Fotbolti.net
Besta deildin
Kristján Hrafn Kristjánsson
Besta kvenna
PEPSI völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 0
Þór/KA
Þór/KA
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai
Áhorfendur: 237
Leik lokið!
Markalaust jafntelfi niðurstaðan!
Lokatölur hér á Pepsi vellinum 0-0. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað en nokkur færi litu dagsins ljós.

Skýrsla væntanleg innan skamms.
Þór/KA
93. mín
InnHalla Bríet Kristjánsdóttir
ÚtHildur Anna Birgisdóttir
Þór/KA
93. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtErin Flurey
92. mín
Þór/KA nálægt því að stela þessu!
Erin Flurey kemst í gott færi inn á teig Þróttar en Mollee er snögg út og ver frá henni
90. mín
+3 mínútum bætt við
Þróttur R.
87. mín
Gult spjald

Sæunn Björnsdóttir

Stoppar skyndisókn með grófu broti.
Þróttur R.
84. mín
InnSierra Marie Lelii
ÚtKayla Marie Rollins
80. mín
10 mínútur eftir af venjulegum leiktíma, fáum við sigurmark og spennadi lokamínútur?

76. mín
Enn ein hornspyrna Þróttar, ná þær að nýta sér þessa? Nei er svarið.
71. mín
Dauðafæri!
Margrét Árnadóttir dettur ein í gegn og ætlar að fara framhjá Mollee í markinu en Mollee nær snertingu á boltann. Boltinn fer aftur í Margréti og afturfyrir.

Lang besta færi leiksins.
Þróttur R.
67. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
66. mín
Lauren Lapomarda á skalla í slánna en hún var dæmd rangstæð, eru gestirnir að vakna?
Þróttur R.
62. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
Bríet Fjóla kemur inn á gegn gömlu félögunum.
Þór/KA
59. mín
InnLauren Adrienne Lapomarda
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Þór/KA
59. mín
InnAmalía Árnadóttir
ÚtKaren María Sigurgeirsdóttir
Þróttur R.
58. mín
Gult á bekkinn hjá Þrótti

Jóhann Kristinn Gunnarsson

Sá ekki nákvæmlega hver. Svo þetta gæti verið rangt hjá mér.
Þróttur R.
58. mín
Gult spjald

Björg Gunnlaugsdóttir

58. mín
Skemmtilegur sprettur hjá Björgu Gunnlaugsdóttur sem endar á skoti beint á Alessöndru.
55. mín
Tíunda hornspyrna Þróttar og enn og aftur verjast Þór/KA þeim með prýði.
52. mín
Kate Cousins!
Hornspyrnan fyrir á Kate sem kemst góða skotstöðu. Kate tekur skotið en Þór/KA komast fyrir það og boltinn aftur fyrir.
51. mín
Þróttur fær fyrsta horn seinni hálfleiks.
50. mín
Þróttur meira með boltann hér í upphafi seinni hálfleiks en gera lítið með hann.
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Ronnarong bætir engu við
Rólegur fyrri hálfleikur að baki. Þróttur aðeins betri en Þór/KA hingað til.

Vonumst eftir meiri skemmtun og mörkum í seinnihálfleik.
42. mín
Þróttarar eru með yfirhöndina þessa stundina og eru mun líklegri en Þór/KA til að skora.
37. mín
Þróttur að láta til sín taka!
Kate Cousins á skot fyrir utan teig sem Þór/KA komast fyrir, boltinn berst síðan á Kaylu sem á skot að marki en Alessandra er snögg út og ver þetta mjög vel.
36. mín
Hættaaaaa!
Þróttur taka hornspyrnu fyrir sem ratar á Kate Cousins sem á skot að marki sem Alessandra sér seint en ver vel.
35. mín
Lítið um að vera þessa eins og er. Leikurinn hefur verið rólegur hingað til, en ég trúi ekki öðru en að það muni færast fjör í leikinn.
27. mín
Margét Árnadóttir tekur Kate Cousins niður á hættulegum stað.

