Fotbolti.net
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Lengjudeild karla
Leiknisvöllur
Leiknir R.
Leiknir R.
3 - 0
Fylkir
Fylkir
Birnir Breki Burknason 19'1 - 0Kári Steinn Hlífarsson 47'2 - 0Daði Bærings Halldórsson 56'3 - 0
Dómari: Faruk Iriskic
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Sá danski flautar af
Frábær frammistaða Leiknis í dag skilar þremur stigum. Fylkismenn hafa átt miklu betri daga. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld.
90. mín
+3
Magnús Daði liggur eftir.
90. mín
Þrjár mínútur í uppbót
Leiknir R.
87. mín
InnÁrni Elvar Árnason
ÚtBirnir Breki Burknason
Birnir skapaði mikinn usla í kvöld
85. mín
Leiknismenn að fá aukaspyrnu á hættulegum stað
Eins og svo oft áður í þessum leik flýgur boltinn yfir allan pakkann og í innkast.
84. mín
Frábær sprettur og skot
Birnir Breki keyrir að marki Fylkis og tekur fínt skot sem fer rétt framhjá markinu.
Leiknir R.
81. mín
InnViktor Andri Pétursson
ÚtKári Steinn Hlífarsson
Frábær leikur hjá Kára í kvöld
80. mín
Fylkismenn að fá aukaspyrnu á fínum stað
Boltinn flýgur yfir allan pakkann og í innkast.
77. mín
Skot og varsla
Hlynur Sævar með fínt skot rétt fyrir utan teig sem Ólafur Íshólm ver út í teiginn.
Fylkir
74. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtNikulás Val Gunnarsson
71. mín
Leiknir að fá aukaspyrnu á góðum stað
Kári Steinn tekur spyrnuna en hún flýgur yfir allan pakkann.
Leiknir R.
70. mín
InnÞorsteinn Emil Jónsson
ÚtRúrik Gunnarsson
Krampi
67. mín
Gott skot
Guðmundur Tyrfingsson með gott skot sem fer rétt yfir markið.
Fylkir
62. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
Fjórföld breyting
Fylkir
62. mín
InnÞórður Ingi Ingimundarson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
Fylkir
62. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
Fylkir
62. mín
InnMagnús Daði Ottesen
ÚtKári Sigfússon
61. mín
Leikurinn hefur róast eftir markið
Rólegt þessa stundina.
Leiknir R.
56. mín
Leiknismenn að jarða Fylki!

Daði Bærings Halldórsson

Hornspyrnan kom inn á teiginn, þar reyndu Fylkismenn að skalla frá en skölluðu beint í fætur Daða Bærings sem setti boltann í autt markið.
55. mín
Leiknir að fá horn
51. mín
Mikil hætta!
Ólafur Kristófer með háan bolta sem ratar beint á Eyþór Wöhler, en skotið hans er aumt og Leiknismenn hreinsa frá.
50. mín
Fylkismenn að fá aukaspyrnu á frábærum stað
Arnór Breki tekur hana, en skotið rétt framhjá. Fylkir aðeins að sækja í sig veðrið.
48. mín
Ólafur Íshólm að verja vel!
Máni Austmann með gott skot sem Ólafur Íshólm ver mjög vel.
Leiknir R.
47. mín
ÞVÍLÍK EINSTAKLINGSTILÞRIF!

Kári Steinn Hlífarsson

Kári Steinn fær boltann langt fyrir utan teig. Hann keyrir á vörn Fylkis, þykist ætla á hægri en fer á vinstri og tekur hnitmiðað skot sem syngur í nærhorninu.
46. mín
Gestirnir byrja seinni hálfleikinn
45. mín
Hálfleikur
Leiknismenn hafa verið að ógna öðru marki. Fylkismenn eru að halda vel í boltann en ákvarðanatakan á síðasta þriðjungi alls ekki nógu góð. Mikið af misheppnuðum sendingum sem Leiknismenn hafa nýtt í hættulegar skyndisóknir.
44. mín
Frábær varsla og horn!
Axel Freyr með sniðugt skot, Ólafur Kristófer sér hann seint og ver meistaralega. Hornspyrnan kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
43. mín
Lúmskt skot
Guðfinnur með lúmskt skot fyrir utan teig, en öryggið uppmálað hjá Ólafi í markinu.
35. mín
Leiknismenn talsvert betri fyrstu 35
Leiknir eru auðvitað yfir og hafa líka stjórnað þessum leik. Fylkir hafa fengið fín færi en ekki nýtt þau.
32. mín
Fyrirgjöf og horn
Bogdan kemur með hættulega fyrirgjöf sem Fylkismenn koma í horn. Hornspyrnan kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
Fylkir
28. mín
Peysutog

Hlynur Sævar Jónsson

Aukaspyrnan kemur inn á teiginn en Fylkir hreinsa frá.
27. mín
Fyrirgjöf og brot
Kári Sigfússon kemst upp að endamörkum, kemur með boltann inn á teiginn en það er brotið á Ólafi Íshólm í markinu.
25. mín
Fylkir að fá aukaspyrnu á fínum stað
Þeir taka hana stutt og spila sín á milli í öftustu línu.
Leiknir R.
19. mín
Leiknismenn að komast yfir!

