Leik lokið!
BLIKARNIR TAKA ÞETTA 3-2!
121. mín
JÁ JÁ JÁ
Kristín Dís neglir boltanum fram og leikurinn er flautaður af!
120. mín
Lítið eftir!
Við erum komin á síðustu mínútu venjulegs leiktíma framlengingarinnar
119. mín
Gult spjald
Karolina Guzovskaya
Setur fótinn bara upp í andlitshæð á Karitas117. mín
Kristín Dís með aukaspyrnu við miðjulínuna setur hann upp á Líf sem rétt missir hann útaf, var að koma sér í fína stöðu
115. mín
Góð ranstöðugildra hjá Blikum skilja Pilipenko eftir inn fyrir og flaggið fer réttilega á loft!
113. mín
Brotið á Taylor Kane við miðjubogann, Elín Helena tekur spyrnuna upp á Líf sem nælir í innkast á fínum stað
111. mín
Elín Helena sterk í öftustu línu, heldur manninum frá og skýlir boltanum útaf
108. mín
Gult spjald
Anna Pilipenko
108. mín
Hún er staðin upp sem betur fer því Blikarnir eiga engann mann inni á bekknum
107. mín
Ása brýtur, aukaspyrnan beint í hendurnar á Herdísi Höllu, Þórdís Elva liggur eftir og Herdís setur boltann útaf svo hægt sé að hlúa að henni
106. mín
Charlionak með hornspyrnu en Elísa hreinsar
106. mín
Við erum komin aftur af stað!
Let's go!
105. mín
Hálfleikur!
Blikar leiða 3-2 í hálfleik framlengingarinnar! Nú er bara að halda þetta út síðustu 15 mínúturnar!
102. mín
Karitas gerir ógeðslega vel, vinnu boltann á miðjunni og fer bara sjálf upp allan kantinn, þakkar svo Öglu Maríu fyrir góða stoðsendingu áðan og leggur upp frábærlega upp fyrir hana núna! Góður boltinn á teig sem Agla María þrumar inn!

MAAAARK!
Agla María Albertsdóttir (stoðsending: Karitas Tómasdóttir)
SÖMU SUPER SUBS!Karitas gerir ógeðslega vel, vinnu boltann á miðjunni og fer bara sjálf upp allan kantinn, þakkar svo Öglu Maríu fyrir góða stoðsendingu áðan og leggur upp frábærlega upp fyrir hana núna! Góður boltinn á teig sem Agla María þrumar inn!

98. mín
Gult spjald
Þórdís Elva Ágústsdóttir
Gott blokk bara97. mín
Inn Karolina Guzovskaya
ÚtTaylor Youmans
Nýkomin inn svo það hljóta að vera meiðsli
96. mín
Þórdís Elva með frábæra sendingu á Líf sem reynir að munda skotfótinn, boltinn berst til hliðar þar sem Taylor Kane reynir að elta frákastið en Kovalchuk nær þessu
94. mín
Úffff
Þreytan er heldur betur stærsti faktorinn á vellinum! Léleg sending til baka sem Pilipenko kemst inn í og er komin ein gegn Herdísi en hún er líka þreytt og nær engu krafti í þetta!
93. mín
Það sést á tempóinu á leiknum að allir leikmenn eru þreyttir og hitinn er ekki að hjálpa!
91. mín
Ása komin í dauuuuuðafæri en rétt framhjá markinu
91. mín
Framlenging hafin!
90. mín
Þetta er sko ekki búið!
Það er framlenging!
90. mín
ÞÆR JAFNA Á LOKASEKÚNDUNNI!!!!!
Elísa með innkast finnur Líf í teignum, boltinn svo út á Dórotheu sem finnu Öglu Maríu eiginlega bara á endalínunni við nærstöngina og hún potar boltanum inn og tryggir hér framlengingu!!

MAAAARK!
Agla María Albertsdóttir (stoðsending: Dórothea Ósk Haraldsdóttir)
+6ÞÆR JAFNA Á LOKASEKÚNDUNNI!!!!!
Elísa með innkast finnur Líf í teignum, boltinn svo út á Dórotheu sem finnu Öglu Maríu eiginlega bara á endalínunni við nærstöngina og hún potar boltanum inn og tryggir hér framlengingu!!