Sæunn Björnsdóttir tekur spyrnuna, en hún er laus og Alessandra ver.
24. mín
Fyrri hálfleikur er rúmlega hálfnaður, það hefur verið nokkuð rólegt yfir þessu og leiknum vantar eitt mark eða dauðafæri til að kveikja á þessu.
23. mín
Kayla Rollins gerir vel að koma sér í gott skotfæri, skotið kemur en það er nokkuð þægilegt fyrir Alessöndru Augur í marki Þór/KA
18. mín
Færi!
Sigríður Thródóra fær boltann á fjærstönginni og setur boltann í hliðarnetið.

Heimakonur aðeins að vakna eftir rólega byrjun.
17. mín
Frábær varnarleikur!
Aftur kemst Hulda í góða stöðu og nú inn á teig heimakvenna en Mist Funadóttir mætir á svæðið með frábæra tæklingu og stoppar sókn Þór/KA
13. mín
Þróttur sækja sína fyrstu hornspyrnu í dag.

Allesandra Augur grípur spyrnuna þægilega.
10. mín
Hulda Ósk komst í góða stöðu á hægri kantinum en tapar boltanum. Þróttarar vinna boltann en eru klaufalegar og gefa horn.

Smá hætta í hornspyrnunni en Mollee gerði vel að kýla boltann frá.
5. mín
Rólegt yfir þessu fyrstu mínúturnar, liðin skiptast á að halda boltanum og leita leiða að marki andstæðingsins.
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur byrja þetta
Frábært veður og frábærar aðstæður, góða skemmtun.
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin tvö rölta til vallar ásamt dómurum. Að sjálfsögðu eru allir í sínum uppáhalds fótboltatreyjum til stuðnings krabbameinsveikra barna. Fallegt framtak!
Fyrir leik
Óbreytt hjá báðum liðum
Jóhann Kristinn Gunnarsson og Jóhann Hilmar Hreiðarsson þjálfarar liðana tveggja gera hvorugir breytingar á sínum liðum.

Þróttur vann sterkan sigur á ÍBV í síðustu umferð og Þór/KA töpuðu1-0 fyrir Val.
Fyrir leik
Spáin góða
Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmaður KR, tók að sér það verkefni að spá í leiki umferðarinnar.

Þróttur R. 0 - 1 Þór/KA (16:00 í dag)
Hörkuleikur milli tveggja liða sem eru neðar en þau vilja vera í töflunni. Arna Sif er alltaf hættuleg í teignum og setur sigurmarkið eftir horn.

Fyrir leik
Þór/KA hafði betur fyrr í sumar
Liðin tvö mættust í 9. umferð deildarinnar á Akureyri fyrr í sumar. Þar vann Þór/KA 2-0 sigur á Þrótti með mörkum frá Maríu Dögg Jóhannesdóttur og Amalíu Árnadóttur.



Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Fyrir leik
Nálægt falli en stutt í þægindin
Þór/KA sitja í 7. sæti Bestu deildar kvenna með 18 stig. Þremur stigum á eftir Þrótti sem eru eins og er í sæti um efri hlutann. Sömuleiðis er Þór/KA tveimur stigum frá fallsæti.

Sigur í dag myndi lyfta Þór/KA yfir Þrótt á markatölu og þá yrði Þór/KA í efri hlutanum og með það sæti í sínum höndum fyrir loka umferðina fyrir skiptingu.

Þróttur og Þór/KA gætu bæði endað í efri hlutanum ef úrslit Grindavík/Njarðvík í næstu tveim leikjum fara þeim í hag.

Í síðustu umferð fór Þór/KA í heimsókn á Hlíðarenda og töpuðu 1-0 fyrir Val.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Þróttur getur tryggt sér sæti í efri hlutanum
Eins og staðan er í dag er Þróttur í 6. sæti Bestu deildar kvenna með 21 stig. Það eru tveir leikir eftir að hefðbundu móti fyrir skiptingu.

Vinni Þróttur í dag tryggja þær sér sæti í efri hlutanum.

Í síðustu umferð gerði Þróttur góða ferð til Vestmannaeyja og vann 2-1 sigur á ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarakvarettið!
Dómari leiksins í dag er Ronnarong Wongmahadthai, honum til halds og traust eru Eysteinn Hrafnkelsson og Daníel Örn Arnarson. Fjórði dómari er Reynir Ingi Finnsson og eftirlitsmaður er Þorsteinn Ólafs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin í Laugardalinn!
Góðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu á leik Þróttar R. og Þór/KA í 17. umferð Bestu deildar kvenna. Leikar hefjast á slaginu 16:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.