Fotbolti.net
Guðmundur Jónasson
Fótbolti.net bikarinn
Dalvíkurvöllur
Sól 13 gráður og pínu vindur
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
1 - 5
Álftanes
Álftanes
Hektor Bergmann Garðarsson 19'1 - 01 - 129' Bessi Thor Jónsson1 - 245' Stefán Smári Halldórsson1 - 348' Arian Ari Morina1 - 488' Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson (víti)1 - 592' Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Leik lokið!
Þvílík frammistaða hjá Álftanesi
Lokatölur 1-5!

Álftanes eru komnir áfram í undanúrslit!

Skýrsla kemur inn seinna í kvöld.
Álftanes
92. mín
HVAÐ ER Í GANGI HÉRNA? ÁLFTANES 5 DALVÍK/REYNIR 1

Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson

Sveinn Sær á skot sem mér sýnist fara í varnarmann og leka inn.

Álftanes eru að valta yfir Dalvík/Reyni!
Dalvík/Reynir
90. mín
Gult spjald

Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa

89. mín
Álftanes vilja annað víti en Bergvin Fannar segir nei
Álftanes
88. mín
1-4!!!

Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson

Álftanes eru að valta yfir Dalvík/Reyni!!!

Sveinn Sær setur hann hægra meginn og Einar skutlar sér í rétta átt en nær ekki til boltans
87. mín
VÍTI!!!
Álftanes fá víti!
86. mín
Álftanes í góðri sókn boltinn fer út vinstra megin og skot yfir markið
84. mín
Rodrigo reynir skot frá vinstri sem fer rétt framhjá markinu
Dalvík/Reynir
82. mín
Gult spjald

Sindri Sigurðarson

Álftanes
80. mín
InnTomas Alejandro Barletta
ÚtMarkús Pálmi Pálmason
Álftanes
80. mín
InnStefán Ingi Gunnarsson
ÚtHilmir Ingi Jóhannesson
Dalvík/Reynir
77. mín
InnViktor Daði Sævaldsson
ÚtHektor Bergmann Garðarsson
76. mín
Rodrigo Sousa með skot fyrir utan teig sem fer lengst framhjá
73. mín
Dalvík að sækja meira núna en Álftanes eru að verjast mjög vel
Álftanes
68. mín
Gult spjald

Óliver Berg Sigurðsson

Dalvík/Reynir
67. mín
Gult spjald

Hjörtur Freyr Ævarsson

Góð mínúta fyrir spjald
Álftanes
66. mín
InnStephan Briem
ÚtHilmar Máni Hlynsson
Álftanes
66. mín
InnMagnús Ársælsson
ÚtBessi Thor Jónsson
65. mín
Dalvík/Reynir í góðri sókn sem endar með skoti sem Þorgeir ver vel
61. mín
Álftanes eru búnir að vera mjög sterkir í seinni hálfleik, grimmir og gefa ekkert eftir. Dalvík/Reynir að reyna halda í boltann og byggja upp sóknir en gengur lítið
Álftanes
59. mín
Gult spjald

Hilmir Ingi Jóhannesson

Dalvík/Reynir
58. mín
InnÁki Sölvason
ÚtViktor Smári Sveinsson
Dalvík/Reynir
58. mín
InnAires Rodrigo Da Encarnacao Sousa
ÚtMagnús Máni Sigursteinsson
Dalvík/Reynir
58. mín
InnElvar Máni Guðmundsson
ÚtAtli Þór Sindrason
Dalvík/Reynir
58. mín
InnGunnlaugur Rafn Ingvarsson
ÚtGabriel Lukas Freitas Meira
Dalvík/Reynir
52. mín
Gult spjald

Magnús Máni Sigursteinsson

Álftanes
48. mín
1-3!! Álftanes skora strax!!!

Arian Ari Morina (stoðsending: Bessi Thor Jónsson)

Bessi Thor fær boltann úti hægra meginn og Arian Ari tekur gott hlaup inn á teginn og fær fyrirgjöf sem hann nær að pota inn!

Álftanes sterkari í lok fyrri hálfleik og byrja seinni vel!
Álftanes
46. mín
InnÓliver Berg Sigurðsson
ÚtMatthías Kroknes Jóhannsson
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Álftanes sparka þessum seinni hálfleik í gang
45. mín
Hálfleikur
1-2 í hálfleik
Dalvík/Reynir byrjuðu betur og héldu vel í boltann en Álftanes vann sig vel inn í leikinn og voru betri aðilinn eftir jöfnunarmarkið og náðu inn öðru marki á 45 mínútu og leiða í hálfleik!
Álftanes
45. mín
1-2!!! Þeir eru komnir yfir!!!!