90. mín
+5
Korneenko settur boltann hárfínt yfir! Það eru færi á báða bóga hér í lok leik
Korneenko settur boltann hárfínt yfir! Það eru færi á báða bóga hér í lok leik
90. mín
Færrrrriii
+3
Ása með hööööörkuskot sem Kovalchuk þarf að hafa sig alla við að verja
Ása með hööööörkuskot sem Kovalchuk þarf að hafa sig alla við að verja
90. mín
InnTaylor Youmans
Út Veranika Kaliuta
+2
90. mín
+2
Elín Helena brýtur á Plipenko
Elín Helena brýtur á Plipenko
90. mín
Ennþá séns!
+1
A.m.k. 5 mínútur í uppbótartíma!
A.m.k. 5 mínútur í uppbótartíma!
90. mín
Taylor Kane bæði rangstæð og og eiginlega slær boltann með höndinni í fremstu línu
90. mín
Agla María með aukaspyrnu á hættulegum stað! rétt fyrir utan teiginn, setur þetta á fjær, boltinn berst til hliðar þar sem Dórothea á hörkuskot en rétt yfir
88. mín
Hér eru allir orðnir þreyttir, bolti til baka sem Kristín reynir ekki einu sinni við í öftustu línu þetta var eiginlega bara vísun á skyndisókn en sem betur fer er Charlionak jafn þreytt og skotið hennar laust og langt framhjá
83. mín
Taylor smellir sér í fremstu línu, það væri nú saga til næsta bæjar ef hún næði bara að jafna leikinn
82. mín
InnDórothea Ósk Haraldsdóttir
ÚtOlga Ingibjörg Einarsdóttir
82. mín
InnTaylor Kane
ÚtKatelyn Duong
81. mín
Þunnskipaður bekkur hjá Blikum!
Taylor Kane er að gera sig klára til að koma inn á sem útileikmaður!!!
Þetta hélt ég ekki að ég myndi sjá hjá Blikum en örugglega gaman fyrir hana að fá Evrópuleik sem útileikmaður! Allavega góð saga til að segja barnabörnunum!
Þetta hélt ég ekki að ég myndi sjá hjá Blikum en örugglega gaman fyrir hana að fá Evrópuleik sem útileikmaður! Allavega góð saga til að segja barnabörnunum!
79. mín
Herdís Halla!
Pilipenko er frábær að finna veika hlekki og gengur á lagið, finnur svo Kaliuta til hliðar sem er komin ein gegn Herdísi sem ver frábærlega frá henni!
77. mín
Blikar að ógna! Kovalchuk þarf að hafa sig alla við að vera á undan Ásu að kýla boltann
75. mín
Agla María með hornið, setur hann á miðjann teiginn og Blikar vilja víti! Kovalchuk fer út, tekur boltann en líka andlitið á Karitas, annað horn sem kemur þó ekkert úr
74. mín
Líf skallar boltann áfram á Elísu sem er allt í einu komin í góða stöðu en setur boltann í varnarmann og útfyrir,
72. mín
Elísa finnur Þórdísi Elvu sem á þrumuskot en framhjá
72. mín
Nú er að duga eða drepast fyrir Blikana og þær hafa 20 mín til þess að koma inn 2 mörkum
71. mín
Komin aftur af stað eftir vatnspásu
69. mín
Vatnspása!
Það þarf að kæla sig og vökva í hitanum
68. mín
InnGenevieve Sauers
Út Liya Tsikhamirava
67. mín
Aftur eru þær í veseni aftast hjá Blikum, lélegar sendingar sem eru að verða dýrkeyptar en þær bjarga sér fyrir horn núna
65. mín
Elísa reynir fyrirgjöf á fjær en þar er enginn
64. mín
InnLyubov Korneenko
ÚtYana Artishevskaya
62. mín
Elísa missir boltann eiginlega undir sig og bæði Olga og Herdís eru úr stöðum, reynsluboltinn Pilipenko lætur ekki bjóða sér upp á 2 dauðafæri í röð án þess að klára annað þeirra og leggur boltann auðveldlega framhjá Herdísi
MAAAARK!
Anna Pilipenko
ÚFFFF þetta skrifast á vandræðagang í öftustu línu Blika, það er búið að vera voða ves í dag.Elísa missir boltann eiginlega undir sig og bæði Olga og Herdís eru úr stöðum, reynsluboltinn Pilipenko lætur ekki bjóða sér upp á 2 dauðafæri í röð án þess að klára annað þeirra og leggur boltann auðveldlega framhjá Herdísi
61. mín
Pilipenko kemst ein í gegn en skotið er lélegt og beint á Herdísi
60. mín
Agla María með horn, en setur boltann í hliðarnetið
58. mín
Jæja ég jinxaði þetta kannski? Mikill vandræðagangur í öftustu línu Blika en sem betur fer ná þær að halda þessu en það má ekki missa einbeitinguna í eina sek
57. mín
Einstefna hjá Blikum
Það er allt annað að sjá þetta Blikalið í seinni hálfleik!
Þórdís Elva setur Karitas í gegn en hún nær ekki alveg til hans
Þórdís Elva setur Karitas í gegn en hún nær ekki alveg til hans
56. mín
Agla María með annað flott horn sem Kovalchuk þarf að slá út og þær ná ekki að hreinsa almennilega, boltinn hins vegar út fyrir endalínu frá Blikum og markspyrna er það heillin
53. mín