Birnir Breki Burknason

Það er innkast úti á vinstri kantinum. Boltinn kemur á Birni Breka sem kemur sér inn á völlinn umkringdur Fylkismönnum, en nær föstu skoti rétt fyrir utan teig í nærhornið. Ólafur Kristófer var í boltanum og hefði mátt gera betur en við tökum ekkert af Birni Breka.
17. mín
Færi
Guðmundur Tyrfingsson með skot á lofti sem fer hátt yfir markið.
13. mín
Skot
Kári Steinn með skot rétt fyrir utan teig sem fer framhjá.
11. mín
Leiknismenn að fá sína fyrstu hornspyrnu
Þeir taka hana stutt og síðan kemur fyrirgjöf sem er skölluð frá.
8. mín
Dauðafæri
Eyþór Wöhler stangar boltann aleinn og óvaldaður rétt framhjá markinu.
6. mín
Fylkir að fá horn
Kári Sigfússon kemst upp að endamörkum og Bogdan kemur boltanum útaf. Hornspyrnan var ákaflega skrýtin, flaug yfir allan pakkann og í innkast.
5. mín
Rólegt þessa stundina
Bæði lið eru að skipast á að halda í boltann um þessar mundir.
3. mín
Fylkismenn fá fyrsta horn leiksins
Spyrnan kemur inn á teiginn og það er mikill darraðadans áður en Leiknir koma boltanum frá.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl
Fyrir leik
Allt að verða klárt
Það eru fimm mínútur í leik og liðin halda til búningsherbergja.
Fyrir leik
Vallaraðstæður
Það er búin að vera hellirigning í nánast allan dag, grasið er því rennandi blautt og við megum búast við hröðum og spennandi leik. Annars eru 12 gráður og smá vindur.

Mynd: Leiknir R.

Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Brynjar Björn Gunnarsson gerir tvær breytingar á liði sínu eftir 1-0 tap gegn Grindavík. Inn koma Jóhann Kanfory Tjörvason og Anton Fannar Kjartansson. Adam Örn Arnarson er utan hóps og einnig Dagur Ingi Hammer Gunnarsson.

Heimir Guðjónsson gerir einnig tvær breytingar á liði sínu eftir 3-1 sigur á Völsung. Inn koma Eyþór Aron Wöhler og Nikulás Val Gunnarsson. Dagur Traustason og Bjarki Steinsen Arnarsson eru utan hóps.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Ágúst Hlynsson fékk það verkefni að spá fyrir 17. umferð Lengjudeildar karla. Hann spáir 1-2 útisigri Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Leiknir R. 1 - 2 Fylkir
Verður alvöru baráttuleikur í breiðholtinu nóg af gulum spjöldum en Fylkir Skorar winner á 82 min frá Eyþóri Wöhler.



Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust síðast á Fylkisvelli 27. maí í 6. umferð Lengjudeildarinnar. Fylkir hafði betur, 3-0, og tók öll stigin. Guðmundur Tyrfingsson kom Fylki yfir í fyrri hálfleik, Guðfinnur Þór Leósson tvöfaldaði forystuna eftir hlé og Guðmundur Tyrfingsson innsiglaði síðan sigurinn með sínu öðru marki í leiknum. Hægt er að sjá allt það helsta úr leiknum fyrir neðan.

Fyrir leik
Danskur dómari
Faruk Iriskic frá Danmörku er aðaldómari í dag. Honum til aðstoðar eru Egill Guðvarður Guðlaugsson og Anna Kjær Schmidt. Eftirlitsmaður er Gunnar Jarl Jónsson.

Fyrir leik
Gestirnir úr Árbæ
Fylkir hefur átt sterkt tímabil hingað til og verið í toppbaráttunni frá upphafi móts. Liðinu var spáð 2. sæti fyrir tímabilið af þjálfurum og fyrirliðum Lengjudeildarinnar og hefur að mestu staðið undir þeim væntingum. Sem stendur situr Fylkir í 2. sæti deildarinnar með 33 stig og eru í harðri baráttu um sæti í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heimamenn í Leikni
Leiknir hefur átt sveiflukennt tímabil í Lengjudeildinni hingað til. Liðið byrjaði ágætlega en hefur misst aðeins flugið að undanförnu og eru án sigurs í síðustu fimm deildarleikjum. Eins og staðan er nú situr Leiknir í 8. sæti deildarinnar með 19 stig. Þeim var spáð 9. sæti fyrir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Gott kvöld kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Leiknisvelli. Í kvöld eigast Leiknir og Fylkir við í 17. umferð Lengjudeildar karla.

föstudagur 7. ágúst
19:15 Afturelding-Grindavík (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 Leiknir R.-Fylkir (Leiknisvöllur)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.