SKÝRSLAN: Jafnteflisdraugurinn enn á kreiki í Garðabæ
Hvað réði úrslitum?
Já það sem réði úrslitum hér í dag var einfaldlega það að hvort liðið skoraði eitt mark og þar við sat! Þróttur hefðu átt að nýta sínar stöður og færi mun betur í fyrri hálfleik og Stjarnan átti heldur betur sín færi líka til að stela þessu, sérstaklega í seinni hálfleik. En
Bestu leikmenn
1. Katie Cousins
Algjör svindlkarl í þessari deild og var yfirburðarmaður á vellinum í dag. Hún var allt í öllu í liði Þróttar, stjórnaði spilinu og tempóinu algjörlega á miðjunni. Gerir alla leikmenn í kringum sig betri. Þetta er allt annað Þróttaralið sem er mætt til leiks með hana innanborðs. Ég vorkenni öllum sem mæta henni þegar hún er komin í sitt besta form! Björg og Mist áttu líka góðan dag hjá Þrótti
2. Fanney Lísa Jóhannesdóttir
Var góð í dag, skoraði fyrsta markið með sínum bestu styrkleikum, hraða og krafti! Hraðinn hennar skapaði vandræði fyrir Þrótt og hún var líklegust í liði Stjörnunnar til að búa eitthvað til þegar heimakonur náðu að komast á skrið ásamt Úlfu Dís.
Atvikið
Ég set þetta á jöfnunarmarkið hjá Þrótti! Þær voru í raun ekkert líklegar á þessum tímapunkti að jafna og Stjarnan hafði verið að taka leikinn yfir. Frábær fyrirgjöf frá Mist Funadóttur yfir hafsentapar Stjörnunnar og Kaylu Marie og Björg Gunnlaugsdóttir kláraði færið af öryggi. Markið hjá Fanney Lísu var reyndar líka mjög flott! og keimlík uppsetning með stungu í gegnum vörnina hjá Þrótti frá Birnu sem Fanney Lísa kláraði ótrúlega vel.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það hreinlega að hvort lið um sig fær eitt stig. Stjarnan hefur nú tveggja stiga forskot á ÍBV og eru enn í 3. sætinu en þá gæti hins vegar breyst á morgun þegar ÍBV mætir Grindavík/Njarðvík. Þróttur er enn í 7. sætinu en nú með þriggja stiga forskot á Þór/KA í 8. sætinu og einu stigi á eftir Grindavík/Njarðvík og Fram í 5. og 6. sætinu. En það gæti hins vegar líka allt saman breyst með leikjum morgundagsins!
Vondur dagur
Það var nú enginn leikmaður sem átti slæman dag í dag en set þetta á Murielle hún er ekki vön að klúðra dauðafærum en hún er búin að klúðra núna dauðafærum tvo leiki í röð! Ef ég þekki hana rétt þá svarar hún þessu með marki eða mörkum í pönnuna á mér í næsta leik
Dómarinn - 7
Mér fannst dómarateymið bara flott í dag, svo sem engar stórkostlega ákvarðanir sem þurfti að taka en hann leyfði alveg smá hörku og brot á báða bóga en hafði samt tök á leiknum. Það hefði alveg auðveldlega getað farið í rugl þar sem það var alveg kominn pirringur í mannskapinn en tríóið leysti þetta vel.



