SKÝRSLAN: Seiglusigur skilar Kormáki/Hvöt í undanúrslit
Hvað réði úrslitum?
Þessi sigur einkenndist á hörku í raun. Kormáksmenn voru frábærir og gestirnir líka. Það er í rauninni smá heppni sem veldur seinna marki heimamanna. En ekkert hægt að taka af gestunum, þeir voru frábærir í þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Stein Reinkort
Sten var frábær í þessum leik, alltaf vel staðsettur, sterkur og stæðilegur sóknarmaður.
2. Nenni Þór Guðmundsson
Fannst Nenni mjög góður og hefði nokkrum sinnum getað náð honum inn í netið. Frábær leikmaður sem KFA hefur þar
Atvikið
Setja það á seinna markið? Margt sem gerðist í þessum leik sem var markvert en það varð allt vitlaust í stúkunni! Stuðningsmenn heimamanna hafa sjaldan verið eins sáttir eftir mark!
Hvað þýða úrslitin?
Kormáks/Hvatarmenn eru komnir í undanúrslit Gatorade-bikarsins og mæta þá annað hvort Álftanesi, Haukum eða Selfossi.
KFA þarf hins vegar að bíta í hið súra epli og fara austur á firði með sárt ennið.
KFA þarf hins vegar að bíta í hið súra epli og fara austur á firði með sárt ennið.
Vondur dagur
Verð að setja það á dómarann. Mjög slök frammistaða og þetta er með verri dómgæslum sem ég hef séð í íslenskum fótbolta þetta tímabil. Sama hvort sem það var fyrir K/H eða KFA, þá var eins og allt væri tilviljanakennt hjá honum og engin lína. Vítaspyrnan sem KFA fékk var mjög soft að mínu mati og KFA-menn geta talið sig heppna að það hafi verið dæmd vítaspyrna. Nákvæmlega eins brot gerist stuttu seinna í vítateig KFA og Reynir dæmir ekki. Spjaldið sem Sigurður Aadnegard fær, óskiljanleg ákvörðun hjá Reyni. Sigurður fer alltaf í boltann og Nenni hoppar yfir manninn. Spjaldið sem Birkir Ingi fær hjá KFA, aldrei gult heldur að mínu mati. Þó Reynir hafi verið arfaslakur í dag, þá vona ég að hann muni batna með tímabilinu og vona auðvitað að það gangi allt upp hjá honum í næstu leikjum.
Dómarinn - 1
Falleinkunn af versta tagi



