Í BEINNI
Evrópuforkeppni kvenna
Breiðablik
LL 3
2
Dinamo-BSUPC
Breiðablik
3
2
Dinamo-BSUPC
0-1 Anna Pilipenko '14
Hanna Siniauskaya '16
Karitas Tómasdóttir '53 1-1
1-2 Anna Pilipenko '62
Agla María Albertsdóttir '90 2-2
Agla María Albertsdóttir '102 3-2
07.08.2026  -  07:00
Aktobe Ortalyk Stadion
Evrópuforkeppni kvenna
Dómari: Karoline Marie Jensen
Maður leiksins: Agla María Albertsdóttir
Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir ('82)
8. Katelyn Duong ('82)
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir ('46)
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
24. Hildur Þóra Hákonardóttir ('46)
52. Kristín Vala Stefánsdóttir ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Taylor Kane (m) ('82)
7. Agla María Albertsdóttir (f) ('46)
17. Karitas Tómasdóttir ('46)
19. Líf Joostdóttir van Bemmel ('46)
20. Dórothea Ósk Haraldsdóttir ('82)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)

Gul spjöld:
Þórdís Elva Ágústsdóttir ('98)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Snæbjört Pálsdóttir
Skýrslan: Evrópudraumur lifir - Ofurvaramenn, flautumark, dramatík og nýir framherjar?
Hvað réði úrslitum?
Seiglan í Blikaliðinu skilaði þessum sigri í hús! Bara VÁ! Annar leikurinn í röð sem er spilaðu í miklum hita og fer líka í framlengingu. Þunnskipaður bekkur og lítil breidd. Agla María fékk hvíld í fyrri hálfleik og kom svo tvíefld inn á og átti þátt í öllum mörkum liðsins, klókt að eiga hana inni en mögulega væri ég að skrifa eitthvað annað ef það hefði ekki tekist.
Bestu leikmenn
1. Agla María Albertsdóttir
Kom inn með mikinn kraft og átti þátt í öllum mörkunum, átti stoðsendinguna á Karitas í fyrsta markinu, skoraði jöfnunarmarkið á síðustu sekúndu uppbótartíma og gerði svo útum leikinn þegar hún fékk frábæra fyrirgjöf frá Karitas og þrumaði boltanum inn! Tryggði Blikana í áframhaldandi Evrópuævintýri en þær verða í pottinum þegar dregið verður í Evrópubikarinn
2. Þórdís Elva Ágústsdóttir
Var öflug í liði Breiðabliks, henni líður greinilega vel í grænu treyjunni og var ein af þeim sem dróg vagninn allar 120 mínúturnar! Karitas, Ása og Kristín Dís eiga líka skilið mention. Kristín fékk margar stöður til að leysa úr út um allan völl.
Atvikið
Það eru nokkur góð atvik hérna! Koma tvisvar til baka og jafna, seinna markið á lokasekúndu uppbótartíma og tryggði Blikum framlengingu! Markið frá Öglu Maríu líka sem tryggði sigurinn er klárlega stórt atvik. Ég verð hins vegar að nefna það sem atvikið að atvinnumarkmaðurinn Taylor Kane kemur inn sem útileikmaður þar sem breiddin á bekknum er það lítil! Þetta er eitthvað sem er ótrúlegt að hafi gerst hjá Breiðablik! Og kannski sér kafli útaf fyrir sig hvernig stendur á því að Blikarnir mæta með 16 manna hóp í tvo mikilvæga Evrópuleiki?
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Evrópu ævintýri Breiðabliks heldur áfram og þær verða í pottinum þegar dregið verður í Evrópubikarnum.
Vondur dagur
Klárlega vondur dagur hjá Hanna Siniauskaya sem reif í hárið á Edith á 16. mínútu og uppskar fyrir það rautt spjald. Gerði það að verkum að hún skildi liðið sitt eftir í skít og þær þurftu að spila leikinn einum færri í 104 mínútur! Aftasta lína Breiðabliks var þá einnig í miklu basli og veseni oft á tíðum, ítrekuð mistök, lélegar sendingar, hik og samskiptaleysi og þær eiginlega bara gáfu Pilipenko mörkin á silfurfati.
Dómarinn - 8
Vel dæmt hjá norska dómaranum Karoline Marie Jensen og hennar teymi. Hárréttar ákvarðanir, sérstaklega varðandi rauða spjaldið, hafði góð tök á leiknum en leyfði honum að fljóta vel.
Byrjunarlið:
12. Ekaterina Kovalchuk (m)
4. Alina Charlionak
5. Anhelina Vashchuk
6. Renata Kalinouskaya
7. Yana Artishevskaya ('64)
10. Hanna Siniauskaya
11. Veranika Kaliuta ('90)
13. Aliaksandra Taraduda
22. Anna Pilipenko
23. Liya Tsikhamirava ('68)
95. Darya Harshkova

Varamenn:
90. Zlata Muliarova (m)
91. Katsiaryna Krupnik (m)
14. Genevieve Sauers ('68)
15. Lyubov Korneenko ('64)
19. Daria Sosnovskaya
25. Taylor Youmans ('90) ('97)
69. Karolina Guzovskaya ('97)
96. Violetta Guzovskaya

Liðsstjórn:
Yuri Maleev (Þ)

Gul spjöld:
Anna Pilipenko ('108)
Karolina Guzovskaya ('119)

Rauð spjöld:
Hanna Siniauskaya ('16)