Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Mjög góðar, gott veður í Grindavík og völlurinn fallegur
Grindavík
Grindavík
4 - 3
HK
HK
Rúnar Ingi Eysteinsson 6'1 - 0Aron Skúli Brynjarsson 25'2 - 0Heiðar Snær Ragnarsson 29'3 - 03 - 159' Atli Þór Gunnarsson3 - 261' Dominik Radic3 - 376' Birgir Steinn StyrmissonMikael Máni Þorfinnsson 92'4 - 3
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Kornungur Grindvíkingur skoraði mikilvægasta mark félagsins í mörg ár

Hvað réði úrslitum?

Grindvíkingar þurftu meira á sigrinum að halda og eftir að hafa verið kýldir niður með þremur mörkum HK-inga stóðu þeir upp og náðu inn sigurmarkinu í lokin.

Bestu leikmenn

1. Mikael Máni Þorfinnsson

Skorar þetta gríðarlega mikilvæga mark í uppbótartíma. Fæddur 2010, unglingalandsliðsmaðru og skorar sitt fyrsta meistaraflokksmark í uppbótartíma. Þetta mark gæti reynst svo ótrúlega dýrmætt fyrir Grindavík.

2. Aron Skúli Brynjarsson

Skoraði eitt og átti stóran þátt í öðru marki. Fysta markið hans í Lengjudeildinni á ferlinum. Vinstri fóturinn á Ívari Erni, Eysteinn Rúnarsson og Ibra Camara fá einnig tilnefningu.

Atvikið

Sigurmarkið í uppbótartíma, þvílíkt augnablik í Grindavík.

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík er með fjögurra stiga forskot á Völsung en Völsungur á leik til góða sem nú er í gangi. Grindavík á vonlaust lið Ægis í lokaumferðinni og ætti að klára það verkefni. HK endar í 4. eða 5. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Ólafur Örn í marki HK var oft á tæpasta vaði aftast og oft fannst mér það alveg óþarfi. Set spurningarmerki við hann í fyrsta markinu en gat ekkert gert í hinum mörkunum. Var magnaður í síðustu umferð, smá jarðtenging núna.

Dómarinn - 8

Mér fannst Twana dæma þennan leik mjög vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.