Lengjudeild karla
Grótta
LL 1
3
ÍR
Lengjudeild karla
Ægir
LL 0
7
Afturelding
Besta kvenna
Þór/KA
LL 0
1
Valur
Besta kvenna
FH
LL 0
1
Víkingur R.
Besta kvenna
ÍBV
LL 1
2
Þróttur R.
FH
0
1
Víkingur R.
0-1 Bergdís Sveinsdóttir '22
Ásdís Karen Halldórsdóttir '88 , misnotað víti 0-1
21.08.2026  -  18:00
Kaplakrikavöllur
Besta kvenna
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Maður leiksins: Telma Ívarsdóttir
Byrjunarlið:
12. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir ('63)
3. Anna Heiða Óskarsdóttir
5. Mackenzie Elyze Smith
7. Nia Raisa Christopher ('72)
13. Deja Jaylyn Sandoval
15. Hrönn Haraldsdóttir (f) ('72)
19. Hildur Katrín Snorradóttir
20. Ásdís Karen Halldórsdóttir
41. Ingibjörg Magnúsdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir ('17)
- Meðalaldur 20 ár

Varamenn:
1. Aldís Guðlaugsdóttir
8. Helena Maree Errington ('17)
16. Aldís Tinna Traustadóttir
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('72)
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('63)
33. Ragnheiður Th. Skúladóttir
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir ('72)
37. Jónína Linnet
39. Eva Marín Sæþórsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Guðni Eiríksson (Þ)
Harpa Finnsdóttir (Sjúkraþj.)
Valur Elli Valsson (Liðsstj.)
Arnar Sigþórsson (Leikgr.)
Dagur Óli Davíðsson (MÞ)
Brynjar Sigþórsson (AÞ)
Hjörtur Hinriksson (Styrktarþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Snæbjört Pálsdóttir
Skýrslan: FH-vélin þagnaði aftur í Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í kvöld var hreinlega bara baráttan og vinnusemin hjá Víking og tala nú ekki um Telmu Ívars sem datt heldur betur í gang og varði og varði. FH konur eru eitthvað að hiksta fram á við og það vantaði töluvert upp á í fremstu línu. Víkingur skoraði mark, FH ekki og þar við sat!
Bestu leikmenn
1. Telma Ívarsdóttir
Ekki hægt að velja neinn annan mann leiksins. Hélt hreinu í Kaplakrika gegn einu besta sóknarliði deildarinnar og varði vítaspyrnu undir lokin. Hún varði og varði, var róleg, örugg í öllum sínum aðgerðum og stjórnaði sínum konum fyrir framan sig!
2. Arna Ísold Stefánsdóttir
átti góðan leik í dag, hún lagði upp markið með góðri sendingu á Bergdísi. Var síðan bara dugleg, ákveðin og gaf ekkert eftir! Þórdís Hrönn, Áslaug Dóra og Emma fá líka shoutout fyrir góða frammistöðu!
Atvikið
Verð að setja þetta á vítaspyrnuna á 88. mínútu. FH fékk gullið tækifæri til að jafna þegar Ásdís Karen fór á punktinn. Telma Ívars hins vegar sá við henni. Þetta var augnablikið sem breytti góðum Víkingaleik í risastóran Víkings sigur.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta er risastór sigur fyrir Víking í botnbaráttunni. Liðið kom inn í leikinn á botni deildarinnar og hafði ekki unnið síðan í lok maí, en fór úr Kaplakrika með þrjú stig, hreint lak og helling af trú inn í lokasprettinn. Fyrir FH er þetta annað heimatapið í röð og annar leikurinn í röð þar sem liðið skorar ekki. Eftir að hafa tapað 0-3 gegn Breiðabliki í síðasta heimaleik var þetta annað högg fyrir FH-liðið, sem átti möguleika á að komast aftur á toppinn en náði ekki að nýta hann.
Vondur dagur
Sóknarleikur FH. Heimakonur komust í nóg af stöðum til að skora, sérstaklega eftir hlé, en það vantaði meiri ró, meiri grimmd og betri ákvarðanir á síðasta þriðjungnum. FH-liðið sem hefur skorað í hrönnum í sumar fór annan leikinn í röð án þess að koma boltanum í netið.
Dómarinn - 7
Ásmundur Þór Sveinsson stóð sig vel í dag, hann þurfti að taka stóra ákvörðun undir lokin þegar FH fékk víti. Vítaspyrnudómurinn var hárréttur og dómarateymið komst bara frekar vel frá leiknum. Þetta var mikill baráttuleikur og mikið verið að brjóta.
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (f)
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir ('79)
15. Saana Emilia Tuomala
17. Jasmín Erla Ingadóttir ('61)
18. Kristín Erla Ó Johnson
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
26. Bergdís Sveinsdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
35. Arna Ísold Stefánsdóttir ('86)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
41. Elizabeth Grace McClellan (m)
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
9. Thea Rhode ('61)
10. Selma Dögg Björgvinsdóttir ('86)
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('79)
13. Camilly Kristal Silva Da Rocha
19. Þórhildur Þórhallsdóttir
22. Birgitta Rún Yngvadóttir
34. Anika Jóna Jónsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Einar Guðnason (Þ)
Jóhanna Elín Halldórsdóttir (Liðsstj.)
Lisbeth Borg (Liðsstj.)
Jón Páll Pálmason (AÞ)
Shaina Faiena Ashouri (Leikgr.)
Mikael Uni Karlsson Brune (Styrktarþj.)
Sólveig Þórarinsdóttir (Sjúkraþj.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (MÞ)

Gul spjöld:
Saana Emilia Tuomala ('45)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('68)

Rauð spjöld: