Leik lokið!
4-0 (STAÐFEST)
91. mín
Viðar Örn þrenna???
Neibbs, frábær sending frá Aroni Fannar en góður skalli hjá Viðari en rétt yfir.
90. mín
Komnar 90 á klukkuna en það tók annað markið til að Selfyssingar föttuðu að það er ekkert mál að skora mörk hér í blíðunni.
88. mín
Frábærlega klárað hjá Ívan Breka.
4-0
Ívan Breki Sigurðsson
Þetta var það sem maður bjóst við, Selfoss komnir með þennan sigur og Undanúrslit framundan í September.Frábærlega klárað hjá Ívan Breka.
86. mín
Eitt svona gefins í lokinn 3-0!!!!
Gestur Helgi Snorrason
Skil ekki alveg hvernig þetta gerðist, Björn Mikael lék á leikmann Selfoss síðan hélt maður að þetta færi í burtu en nei nei, Gestur mættur og fær að setja þennan í tómt netið.83. mín
Selfoss að fá hornspyrnu eftir að skot þeirra fór í varnarmann og yfir markið.
Hornspyrnan fer bara beint í hendurnar á Björn Mikael í markinu
Hornspyrnan fer bara beint í hendurnar á Björn Mikael í markinu
82. mín
InnArnar Máni Ingimundarson
ÚtHrannar Þór Eðvarðsson
81. mín
Gult spjald
Óliver Úlfar Helgason
81. mín
Ef mér skjátlast ekki þá er Viðar Örn orðinn markahæstur í Gatorade bikarnum með 5mörk í þremur leikjum.
79. mín
2-0 Selfoss!!!
Viðar Örn Kjartansson (stoðsending: Aron Fannar Birgisson)
Aron Fannar gerði vel að koma boltanum fyrir markið og Viðar Örn með sitt tryllta markanef renndi sér í boltanum og í netið fór hann.78. mín
InnDagur Eiríksson
ÚtSteinn Logi Gunnarsson
74. mín
InnDagur Eiríksson
ÚtSteinn Logi Gunnarsson
74. mín
InnÁsgeir Marteinsson
ÚtBjörn Ingi Sigurðsson
74. mín
InnAuðunn Logi Valdimarsson
ÚtEinar Bjarki Einarsson
71. mín
Viðar Örn með skot en Björn Mikael ver boltann út í teig þar sem Ýmirsmenn ná að hreinsa.
70. mín
Selfoss liðið algjörlega stjórnað þessum seinni hálfleik en það hefur hinsvegar ekkert verið að frétta af einhverjum alvöru færum.
1-0 er ekkert froskot til að leika sér með.
1-0 er ekkert froskot til að leika sér með.
66. mín
InnJóhann Króknes Torfason
ÚtEgill Örn Pétursson
64. mín
Hornspyrna frá Ýmir sem endar örugglega í höndum Sabatti.
63. mín
InnGuðmundur Stefánsson
ÚtEinar Breki Sverrisson
63. mín
InnDagur Jósefsson
ÚtBrynjar Bergsson
62. mín
Góð varsla!
Björn Mikael búin að vera flottur í seinni hálfleiknum, mætir óhræddur út á móti Viðari Erni og étur skotið hans.
60. mín
Viðar Örn fær aukaspyrnu á fínum stað en líklegast verður þetta fyrirgjöf.
Björn Mikael í engum vanda að handsama þessa fyrirgjöf.
Björn Mikael í engum vanda að handsama þessa fyrirgjöf.
58. mín
Björn Mikael gerir vel í að koma út í aukaspyrnu frá Selfossi og tekur fangar boltann.
53. mín
Bjargað af línu!
Ýmismenn standa vel á línunni og bjarga marki, síðan kemur skot frá Selfossi en það er einnig hreinsað í burtu.
Ýmir að fá aukaspyrnu núna ofarlega á vellinum, fyrsta skipti í seinni sem þeir eru að komast upp á völlinn.
Ýmir að fá aukaspyrnu núna ofarlega á vellinum, fyrsta skipti í seinni sem þeir eru að komast upp á völlinn.
52. mín
Selfoss aftur að fá horn, Ívan Breki átti góða móttöku og sprett á hægri katninum, fann síðan Aron Fannar en hann snerting var offöst en náði að sækja horn.
50. mín
Fyrsta hornspyrna seinni hálfleiks er Selfyssinga.
48. mín
Aron Fannar með skot en ekki í nógu góðu jafnvægi og boltinn fer framhjá markinu.
46. mín
Selfoss með tvöfalda skiptingu í hálfleik, gestaliðið er óbreytt einsog er.
46. mín
InnGestur Helgi Snorrason
ÚtFrosti Brynjólfsson
46. mín
InnÍvan Breki Sigurðsson
ÚtReynir Freyr Sveinsson
46. mín
Seinni hálfleikur byrjaður!
Áfram haldandi bullandi sól og bongó hér á Selfossi.
Seinni 45mínúturnar verða vonandi fjörugari annars bara áfram fótbolti og íslenskt sumar!
Seinni 45mínúturnar verða vonandi fjörugari annars bara áfram fótbolti og íslenskt sumar!
45. mín
Hálfleikur
Selfoss leiðir í hálfleik!
Eftir fyrsta markið sem kom eftir minna en hálfa mínútu þá var maður kominn í stellingar fyrir einhverja veislu en það hefur ekkert ræst úr því.
Vonumst eftir töluvert meiri skemmtun í seinni.
Vonumst eftir töluvert meiri skemmtun í seinni.
41. mín
Selfoss að fá hornspyrnu.
Það styttist í hálfleik sem ég held við höfum bara gott af.
Það styttist í hálfleik sem ég held við höfum bara gott af.
35. mín
Filip Sabatti kýlir í burtu fyrirgjöf upp úr aukaspyrnu á vinstri kantinum.
33. mín
Það hefur ekkert verið að frétta annað en að boltinn er á miðsvæðinu þangað til Selfoss reynir sendingar gegnum vörnina sem eru ekki að heppnast um þessar mundir.
26. mín
Selfoss óheppnir að koma ekki skot í sinni sókn en Viðar Örn sótti allavega hornspyrnu fyrir sitt lið.
Tóku hornið stutt en þurftu síðan að brjóta því þeir voru að fara missa Ýmir í skyndisókn.
Tóku hornið stutt en þurftu síðan að brjóta því þeir voru að fara missa Ýmir í skyndisókn.
25. mín
Gult spjald
Reynir Freyr Sveinsson
Dregur leikmann Ýmis niður á miðjum velli til að stoppa sóknina.23. mín
Frosti Brynjólfsson slapp í gegn hjá Selfoss og lék á markvörð Ýmis en skotið á erfiðum vinkli og framhjá.
Einnig flaggað rangstæða eftir að skotið átti sér stað.
Einnig flaggað rangstæða eftir að skotið átti sér stað.
21. mín
Óliver Úlfar með skot rétt fyrir utan sem rúllar framhjá nærstönginni.
16. mín
Aftur smá bras á Filip Sabatti, fyrirgjöf sem endar einhvern veginn á að Filip kýlir hann í samskeytinn og boltinn dettur síðan út í teiginn en það vantaði Ýmismann til að koma skotinu í tómt markið
13. mín
Sturluð sending frá Gunnari Baltasar í hægri bakverðinum fram í teiginn þar sem Egill Örn var í hlaupinu. Filip Sabatti mætti út en þeir misstu báðir af boltanum og Egill Örn náði síðan skoti en Filip gerði mjög vel í að henda sér fyrir.
10. mín
Einar Bjarki gerir vel og sækir hornspyrnu eftir góðan sprett á vinstri kantinum.
8. mín
Ekkert sem verður úr þessum hornum til að byrja með. Selfoss ennþá með boltann.
5. mín
Jafnast fljótt út eftir þetta mark hér strax í byrjun.
Ýmir búnir að vera með boltann en Frosti átti skot núna sem fer í varnarmann og í hornspyrnu.
Ýmir búnir að vera með boltann en Frosti átti skot núna sem fer í varnarmann og í hornspyrnu.
2. mín
Ýmir á fyrsta hornið
1. mín
1-0!!!!
25sekúndur!!!
