SKÝRSLAN: Ægir komnir alveg upp við vegg!
Hvað réði úrslitum?
ÍR-ingar mættu mun betur stemmdir í fyrri hálfleik, héldu boltanum vel en sköpuðu sér lítið í fyrri hálfleik. ÍR skoraði hins vegar í fyrri hálfleik með marki frá Bergvini Fannar. Seinni hálfleikurinn var mun skemmtilegri en ÍR stýrðu alltaf ferðinni og Ægir alltaf skrefinu eftirá. Fyllilega sanngjarn sigur hjá ÍR á endanum.
Bestu leikmenn
1. Emil Nói Sigurhjartarson
Emil fær mann leiksins frá mér spilaði frábærlega á miðju ÍR, og skoraði einnig STURLAÐ mark.
2. Kristján Atli Marteinsson
Kristján Atli spilaði flottan leik í dag ein stoðsending og var einhvern veginn allt í öllu. Ægismenn voru í vandræðum með hann.
Atvikið
Markið hjá Emil Nóa var atvikið geðveikt mark.
Hvað þýða úrslitin?
Ægir eru í raun fallnir og þurfa algert kraftaverk til að halda sér uppi. ÍR eru hins vegar komnir soldið frá Völsungi og geta andað örlítið léttar.
Vondur dagur
Ef ég þyrfti að velja einn Dajan Ponjevic var í smá basli. Hraði kannski ekki hans styrkleiki og var í endalausu basli með sóknarmenn ÍR sem hlupu endalaust framhjá honum.
Dómarinn - 8
Twana var flottur í dag, hélt vel utan um leikinn og stýrði honum vel og hélt góðu flæði.