MAAAARK!
Karitas Tómasdóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )
JÁ JÁ JÁ! Agla María með hornspyrnu á miðjann teiginn og hver önnur en Karitas er þar mætt til að stanga boltann inn! Supersubs skiptingar hjá Blix í hálfleik! (mjög skrítið að segja það um þær eeeeen hér erum við)
51. mín
Elísa með fínustu fyrirgjöf og Blikar næla sér í horn, Agla María tekur það en ekkert kemur úr því
50. mín
Jesús!
Ása á fyrst skotið í þverslánna og svo strax á eftir skýtur Þórdís Elva í stöngina!! Þetta er það sem ég er búin að vera biðja um! að Blikarnir fari að keyra á þetta
48. mín
Elísa brýtur af sér á miðjum velli, Charlionak tekur spyrnuna að teignum en Blikakonur ná svo að koma þessu frá
46. mín
Þreföld skipting hjá Blikum í hálfleik
46. mín
InnLíf Joostdóttir van Bemmel
ÚtKristín Vala Stefánsdóttir
46. mín
InnKaritas Tómasdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
46. mín
InnAgla María Albertsdóttir
ÚtHildur Þóra Hákonardóttir
46. mín
Við erum farin aftur af stað!
Líf tekur þetta og Blikarnir bruna strax í hættulega sókn!
45. mín
Tölfræðin ekki með Blikum í liði
49% Ball possession 51%
2 skot 5
1 skot á mark 2
3 horn 2
5 brot 2
Tölfræðin sýnir okkur hvernig Blikarnir hafa verið undir í leiknum þrátt fyrir að vera einum manni fleiri stærstan part fyrri hálfleiks. Minna með boltan, Færri skot og hafa brotið oftar
2 skot 5
1 skot á mark 2
3 horn 2
5 brot 2
Tölfræðin sýnir okkur hvernig Blikarnir hafa verið undir í leiknum þrátt fyrir að vera einum manni fleiri stærstan part fyrri hálfleiks. Minna með boltan, Færri skot og hafa brotið oftar
45. mín
Hálfleikur
0-1 fyrir Dinamo í hálfleik
Klaufaskapur í vörn Blika sem endaði með marki hjá markamaskínunni og fyrirliðandum Pilipenko.
Hanna Siniauskaya lét svo henda sér í sturtu stuttu seinna þegar hún fékk rautt spjald fyrir að rífa í hárið á Edith. Blikarnir hafa þannig verið 1 fleiri í u.þ.b. hálftíma og þær verða að fara nýta það ef þær ætla að halda Evrópuævintýrinu gangandi
Hanna Siniauskaya lét svo henda sér í sturtu stuttu seinna þegar hún fékk rautt spjald fyrir að rífa í hárið á Edith. Blikarnir hafa þannig verið 1 fleiri í u.þ.b. hálftíma og þær verða að fara nýta það ef þær ætla að halda Evrópuævintýrinu gangandi
45. mín
Síðasta hornið í fyrri hálfleik
Katelyn tekur horn fyrir Blika, flottur bolti á fjær en þær rétt missa af boltanum. Þetta hafa verið hörkuhorn hjá henni í dag
45. mín
Það eru 3 mín í uppbótartíma og við erum í +2 núna
45. mín
Charlionak tekur hornið, Herdís slær boltann frá og svo hörkuskot frá Tsikhamirava en framhjá sem betur fer
45. mín
Elín Helena með mjög erfiðan bolta til baka sem Herdís á bara ekki séns í að komast í, horn sem Dinamo fá
45. mín
Pilipenko setur Tsikhamirava í gegn, hún reynir fyrirgjöfina og það er hættulegur bolti en enginn er þót mættur í hann sem betur fer!
42. mín
Færiiii
Þórdís Elva með góða takta og endar svo með hörkuskoti en það er yfir, Blikarnir þurfa að fara nýta þetta momentum sem er með þeim núna
40. mín
Besta færi Blika!
