Leik lokið!
Leik lokið með 2 - 0 sigri heimakvenna.
Skýrsla og viðtöl örlítið síðar.
92. mín
Aukaspyrna Fram
Rétt utan teigs fá Framarar aukaspyrnu. Sara tekur og hamrar boltann rétt yfir markið
92. mín
InnEmelía Blöndal Ásgeirsdóttir
ÚtErin Flurey
Skiptin hjá heimakonum
90. mín
þrjár mínútur í viðbót
88. mín
Dauðafæri
Elizabeth vinnur boltann á eigin vallarhelming og æðir upp völlinn, framhjá tveimur frömmurum og leggur svo boltann á Erin sem er í góðu færi en setur boltann yfir
84. mín
2 - 0
Erin Flurey
Margrét sendir Erin í gegn. Erin leikur á einn varnarmann og kemst ein á móti markmanni og setur boltann í Ashley og inn. Vel afgreitt83. mín
Gult spjald
Sveinn Leó Bogason
83. mín
Aukaspyrna og horn
Fram á aukaspyrnu úti vinstra megin sem endar sem horn hægra megin. Ekkert verður úr því
82. mín
Fyrirgjöf Þór/KA
Nú er það Þór/KA sem kemst upp og Erin á fyrirgjöf en of framarlega
81. mín
Fyrirgjöf
Fram brunar upp og Hlín fær hann hægra megin og kemur honum fyrir markið. Það skiptir hana engu hvort það er með hægri eða vinstri, fyrirgjafirnar eru ansi góðar. Þessi er skölluð framhjá.
79. mín
Fram skot
Fram brýst upp vinstra megin og kemur boltanum fyrir markið þar sem Sara mætir og setur boltann hátt yfir markið
78. mín
InnAgnes Birta Stefánsdóttir
ÚtAmalía Árnadóttir
Þór/KA skiptir líka
78. mín
InnFreyja Dís Hreinsdóttir
ÚtKatrín S. Vilhjálmsdóttir
Fram skiptir
77. mín
Framherjar á Þór/KA
Framliðið er að hressast og pressar á Þór/KA þessa stundina
74. mín
Fyrirgjöf Fram
Hlín kemst upp hægra megin og á enn eina góða fyrirgjöf sem Arna skallar í burtu. Í kjölfarið kemur skot yfir markið frá Söru
73. mín
Framsókn
Una fær boltann utan teigs, tekur skotið sem Margrét kemst fyrir, Fram heldur sókninni áfram og Hlín kemst inn í teig og á góða fyrirgjöf sem endar með skalla rétt framhjá
72. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Þór/KA gerir breytingu
70. mín
Horn Þór/KA
Þór/KA fær horn frá hægri. Hildur tekur eins og áður. Hún sendir boltann vel fyrir en Fram skallar í burtu
69. mín
Dauðafæri
Hildur fær langa sendingu inn fyrir og gerir vel að ná boltanum. Leggur hann út á Amalíu sem á skot beint á markmanninn. Þarna hefði hún átt að gera betur
68. mín
Aukaspyrna Fram
Fram fær aukaspyrnu vinstra megin og senda inn í teig á Allie
67. mín
Horn Þór/KA
Þór/KA fær horn frá vinstri. Tekið stutt og Hildur fær boltann aftur. Sendir fyrir og María skallar í markið en dæmd rangstæð. Þetta var tæpt svo ekki sé meira sagt.