Viðar Örn Kjartansson (stoðsending: Frosti Brynjólfsson)
Viðar Örn kemur snertingu á sendingu milli varnarmanna. Frosti Brynjólfs spilar síðan Viðar Örn í gegn og hann klárar með klobbaskoti og í netið.1-0!!!!
1. mín
Leikur hafinn
Nú hefjast leikar!
Klukkan orðinn 18:00 og við erum farinn af stað í 8-liða úrslitum Gatorade bikarins.
Ýmir á upphafssparkið og það er vægast sagt þvælu gott veður á Sunny Selfoss!
Ýmir á upphafssparkið og það er vægast sagt þvælu gott veður á Sunny Selfoss!
Fyrir leik
Kristalkúlan
Kúlan er alltaf á tánum og með einn seðil fyrir Gatorade bikarinn
Seðill í Gatorade bikarnum sem ég er ágætlega confident á. pic.twitter.com/pbfCqOB2lK
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 4, 2026
Fyrir leik
Leið Ýmirs
Ýmir byrjaði Gatorade bikargöngu sína virkilega sterkt. 7-0 sigur á heimavelli gegn Álafoss þar sem Ásgeir Marteins, Dagur Eiríkis, Jóhann Króknes skoruðu allir tvennu og Andri Már Harðarson skoraði eitt mark.
Í 16-liða úrslitum fóru Ýmismenn til Mosfellsbæjar og þar sóttu þeir einnig sigur og hreint lak. 2-0 gegn Hvíta Riddaranum en það var Breki Ottósson sem skoraði bæði mörk Ýmis í sitthvor hálfleiknum.

Leið Selfoss
Bikarganga Selfossar hófst með í Reykjanesbæ með 3-1 sigri gegn Hafnir. Þar skoraði Elías Karl Heiðarsson tvö mörk og Viðar Örn Kjartansson skoraði eitt mark.
Næstu umferð eða 16-liða spilaði Selfoss heimaleik gegn Árborg en það var einnig nýttur sem góðgerðarleikur sem var algjörlega til fyrirmyndar og frábær samvinna sem liðin stóðu að. Leikurinn sjálfur var þó öruggur fyrir Selfoss en þeir unnu 5-0 en staðan var 4-0 þegar það var flautað til hálfleiks. Brynjar Bergsson skoraði fyrsta markið, svo kom tvenna frá Viðari Erni og Elías Karl skoraði einnig í þessum leik. Síðasti markaskorarinn var síðan Aron Fannar Birgisson.
Selfoss eru á góðu skriði þessa dagana í deildinni og eru einnig deild fyrir ofan Ýmir þannig það verður að segjast einsog er að Selfoss er mun líklegra liðið í Undanúrslit sem eru í boði fyrir sigurliðið.
Næstu umferð eða 16-liða spilaði Selfoss heimaleik gegn Árborg en það var einnig nýttur sem góðgerðarleikur sem var algjörlega til fyrirmyndar og frábær samvinna sem liðin stóðu að. Leikurinn sjálfur var þó öruggur fyrir Selfoss en þeir unnu 5-0 en staðan var 4-0 þegar það var flautað til hálfleiks. Brynjar Bergsson skoraði fyrsta markið, svo kom tvenna frá Viðari Erni og Elías Karl skoraði einnig í þessum leik. Síðasti markaskorarinn var síðan Aron Fannar Birgisson.

Fyrir leik
Dómarateymið
Dómarinn er Przemyslaw Janik.
Honum til aðstoðar á flöggunum eru þeir Jón Reynir Reynisson
og Ragnar Karl Jóhannsson.
Honum til aðstoðar á flöggunum eru þeir Jón Reynir Reynisson
og Ragnar Karl Jóhannsson.

Fyrir leik
Fótbolti.net bikarinn!
Það er komið að 8-liða úrslitum í Gatorade bikarnum 2026. Allir fjórir leikirnir á sama tíma kl.18:00. Hér munum við sinna beinni textalýsingu frá JÁVERK-vellinum á Selfoss þar sem heimamenn fá Ýmir í heimsókn.

Þakka fyrir mig frá Sunny Selfoss.