Fotbolti.net
05.08.26 - 14:44
Kári Snorrason
Gatorade bikar Fótbolti.net

Dregið í Gatorade bikar Fótbolta.net á föstudaginn

Dregið á föstudag.

Dregið á föstudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Dregið verður í undanúrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net næstkomandi föstudag.

Álftanes, Haukar, Kormákur/Hvöt og Selfoss verða í pottinum en liðin unnu sína leiki í 8-liða úrslitunum sem spiluð voru í gær.
Kormákur/Hvöt tók á móti KFA á Blönduósvelli og vann 2-1 sigur. Selfyssingar unnu fjögurra marka sigur á Ými og Haukar lögðu Reyni Sandgerði.

Óvæntustu úrslitin voru á Dalvíkurvelli þar sem 4. deildar lið Álftaness vann 5-1 sigur á Dalvík/Reyni. Álftanes er eina liðið sem kemur ekki úr 2. deild sem verður í pottinum á föstudag.

Liðin í pottinum:
Álftanes
Haukar
Kormákur/Hvöt
Selfoss

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.