Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Visana Stadion
Gervigras og 23 gráður
Thun
Thun
3 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Jan Bamert 19'1 - 0Brighton Labeau 26'2 - 0Fabio Saiz 94'3 - 0
Dómari: Giorgi Kruashvili (Georgía)
Leik lokið!
94. mín
Thun var mun betra liðið í kvöld en það er stutt á milli í þessu og Víkingur var nálægt því að minnka muninn í 2-1 í lok leiksins en fékk svo þetta mark í andlitið eftir að uppgefinn uppbótartími var liðinn. 3-0.

Seinni leikurinn í Fossvogi í næstu viku.
Thun
94. mín
Nei nei nei, þá held ég að það sé hægt að bóka það að þessu einvígi sé lokið

Fabio Saiz

Boltinn skallaður frá eftir hornspyrnuna. Fabio Saiz varamaður með skot sem fer í gegnum allan pakkann og endar í markinu. Aron Snær í markinu hefur séð boltann seint, bregst seint við og þriðja mark Thun er hreinlega flautumark.
94. mín
Thun fær hornspyrnu þegar uppgefinn uppbótartími er liðinn.
93. mín
Síðasta mínúta í uppgefnum uppbótartíma í gangi.
93. mín
Tölfræðin
Marktilraunir: 17-7
Hornspyrnur: 5-3
Rangstöður: 4-0
Gul spjöld: 2-2
92. mín
HÖRKUFÆRI! Róbert Orri með skalla eftir hornspyrnuna!
Skallinn beint á Steffen. Þetta var hreinlega dauðafæri! Úff. Svo örstuttu seinna á Gylfi skot sem fer framhjá fjærstönginni.
90. mín
Stórhættuleg sókn Víkings. Valdimar kemst inn í D-boginn en áður en hann nær skoti þá kemst Michael Heule í boltann og bjargar í horn.
Thun
88. mín
Inn Layton Stewart
ÚtBrighton Labeau
87. mín
Víkingar verið hættulegri hér síðustu mínútur. Eitt mark galopnar þetta fyrir seinni leikinn.
85. mín
STANGARSKOT frá Víkingi
Jæja væri hressandi að fá eins og eitt Víkingsmark hérna í lokin. Í þessum skrifuðu orðum á Valdimar Þór Ingimundarson skot sem hafnar í stönginni!!! Skot fyrir utan teig. Þarna munaði litlu.
84. mín
Aron Þrándar í baráttunni
Mynd: EPA

Mynd: EPA

Víkingur R.
83. mín
InnNikolaj Hansen
ÚtAron Elís Þrándarson
Víkingur R.
83. mín
InnRóbert Orri Þorkelsson
ÚtSveinn Gísli Þorkelsson
83. mín
Víkingar fengið tvær hornspyrnur með stuttu millibili.
82. mín
Aron Elís Þrándarson með lausan skalla sem Steffen í markinu á ekki í nokkrum vandræðum með. En þetta skráist hinsvegar sem fyrsta tilraun Víkings á rammann í leiknum.
81. mín
Ljónahúðflúr Niko Hansen fékk að njóta sín í sjónvarpsútsendingunni
Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Hansen er að gera sig kláran í að koma inná.
79. mín
Aron reynir að halda áfram og leikurinn kominn aftur í gang
78. mín
Markvarðavandræðin endalausu hjá Víkingum
Aron Snær kennir sér meins og þarf aðhlynningu. Ögmundur átti upphaflega að byrja leikinn en komst ekki í gegnum upphitun.
76. mín
Simon Lengen með skot úr þröngu færi sem Aron ver.
Víkingur R.
72. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
Víkingur R.
72. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtDaníel Hafsteinsson
Thun
72. mín
Inn Christopher Ibayi
ÚtMarc Gutbub
Thun
72. mín
InnFabio Saiz
Út Nassim Zoukit
71. mín
Um að gera að minna á það að sigurliðið mætir KÍ Klaksvík (Færeyjar) eða Lech Poznan (Pólland) í umspili um sæti í Evrópudeildinni.