Stefán Smári Halldórsson (stoðsending: Arian Ari Morina)

Stefán Smári á góðan skalla á nær eftir góða hornspyrnu sem endar í netinu.

Álftanes að skora mark á mikilvægum tímapunkti og leiða 1-2 í hálfleik!
39. mín
Dalvík/Reynir fá hornspyrnu
39. mín
Dalvík/Reynir ennþá mikið að sækja upp hægra megin nú er Viktor Smári sem fær boltann í gegn, keyrir inn á teiginn og reynir fyrirgjöf sem Hilmir Ingi kemur í burtu
36. mín
Arian Ari reynir hér klippu inn í teig en hún fer yfir markið
34. mín
Álftanes aðeins sprækari eftir þetta jöfnunarmark, enginn færi en þora miklu meira að halda í boltann og sækja
Álftanes
29. mín
Þeir eru búnir að jafna!! 1-1!

Bessi Thor Jónsson (stoðsending: Arian Ari Morina)

Arian kemur með fyrirgjöf inn í teig þar sem að mér sýnist Bessi Thor vera mættur og setur boltann í slánna og fylgir svo sjálfur eftir og klárar þetta í opið markið!

29. mín
Dalvík/Reynir töluvert betra en Álftanes komast í eina og eina sókn
22. mín
Sveinn Sær á skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá marki heimamanna
Dalvík/Reynir
19. mín
1-0!!! Fyrsta markið komið

Hektor Bergmann Garðarsson (stoðsending: Almar Örn Róbertsson)

Almar fékk boltann á hægri kanntinum og kom með lágan bolta fyrir markið þar sem Hektor Bergmann er mættur og potar boltanum inn.

Dalvík/Reynir eru komnir yfir.
17. mín
Dalvík/Reynir fá aukaspyrnu úti hægra megin og kemur fyrirgjöf inn í teiginn þar sem boltinn hrekkur fyrir Hákon Atla sem á skot beint í varnarmann.
Fyrsta skotið kemur á 17 mínútu
14. mín
Dalvík/Reynir eru mikið að reyna sækja upp hægra megin og koma með fyrirgjafir en Álftanes ekki átt í miklum vandræðum með að koma þeim frá
11. mín
Komnar nokkrar aukapyrnur á miðjum vellinum, annars eru Dalvík/Reynir bara spila boltanum á milli og Álftanes að reyna setja pressu á þá.

Voða lítið að gerast þessar fyrstu 10 mínútur
5. mín
Þetta fer rólega af stað en Dalvík/Reynir töluvert meira með boltann
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað
Dalvík/Reynir sparka þessu í gang, góða skemmtun!
Fyrir leik
Þetta fer að fara af stað
Leikmenn eru að labba inn á völlinn
Fyrir leik
Epic seðill
Kristalkúlan græjaði seðil fyrir leiki dagsins í Gatorade bikar Fótbolta.net

Fyrir leik
Byrjunarliðin
Hörður Snævar gerir 10 breytingar á sínu liði frá síðasta deildarleik, sá sem heldur sæti sæti sínu í byrjunarliðinu er Hjörtur Freyr Ævarsson.

Álftanes gera 4 breytingar frá 5-0 sigrinum í síðasta deildarleik.
Inn koma Ísak Óli Ólafsson, Markús Pálmi Pálmason, Matthías Kroknes Jóhannsson og Hilmir Ingi Jóhannesson.
Þeir sem far úr liðinu eru Freyþór Hrafn Harðarson, Pálmar Sveinsson, Hlynur Bjarnason og Óliver Berg Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leið liðanna
Dalvík/Reynir byrjaði keppnina á því að slá út Þrótt Vogum á heimavelli 2-0 og tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum þar sem þeir mættu Hamar frá Hveragerði og unnu þá 2-1 á útivelli.

Álftanes byrjuðu keppnina á því að valta yfir ÍH 6-1 á heimavelli, þeir fengu svo Fjölni í 16 liða úrslitum þar sem þeir sigruðu 4-3 í vítaspyrnukeppni eftir spennandi leik sem endaði 3-3 eftir framlengingu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Dómarar
Aðaldómari í dag er Bergvin Fannar Gunnarsson og honum til aðstoðar eru þeir Ásgeir Þór Ásgeirsson og Sváfnir Ragnarsson

Mynd: Eyjafréttir

Fyrir leik
8 liða úrslit
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Dalvík/Reynis - Álftanes
Spilað er í 8 liða úrslitum í Gatorade bikar Fótbolta.net

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.