Ása prjónar sig í gegn setur boltann svo til hliðar á Edith sem tekur skotið eiginlega í skrefinu og því ekki nægilega gott. Laust á Kovalchuk í markinu en klárlega hættulegasta færi Blika í dag!
36. mín
Kristín Dís fær að spreyta sig í alls konar hutverkum í dag! Hún er alls ekkert að spila í varnarlínunni eins og við mætti búast, hún byrjaði hér upp á topp og er nú komin á vinstri kantinn þar sem hún skipti við Edith
32. mín
Elísa reynir fyrirgjöf en Kovalchuk í markinu hoppar hæst og grípur þetta
28. mín
Strax hætta á ferðum hjá Dinamo en Herdís Halla grípur vel inn í
28. mín
Við erum komin aftur af stað
26. mín
Vatnspása!
Það er heitt í dag og liðin fá vatnspásu
25. mín
Hildur Þóra brýtur á Pilipenko á miðjunni, þær taka þetta bara langt og skapa hættu en Blikakonur ná svo að koma boltanum frá
23. mín
Edith nælir í horn sem Katelyn tekur, setur hann á fjær þar sem Olga og Pilipenko skella saman við að reyna við boltann
22. mín
Dinamo konur eru beittar í sínum aðgerðum fram á við og það má ekki helst ekki gera nein mistök, annars eru þær komnar á þig strax
20. mín
Ása nælir í horn fyrir Blikakonur, Katelyn tekur hornið og setur hann á miðjann teiginn, þær eru í baráttunni en Dinamo konur ná svo að koma þessu frá
19. mín
Edith brýtur á Pilipenko, kemur ekkert markvert úr þeirri aukaspyrnu þó
16. mín
Norski dómarinn bregst hárrétt við og það er beint í sturtu með Siniauskaya
Rautt spjald
Hanna Siniauskaya
Hártogið finnst víðar en á Íslandi greinilega! Rífur í hárið á Edith sem var komin framhjá henni.Norski dómarinn bregst hárrétt við og það er beint í sturtu með Siniauskaya
14. mín
Það var allskonar bras í sendingum í varnarlínu Blika fyrir þetta, slök sending á Þórdísi svo sem var undir pressu gerir útslagið, Pilipenko kemst í svo í boltann og á hnitmiðað skot á markið af löngu færi framhjá Herdísi Höllu.
MAAAARK!
Anna Pilipenko
Markamaskínan Anna Pilipenko kemur Dinamo yfir!Það var allskonar bras í sendingum í varnarlínu Blika fyrir þetta, slök sending á Þórdísi svo sem var undir pressu gerir útslagið, Pilipenko kemst í svo í boltann og á hnitmiðað skot á markið af löngu færi framhjá Herdísi Höllu.
12. mín
Þetta byrjar voðalega hægt, Blikakonur ekki alveg fundið taktinn og hafa varla tengt sendingar það sem af er.
11. mín
Pilipenko fylgir og pressar á Herdísi en hún er með þetta í teskeið
9. mín
Siniauskaya reynir fyrirgjöf en Herdís Halla grípur þetta
6. mín
Artishevskaya brýtur á Kristínu Dís, þær eru fljótar að taka þetta en ekkert kemur úr þessu í bili
5. mín
Kristín Vala með skemmtilega hreyfingar úti á kantinum
1. mín
Leikur hafinn
Dinamo konur hefja leikinn fyrir okkir
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin komin á völlinn og við erum alveg að fara detta í gang!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Ian Jeffs gerir 3x breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik gegn Aktobe.
Inn í liðið koma Olga Ingibjörg, Hildur Þóra og Kristín Vala. Þær tvær síðarnefndu að byrja sína fyrstu leiki fyrir Blikaliðið í sumar!