Liðið sem tapar í þessu einvígi mun mæta FK Borac (Bosnía og Hersegóvína) eða ML Vitebsk (Hvíta Rússland) í umspili um sæti í Sambandsdeildinni.
69. mín
Hreyfingar á báðum bekkjum og skiptingar á næsta leyti.
68. mín
Karl Friðleifur í fyrirgjafarstöðu en alltof fast og fer yfir allan pakkann.
Thun
66. mín
Sólginn í treyju Karls Friðleifs

Nassim Zoukit

Togar hressilega í hann og fær réttilega gult. Peysutog er spjald segir í laginu góða.
65. mín
Thun kemst í hættulega stöðu en Oliver Ekroth nær að koma sér fyrir skottilraun Marc Gutbub.
Thun
62. mín
Inn Nils Reichmuth
ÚtNico Maier
Víkingur R.
61. mín
Gult spjald

Aron Elís Þrándarson

Harkaleg tækling.
61. mín
Valdimar með lága fyrirgjöf, Aron Þrándar með skot sem fer í varnarmann og afturfyrir. Fyrsta hornspyrna Víkings í leiknum. Helgi tekur fína spyrnu en Víkingar ná ekki skoti að marki.
58. mín
13-3 í marktilraunum
Thun stýrir þessum leik algjörlega.
57. mín
Fabio Fehr vinnur hornspyrnu, boltinn af Helga Guðjóns og afturfyrir. Fjórða hornspyrna leiksins, heimamenn fengið öll hornin.
55. mín
Nassim Zoukit með marktilraun en hittir ekki á rammann.
54. mín
Valdimar með skot yfir
Snörp sókn Víkings, Aron Þrándar gerir vel og kemur boltanum á Valdimar sem þarf aðeins að teygja sig í boltann í skotinu og skotið yfir markið.
53. mín
Daníel Hafsteins fær högg og aukaspyrna dæmd. Daníel þarf ekki aðhlynningu, bara smá tíma til að jafna sig.
49. mín
Michael Heule fær aukaspyrnu á vinstri kantinum. Karl Friðleifur dæmdur brotlegur í baráttunni um boltann og er alls ekki sáttur við georgíska dómarann.
47. mín
Thun með fyrirgjöf frá vinstri en Marc Gutbub nær ekki að reka höfuðið almennilega í boltann og Aron Snær handsamar hann.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Ítreka það að staðan er 2-0. Kerfið okkar var lengi að meðtaka það þegar mark var dæmt af Víkingum í fyrri hálfleik en það er búið að lagfæra það.
Víkingur R.
46. mín
InnValdimar Þór Ingimundarson
ÚtSveinn Margeir Hauksson
Skipting í hálfleik.
45. mín
Nokkrar myndir úr fyrri hálfleik
Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks:
Marktilraunir: 10-2
Hornspyrnur: 3-0
Rangstöður: 3-0
Gul spjöld: 1-1

Thun verið mun betra liðið hingað til.
45. mín
Hálfleikur
Brekka fyrir Víkinga en vonandi ná þeir að laga stöðuna í seinni hálfleik
Thun
45. mín
Gult spjald

Michael Heule

Víkingur R.
45. mín
Gult spjald

Daníel Hafsteinsson

Stympingar við hliðarlínuna og dómarinn hendir gulu á haus.
45. mín
Tilraun við sirkusmark
Labeau reynir bakfallsspyrnu en yfir markið. Þetta hefði væntanlega farið í VAR hefði þetta orðið mark því brotið var á Sveini Gísla í aðdragandanum.
43. mín
Öflug sókn hjá Thun, Labeau fær gott marktækifæri á markamínútunni miklu en hittir ekki á rammann.
41. mín
Michael Heule með skot úr þröngu færi í teignum en hittir boltann býsna vel. Aron Snær ver.
40. mín
Þess má geta að leikur Vals og Nordsjælland er farinn af stað á Hlíðarenda og er hægt að fara í beina textalýsingu frá honum hér.
39. mín
Stuðningsmenn Víkings eru ekki sáttir
Vildu rangstöðu í aðdragandanum að öðru marki Thun og ósáttir við aukaspyrnudóminn á Aron Þrándar þar sem báðir voru að halda í hvorn annan.
34. mín
Markið stendur ekki. Aukaspyrna dæmd á Aron Elís.
Dómarinn fór í skjáinn og dæmir aukaspyrnu á Aron. Hann og Nicolas Burgy voru að halda í hvorn annan en hann er væntanlega að dæma Aron svo brotlegan þegar hann fer í Burgy eftir það.
32. mín
Frábærlega gert
Stígur Diljan skorar! Kemur boltanum í markið og minnkar muninn.

