SKÝRSLAN: Danskir dagar í Hlíðunum
Hvað réði úrslitum?
Nordsjælland var betra liðið, hélt boltanum miklu meira en Valur, án þess að vera með tölurnar þá voru þeir líklega með boltann um 70%. Valur átti nokkur færi, tvö bestu færi kom rétt fyrir fyrsta mark leiksins og þegar Bjarni Mark skallaði beint á Hansen á 87. mínútu. Valur voru samt góðir varnarlega og Nordsjælland fékk ekki mikið af góðum færum. Nordsjælland þurfti galið mark fyrir utan teiginn og víti til þess að vinna. Nordsjælland fengu samt tvö dauðafæri, en gátu ekki nýtt sér þau. Valsmenn hljóta að vera pirraðir að nýta að minnsta kosti ekki eitt færi og Nordsjællandsmenn hljóta líka að vera pirraðir að hafa ekki unnið leikinn stærra.
Bestu leikmenn
1. Ibrahim Adel
Ein stoðsending í dag, en fyrir utan það var hann að hægelda á vinstri kantinum. Nordsjælland fór mikið upp vinstri kantinn á Adel og Lähteenmäki, þeir tveir voru að koma með margar sendingar fram fyrir markið. Valsmenn áttu í smá erfiðleikum með Adel. Það er líka eitt aukastig að vera nálægt því að skora úr hjólhestaspyrnu en bakfallsspyrnan hans var ekki eins góð.
2. Hólmar Örn Eyjólfsson eða Markus Lund Nakkim
Valur voru þéttir varnarlega og þeir tveir voru mjög góðir. Blokkuðu nokkur skot, skölluðu margar fyrirgjafir. Erfitt að velja á milli þannig að þeir þurfa þá að deila þessum dálk saman.
Atvikið
Eftir að Nordsjælland skorar þá þarf Valur að fara skora en þeir héldu áfram sama plani og Nordsjælland sigldi þessu heim. Erfitt að velja eitt atvik þar sem Valur var alltaf í vörn allan tímann.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta er ekki búið, Valur á enn sjens til þess að komast áfram. Seinni leikurinn er 13. ágúst í næstu viku á heimavelli Nordsjælland. Það er nú allt hægt!
Vondur dagur
Tryggvi Hrafn átti ekki sinn besta leik í dag, Tryggvi fær mjög gott færi rétt fyrir fyrsta mark Nordsjælland. Tryggvi er á vinstri kantinum og kemst alveg framhjá varnarmanninum, en skotið fór beint á markmanninn. Svo voru það nokkrar sóknir þar sem Tryggvi var með boltann og kemur svo með skrýtna sendingu. Lúkas Logi var líka í smá erfiðleikum og átti erfitt með að komast framhjá varnarmönnum Nordsjælland. Hörður Ingi var líka í miklum vandræðum með Amoako, þegar hann kom inn á.
Dómarinn - 7
Auminga dómarinn fékk í kálfann og þurfti að fara út af. Brazell sagði við mig eftir leik að þetta væri mögulega ACL. Brazell hélt líka að þetta var ekki víti, en ég held að dómarinn gerði rétt. Þetta var bara fínt, gaman að sjá VAR ,,in action", núna getur fólk rætt á milli sín hvort að sú besta ætti að vera með VAR.