62. mín
Góð sókn Þór/KA
Margrét leggur boltann inn fyrir á Amalíu sem snýr og kemur boltanum inn í teig á Erin sem gerir vel í að koma sér í færi en á skot yfir markið
59. mín
InnHlín Heiðarsdóttir
ÚtJúlía Margrét Ingadóttir
Skipting Fram
57. mín
Alda sleppur í gegn
Góð sending í gegnum vörn Þór/KA en Allie mætir og nær að slá boltann burt rétt á undan Öldu
56. mín
Fjör að færast í leikinn
Alda kemst upp hægra megin eftir að Sveinn nýtir hagnað og Alda kemur boltanum fyrir en Þór/KA hreinsar
54. mín
Færi Þór/KA
Amalía fær góðan bolta yfir Ashley á fjærstöng en nær ekki að stýra boltanum með höfðinu á markið
53. mín
Þór/KA komið yfir _ stoðsending Arna Sif
Karen Hulda Hrafnsdóttir
Hár bolti kemur inn í teiginn og Arna og Ashley fara upp í hann. Ashley missir boltann og Karen hirðir hann og nær að koma honum í markið í annarri tilraun50. mín
Fyrirgjöf
Þór/KA kemst upp hægra megin og María Dögg á góða fyrirgjöf en það vantar stelpu á fjærstöngina þannig að boltinn siglir út af
49. mín
horn Þór/KA
Horn frá hægri. Hildur tekur á nærstöng þar sem Margrét kemur á ferðinni og setur boltann framhjá
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Rólegur fyrri hálfleikur búinn
45. mín
Horn Fram
Fram fær horn frá hægri sem Una tekur beint á kollinn á Öldu sem skallar yfir.
45. mín
Gott skot Fram
Sara fær boltann út í teig eftir að Fram vill fá víti og á gott skot sem Allie ver í horn
44. mín
Fyrirgjöf
Enn ein fyrirgjöfin frá Huldu Ósk og enn ein markvarslan hjá Ashley
40. mín
Fyrirgjöf Þór/KA
Margrét vinnur boltann við eigin vítateig, kemur með hann upp völlinn og leggur svo til hægri á Huldu Ósk sem kemur með mjög góða fyrirgjöf en Ashley, sem fyrr, vel vakandi og nær að slá boltann í burtu
38. mín
Fyrirgjöf Fram
Katrín reynir fyrirgjöf frá vinstri en Arna Sif mætir og skallar burt og Þór/KA bruna upp í skyndisókn
37. mín
skot Þór/KA
Margrét reynir sendingu út á vinstri kant en fær hann af Framkonu og reynir þá skot sem Ashley á auðvelt með
33. mín
Aukaspyrna í Dboga Þór/KA
Erin tekin niður í miðjum D - boganum. Hildur Anna tekur og lætur vaða á markið. Ashley vel staðsett og grípur boltann. Vel gert.
32. mín
Rólegt
Það er búið að vera frekar rólegt yfir leiknum. Lítið um færi en þeim mun meiri barátta á miðjunni. Liðunum hefur ekki tekist að komast almennilega í gegnum varnir andstæðinganna.
31. mín
Framsókn
Fram kemst upp hægra megin en senda boltann aftur fyrir.
29. mín
Næstum sloppin
Hildur Anna sendir Erin í gegn en Emma er fljótari og nær að stöðva sendinguna rétt í þann mund sem Erin ætlaði að taka boltann með sér.
28. mín
Aukaspyrnan
Ekkert varð úr aukaspyrnunni
26. mín
Höfuðmeiðsl
Harpa Helgadóttir
Harpa brýtur á Hildi sem liggur eftir.24. mín
Aukaspyrna - Fram
Hendi dæmd á Þór/KA rétt utan vítateigs vinstra megin. Sara tekur en beint á Allie sem heldur boltanum.
22. mín
Horn Þór/KA
Hulda Ósk vinnur horn. Hildur Anna tekur og Margrét nær að skalla en framhjá
19. mín
Fyrirgjöf Þór/KA
Amalía kemst upp vinstra megin og á fína fyrirgjöf en engin er mætt til að skalla að marki.
17. mín
Gott skot Fram
Una fær boltann fyrir utan teig, fær nægan tíma til að leggja hann fyrir sig og á gott skot í hornið niðri nær. Allie ver boltann út til vinstri og hreinsað í innkast
15. mín
Gott færi Þór/KA
Hulda Ósk fær boltann úti hægra megin og fer með boltann framhjá varnarmönnum uns hún er fyrir miðju marki. Lætur þá vaða en skotið laust og auðvarið af Ashley
13. mín
Horn Fram
Þór/KA bjargar smá klafsi í horn sem Una tekur og sendir boltann aftur fyrir mark
11. mín
Sókn Þór/KA
Þór/KA kemst upp hægra megin, brotið á Elizabeth en hagnaður látinn gilda og Hulda Ósk komst upp að endalínu en fyrirgjöfin beint á Alshley
9. mín
Horn - Þór/KA
Þór/KA fær horn frá hægri sem ekkert verður úr.