Thun vill brot í aðdragandanum og dómarinn fer í skjáinn til að skoða þetta. Aron Elís Þrándarson var í baráttu við leikmann númer 5.
31. mín
Thun heldur áfram að sækja. Fyrirgjöf frá hægri sem Gunnar Vatnhamar skallar frá.
28. mín
Það var talsverð löng VAR skoðun eftir markið. Verið að athuga með mögulega rangstöðu en markið stendur.
Thun
26. mín
Thun tvöfaldar eftir aukaspyrnuna!

Brighton Labeau (stoðsending: Nico Maier)

Sending inn í teiginn og boltinn berst á Labeau. Helgi Guðjónsson og Sveinn Gísli eru sitthvoru megin við hann en hann nær skotinu og boltinn endar í netinu.
25. mín
Sveinn Gísli Þorkelsson brotlegur og Thun fær aukaspyrnu. Fer í bakið á Brighton Labeau. Sveinn Gísli gefur 'dýfumerkið' til dómarans. Vill meina að þetta hafi verið leikaraskapur.
24. mín
Thunarar eru býsna vel spilandi. Fabio Fehr með skot fyrir utan teig en boltinn framhjá.
Thun
19. mín
Heimamenn eru komnir yfir

Jan Bamert (stoðsending: Fabio Fehr)

Þeir skora eftir hornspyrnuna. Tekin stutt og Fehr á fyrirgjöfina. Hörkuskalli hjá Bamert sem rís hæst og hefur betur í einvígi við Gunnar Vatnhamar.
18. mín
DAUÐAFÆRI hjá Thun en Aron Snær nær að verja!
Aron ver í hornspyrnu.
16. mín
Víkingur með góðan kafla
Heimamenn voru sterkari á upphafskafla leiksins en nú eru Víkingar farnir að koma sér betur inn í þetta og ná upp sóknum. Karl Friðleifur með fyrirgjöf en erfiður bolti sem Helgi nær ekki að halda inná.
14. mín
Þá er það Gylfi!
Jæja Víkingar að eiga marktilraunir hér. Gylfi Þór Sigurðsson með skot við vítateigslínuna en vel framhjá. Hefur hitt boltann betur.
12. mín
Bjartsýnn Helgi
Aron Þrándar með sendingu á Helga Guðjóns sem er staddur fyrir utan teig og lætur bara vaða af löngu færi með boltann á lofti. Hátt yfir, en marktilraun.
9. mín
Víkingar komast í sína fyrstu teljandi sókn og Stígur Diljan á skalla í teignum sem Steffen í marki heimamanna handsamar.
7. mín
Brighton Labeau með tilraun sem Aron Snær ver. Flaggið fer svo á loft. Rangstaða.
5. mín
Þriggja miðvarða kerfi
Víkingar eru í þriggja miðvarða kerfi með Vatnhamar, Ekroth og Svein Gísla. Í bakvörðunum eru Karl Friðleifur og Helgi Guðjóns. Daníel Hafsteins og Gylfi eru á miðjunni; Sveinn Margeir og Stígur á köntunum og Aron Þrándar í níunni.
2. mín
Thun á fyrstu marktilraunina
Nico Maier með skot fyrir utan teig. Aron Snær ver boltann, skylduvarsla, Thun fær fyrstu hornspyrnuna. Sveinn Gísli kemur boltanum frá.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrjuðu með boltann
Heimamenn eru rauðklæddir en Víkingar í varatreyjum.
Fyrir leik
Breyting á byrjunarliði Víkings - Aron Snær í markinu
Aron Snær Friðriksson er í marki Víkings. Ögmundur hefur væntanlega ekki komist í gegnum upphitun, orðið fyrir meiðslum, og Aron stendur á milli stanganna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl og þetta fer að bresta á
Leikurinn er sýndur á Sýn Sport Ísland 2. Útsending er komin af stað og Gunnar Ormslev er við hljóðnemann. Ég reikna svo fastlega með því að góður hópur stuðningsmanna Víkings sé samankominn á Ölveri þar sem þeir eru vanir því að horfa á Evrópuleiki liðsins.
Fyrir leik
Enskur áhugi á Óskari
Áhugaverðar vangaveltur sem hafa verið í gangi um Óskar Borgþórsson, sem er á meiðslalista Víkings. Það er talað um að lið í neðri deildum Englands séu með augastað á þessum hressa og skemmtilega leikmanni.