Inn í liðið koma Olga Ingibjörg, Hildur Þóra og Kristín Vala. Þær tvær síðarnefndu að byrja sína fyrstu leiki fyrir Blikaliðið í sumar!


Fyrir leik
Hverjar eru Dinamo-BSUPC?
Dinamo-BSUPC kemur frá Belarús og hefur verið fastagestur í Evrópukeppni undanfarin ár. Liðið hefur tekið þátt í forkeppni Meistaradeildarinnar á hverju tímabili frá 2021/22 en hefur hingað til ekki náð að komast í sjálfa deildarkeppnina.
Á síðustu leiktíð komst Dinamo í úrslitaleik mini-mótsins eftir 2-1 sigur gegn Vllaznia en tapaði þar 4-0 gegn Ferencváros. Liðið er því vant þessari tegund Evrópuleikja og kemur með töluverða reynslu inn í viðureignina gegn Breiðabliki.
Ein reynslumesta kona liðsins er hin 37 ára Anna Pilipenko. Hún er bæði leikjahæsti og markahæsti leikmaður Dinamo-BSUPC í Meistaradeildinni samkvæmt UEFA, með tíu leiki og sex mörk.
Á síðustu leiktíð komst Dinamo í úrslitaleik mini-mótsins eftir 2-1 sigur gegn Vllaznia en tapaði þar 4-0 gegn Ferencváros. Liðið er því vant þessari tegund Evrópuleikja og kemur með töluverða reynslu inn í viðureignina gegn Breiðabliki.
Ein reynslumesta kona liðsins er hin 37 ára Anna Pilipenko. Hún er bæði leikjahæsti og markahæsti leikmaður Dinamo-BSUPC í Meistaradeildinni samkvæmt UEFA, með tíu leiki og sex mörk.
Fyrir leik
Fyrirkomulagið
Breiðablik tapaði leik sínum gegn Aktobe á sársaukafullan hátt þegar þær töpuðu vítaspyrnukeppni með ekkert skorað mark, að lokinni framlengingu.
Dinamo-BSUPC tapaði hins vegar sínum leik sannfærandi 3-0 gegn Servette.
Þar sem bæði liðin töpuðu undanúrslitaleikjum sínum eiga þau því ekki lengur möguleika á að komast áfram í Meistaradeildinni, en það er engu að síður mikið undir.
Sigurvegari leiksins tryggir sér 3. sætið í mótinu og um leið sæti í 1. umferð UEFA Women’s Europa Cup. Þar tekur við hefðbundið útsláttareinvígi, heima og úti, en tap í leiknum í dag þýðir að Evrópuævintýri liðsins er lokið.
Breiðablik þarf því sigur gegn Dinamo-BSUPC til að halda Evrópuævintýrinu áfram.

Dinamo-BSUPC tapaði hins vegar sínum leik sannfærandi 3-0 gegn Servette.
Þar sem bæði liðin töpuðu undanúrslitaleikjum sínum eiga þau því ekki lengur möguleika á að komast áfram í Meistaradeildinni, en það er engu að síður mikið undir.
Sigurvegari leiksins tryggir sér 3. sætið í mótinu og um leið sæti í 1. umferð UEFA Women’s Europa Cup. Þar tekur við hefðbundið útsláttareinvígi, heima og úti, en tap í leiknum í dag þýðir að Evrópuævintýri liðsins er lokið.
Breiðablik þarf því sigur gegn Dinamo-BSUPC til að halda Evrópuævintýrinu áfram.

Fyrir leik
Sama dómarateymi en í öðrum hlutverkum
Við fáum að sjá sama spænska og norska dómarateymi og í síðasta leik Breiðabliks en hins vegar breytast hlutverkin.
Á flautunni í dag verður hin norska Karoline Marie Jensen og henni til halds og trausts verða landa hennar Helle Reiten og hins spænska Rocio Puente Pino.
Fjórði dómarinn er þá Paola Cebollada López
Á flautunni í dag verður hin norska Karoline Marie Jensen og henni til halds og trausts verða landa hennar Helle Reiten og hins spænska Rocio Puente Pino.
Fjórði dómarinn er þá Paola Cebollada López
Fyrir leik
Góðan og blessaðan!
Heil og sæl! Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Breiðabliks og Dinamo-BSUPC á Aktobe Ortalyk Stadion í Kasakstan, í leikinn um 3. sætið í þessu mini-móti í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 07:00!

Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 07:00!




Annar leikurinn í röð sem Blikar fara í framlengingu og þreyta og hiti sagði til sín í þessum leik.
Frábærar skiptingar og að eiga Karitas og Öglu Maríu inni á bekknum var klókt og seiglan sem allt liðið sýndi skilaði þessum sigri að lokum!!
Takk fyrir samfylgdina hér á þessum dýrðar morgni.