7. mín
Aukaspyrna
Fram fær aukaspyrnu rétt utan teigs vinstra megin. Una tekur og sendir boltann í átt að marki en Allie er vel með á nótunum, eins og Iðnaðarbankinn og ver.
6. mín
Skot - Fram
Sara fær boltann við vítateig Þór/KA og á skot framhjá markinu.
5. mín
Framfæri
Taylor fær boltann inni við markteig og nær að snúa en varnarmaður kemst fyrir skotið
4. mín
Framsókn
Alda kemst upp vinstra megin en á háa sendingu fyrir sem Þór/KA skallar frá
2. mín
Rangstaða
Hildur Anna er send í gegn en naumlega rangstæð
1. mín
Leikur að hefjast
Þór/KA spilar til norðurs. Fram sparkaði þessu af stað.
Fyrir leik
300 leikir
Arna Sif náði því fyrr í sumar að spila leik númer 300 fyrir Þór/KA í deild, bikar, lengjubikar og Evrópukeppnum. Af því tilefni mun Birgir Örn Reynisson, varaformaður stjórnar Þórs/KA, afhenda henni sérmerkta treyju.
Fyrir leik
Breyting á byrjunarliði Fram
Brookelynn Paige meiddist í upphitun, var eitthvað tæp fyrir. Í hennar stað kemur Júlía Margrét Ingadóttir
Fyrir leik
Markaskor liðanna og markahæstar.
Bæði lið hafa skorað 18 mörk í deildinni og fengið á sig 25 (Þór/KA) og 27 (Fram) mörk þannig að búast má við jöfnum og spennandi leik.
Hjá Þór/KA eru þær Margrét Árnadóttir og Erin Flurey með fjögur mörk hvor.
Hjá Fram eru þær markahæstar Taylor Marie með 11 mörk og Alda Ólafs með 6 mörk.
Hjá Þór/KA eru þær Margrét Árnadóttir og Erin Flurey með fjögur mörk hvor.
Hjá Fram eru þær markahæstar Taylor Marie með 11 mörk og Alda Ólafs með 6 mörk.
Fyrir leik
Breytingar frá síðasta leik
Þór/KA gerir tvær breytingar á sínu liði eftir tap gegn Blikum. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir og Birgitta Rún Finnbogadóttir setjast á bekkinn og í þeirra stað byrja þær Erin Flurey og Hulda Ósk Jónsdóttir.
Fram gerir eina breytingu á sínu liði eftir sigur á Val. Kristín Magdalena Barboza fer á bekkinn og Katrín S. Vilhjálmsdóttir kemur í hennar stað.
Fram gerir eina breytingu á sínu liði eftir sigur á Val. Kristín Magdalena Barboza fer á bekkinn og Katrín S. Vilhjálmsdóttir kemur í hennar stað.
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Fram er í efri hluta bestu deildar eins og staðan er fyrir leik. Með sigri koma þær sér í góða fjarlægð frá neðstu þremur.
Þór/KA er í 8. og þriðja neðsta sæti og þurfa virkilega á sigri að halda til að þoka sér frá Val og Víking sem eru neðst. Um leið myndu þær auka verulega möguleikann á að spila í efri hlutanum stigi á eftir 6. sætinu.
Þór/KA er í 8. og þriðja neðsta sæti og þurfa virkilega á sigri að halda til að þoka sér frá Val og Víking sem eru neðst. Um leið myndu þær auka verulega möguleikann á að spila í efri hlutanum stigi á eftir 6. sætinu.
Fyrir leik
Síðustu leikir liðanna
Þór/KA hefur unnð Grindavík/Njarðvík og ÍBV en tapað fyrir Blikum og Stjörnunni í síðustu fjóru leikjum sínum.
Fram hefur unnið síðustu fjóra leiki, Breiðablik, Víking, Val og Þrótt og fengið þar 12 af sínum 16 stigum. Þær eru því á fljúgandi siglingu um þessar mundir.
Fram hefur unnið síðustu fjóra leiki, Breiðablik, Víking, Val og Þrótt og fengið þar 12 af sínum 16 stigum. Þær eru því á fljúgandi siglingu um þessar mundir.