Fyrir leik
Innslag frá Thun
Fyrir leik
Líkleg uppstilling
Miðað við skýrsluna er mögulegt að Víkingur sé að spila með þriggja miðvarða kerfi. En okkar sérfræðingur í Víkingsmálum, Sverrir Örn Einarsson, telur líklegast að svona sé uppstillingin:

Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkings í Sviss: Ömmi í markinu og Valdimar á bekknum
Sölvi Geir Ottesen hefur opinberað byrjunarlið Víkings. Víkingur tapaði fyrir Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael í seinni leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku. Það eru fjórar breytingar á byrjunarliði Víkings frá þeim leik.

Óskar Borgþórsson og Tarik Ibrahimagic verða frá næstu mánuðina vegna meiðsla sem þeir hlutu gegn Hapoel. Valdimar Þór Ingimundarson sest á bekkinn.

Inn í byrjunarliðið í þeirra stað koma Sveinn Gísli Þorkelsson, Stígur Diljan Þórðarson og Sveinn Margeir Hauksson. Þá kemur Ögmundur Kristinsson inn í markið en Aron Snær Friðriksson fer á bekkinn.

Mynd: Hörður Ágústsson
Fyrir leik
Rýnt í andstæðingana
FC Thun er þriðja meistaralið í sinni þjóð sem Víkingar mæta í Evrópukeppnum í ár en Svissneska deildin er í 16. sæti á styrkleikalista UEFA, fyrir ofan deildirnar í Ísrael og Ungverjalandi. Á pappír ætti þetta einvígi því að vera það erfiðasta en staða Thun er ansi áhugaverð.

Gögnin segja manni að þetta einvígi getur farið í allar áttir, Víkingar eru reynslumeiri í Evrópu síðustu ár á meðan svissneska liðið er verðmætara og kemur frá mun sterkari deild.

Ívar Björgvinsson rýndi í andstæðinga Víkings og er hægt að lesa greinina í heild sinni hér:
Fyrir leik
Vatnhamar á förum
Fjallað hefur verið um það í vikunni að Víkingur er að selja færeyska varnarmanninn Gunnar Vatnhamar til danska félagsins Vejle.

Gunnar er úti í Sviss með Víkingum og verður með gegn Thun í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hann yfirgefur Víking en búist er við því að hann klári Evrópueinvígið.

Fyrir leik
Spilað á gervigrasi
Leikurinn fer fram á Visana Stadion , leikvangi sem áður þekktist sem Arena Thun og svo Stockhorn Arena. Um er að ræða 10 þúsund manna leikvang og undirlagið er gervigras.
Fyrir leik
Veðbankar hafa ekki mikla trú
Mynd: Hörður Ágústsson

Veðbankar hafa ekki mikla trú á Víkingi fyrir leikinn. Hjá Epicbet er stuðullinn 1,57 á sigur svissnesku meistaranna; 4,33 á jafntefli og 5,20 á sigur Víkings.
Fyrir leik
Georgíumaður flautar en Portúgali í VAR herberginu
Mynd: EPA

Aðaldómari verður Georgíumaðurinn Giorgi Kruashvili. Allir aðrir í teyminu eru líka Georgíumenn, fyrir utan VAR dómarann sem heitir Tiago Martins og er portúgalskur.

Kruashvili býr yfir töluverðri reynslu, er 40 ára og dæmdi í deildarkeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Fyrir leik
Velkomin með okkur til Sviss!
Mynd: Hörður Ágústsson

Víkingur heimsækir svissneska liðið FC Thun í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Þetta er fyrri viðureign liðanna.

Sama hvernig einvígið fer þá mun Víkingur spila til úrslita í umspili um að komast í annað hvort Evrópudeildina eða Sambandsdeildina.

Fari svo að Víkingur vinni einvígið Thun þá mætir liðið KÍ Klaksvík (Færeyjar) eða Lech Poznan (Pólland) í umspili um sæti í Evrópudeildinni.

En fari svo að Víkingur tapi einvíginu þá mun liðið mæta FK Borac (Bosnía og Hersegóvína) eða ML Vitebsk (Hvíta Rússland) í umspili um sæti í Sambandsdeildinni.

Umspilsleikirnir munu fara fram 20. ágúst og 27. ágúst.
Fyrir leik
Mynd: EPA

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.