltann bara inn í teig, frábær sending, og Sigurður Hrannar kastar sér í skotið. Boltinn skellur af stönginni og gestirnir ná svo til hans. Línuvörðurinn flaggar svo rangstæðu.
20. mín
Góður bolti út á kant til Arnars sem keyrir inn á teiginn. Hann reynir að setja boltann fastan fyrir markið en Sigurður Hrannar rétt nær ekki til boltans og hann rúllar þá aftur fyrir.
19. mín
Flott sókn Reynismanna!
Gestirnir vinna boltann ofarlega, og spila hraðan þríhyrning. Þá er Alex Þór allt í einu kominn einn gegn Franz í markinu og hann reynir að lauma boltanum framhjá honum en í leiðinni laumar honum rétt framhjá stönginni.
18. mín
Gult spjald
Breki Freyr Ágústsson
17. mín
Haukar með horn
Spyrnan kemur inn á teiginn og Daníel Smári nær skallanum. Hann er fastur en rétt framhjá.
15. mín
Fyrsta sókn gestana og þeir klára úr henni.
ÞEIR SVARA STRAX!!
Sævar Orri Valgeirsson
Langur bolti fram hjá Reynismönnum og það virðist sem Haukamenn ætla að eiga nokkuð þægilega við þetta. Sævar hins vegar er bara miklu sterkari og hrifsar biltann af þeim, tekur svo eina "ball roll" til þess að láta varnarmanninn hlaupa framhjá sér og klárar virkilega vel!Fyrsta sókn gestana og þeir klára úr henni.
13. mín
Þetta lág í loftinu!
Arnar Númi Gíslason (stoðsending: Óliver Steinar Guðmundsson)
Óliver Steinar með frábæra sendingu inn fyrir vörn Reynismanna og Arnar Númi brýst þar í gegn. Hann er þá kominn einn gegn markmanni inn í teig og klárar snyrtilega!12. mín
Einar Karl með skotið fyrir utan teig, fín tilraun en Sindri Snær sér við honum.
11. mín
Góð pressa hjá Haukum og þeir vinna bltann ofarlega á vellinum. Ævar Daði leggur þá boltann út í teig fyrir Einar Karl sem tekur skotið en í varnarmann.
8. mín
Frábær sprettur hjá Arnari!
Haukar í stanslausri sókn hérna og aftur er það Arnar Númi sem fer framhjá mönnum og kemur sér í góða stöðu inn í teig en Sindri Snær í marki gestanna nær að koma út og loka á hann áður en hann nær skotinu.
7. mín
Óliver Steinar tekur spyrnuna og lyftir boltanum á hættusvæðið milla markmannsins og sóknarmanna en enginn nær til boltans og hann skoppar bara aftur fyrir.
7. mín
Haukar fá aukaspyrnu á stórhættilegum stað.
6. mín
Valur Þór kominn aftur inn á eftir að hafa fengið smá aðhlynningu, ekki góð innkoma hingað til því hann tekur kolvitlaust innkast og Þorfinnur gerir það eina rétta og dæmir á það.
2. mín
Haukar með fyrsta færið
Flottur sprettur hjá Arnari Núma upp hægri kantinn. Fer framhjá einum og tekur svo skotið, í varnarmann, fer svo aftur af Arnari og gestirnir fá markspyrnu. Valur Þór liggur svo eftir inn í teig og þarf aðhlynningu, hann var fyrir þessu skoti hjá Arnari.
1. mín
Leikur hafinn
Þorfinnur flautar og við erum farin af stað! Reynismenn taka upphafssparkið en þeir sækja í átt að sundlauginni hér í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Seðill í Gatorade bikarnum sem ég er ágætlega confident á. pic.twitter.com/pbfCqOB2lK
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 4, 2026
Fyrir leik
Dómarinn
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Ingólfur Kristinn Magnússon og Margeir Valur Sigurðsson. 

Fyrir leik
Leikirnir sýndir á Livey
Allir leikirnir eru sýndir í beinni útsendingu á Livey.
Fyrir leik
Leið liðanna til þessa
Reynismenn hófu leik í fyrstu umferð og hafa því farið í gegnum tvær umferðir.
26.05.26 Sindri 1-3 Reynir S.
08.07.26 KH 2-3 Reynir S.
Haukarnir hófu leik í síðustu umferð og fóru örugglega í gegn.
06.07.26 KFR 0-3 Haukar
26.05.26 Sindri 1-3 Reynir S.
08.07.26 KH 2-3 Reynir S.
Haukarnir hófu leik í síðustu umferð og fóru örugglega í gegn.
06.07.26 KFR 0-3 Haukar
Fyrir leik
Gestirnir einni deild neðar
Reynismenn eru í 3. sæti 3. deildarinnar. Þeir hafar verið skemmtikraftar þessara deildar í sumar þar sem þeir hafa skorað 44 mörk og fengið 31 á sig. Það gera 5 mörk að meðaltali í leikjum liðsins í sumar og því vonandi líkur á skemmtilegum leik í kvöld. Markahæsti leikmaður Reynismanna þekkir vel til á Hafnarfirði en Ástralinn, Jordan Smiley sem hefur skorað 12 mörk í 3. deildinni í sumar spilaði áður fyrir Haukana.

Fyrir leik
Haukarnir besta liðið í mótinu?
Haukarnir eru í fyrsta sæti í 2. deildinni með 32 stig eftir 15 umferðir og eru tveimur stigum á undan Selfoss. Það var töluverð breyting á liðinu fyrir tímabil þar sem Guðjón Pétur Lýðsson auk Óskar Arnar Haukssonar og Pablo Punyed tók við þjálfun liðsins. Pablo hefur einnig verið að spila fyrir liðið en þessi breyting hefur gengið nokkuð vel. 

Fyrir leik
Fótbolti.net bikarinn heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá 8-liða úrslitum Fótbolti.net bikarnum. Haukar og Reynir Sandgerði mætast í kvöld með sæti í undanúrslitum í boði. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður spilaður á BIRTU vellinum í Hafnarfirði.






Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.