Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Stemning og solid veður
Afturelding
Afturelding
2 - 0
Vestri
Vestri
Joacim Emil Godhei Holtan 42'1 - 0Bart Kooistra 94'2 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
AFTURELDING VINNUR LENGJUDEILDINA!
2-0 SIGUR STAÐFEST. TITILL STAÐFEST.
SÆTI Í BESTU DEILDINNI STAÐFEST.
Ekki fallegasti leikurinn en Afturelding gerir það sem þurfti að gera og fullkomna daginn einfaldlega.
Til hamingju Afturelding og Mosfellsbær.
Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma inn á eftir.
Afturelding
94. mín
ÞETTA ER KOMIÐ!

Bart Kooistra

Eitthvað klikk í spilinu hjá vörn Vestra og skotið hjá Bart lekur í netið.
93. mín
Birkir Eydal með kapphlaupi við tvö Mosó brósa í algjöru skyndihlaupi en nær einhvern veginn að loka þessu og ekki dæmt á hann.
91. mín
Brotið á Gunnar Bergmann
Framarlega á vellinum en þeir eru varla að fara fórna miklu í þessar spyrnu.
90. mín
+4mín í uppbót
Komnar 90 á klukkuna!

Heimamenn að halda boltanum við horn fána í sókn en markspyrna núna
88. mín
WE ARE GOING UP!
Syngja stuðningsmenn Aftureldingar sem hafa verið kröftugir líkt og leikmennirnir á vellinum.
86. mín
Vestri hefur átt boltann síðustu mínútur en þeir hafa ekkert náð að gera með hann.

Afturelding hefur ekki þurft að hafa mikið fyrir varnarleiknum.
Afturelding
84. mín
Gult spjald

Sævar Atli Hugason

Afturelding
82. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
78. mín
Boltinn rétt framhjá!
Sending í teiginn og Bart kemur honum rétt utan við stöngina. Joacim Holtan nálægt að komast í hann áður en hann fór útaf.
Vestri
76. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtMarcos Campos Fernandez Marcote
Vestri
75. mín
Gult spjald

Marcos Campos Fernandez Marcote

74. mín
Þetta hefur lífgað upp á heimamenn eftir þetta færi. Komnir ofar á völlinn og sáu mögulega að það væri vel nice að komast tveimur mörkum yfir.
71. mín
VARSLAAAAAAA
DAUÐAFÆRI hjá Aftureldingu að komast í 2-0 Birkir Már mögulega of óeigingjarn og sendir boltann einn á móti Snædal til Kidda Frey sem reynir að kloppa markmanninn en vel gert hjá Benedikt Snædal sem lokar á þetta.
70. mín
Bart með skot!
Ekki verið safaríkur seinni hálfleikur en þarna komust heimamenn í sókn og Bart Kooistra tekur nokkuð erfitt skot sem hann skrúfar rétt yfir nærskeytinn.
Vestri
65. mín
InnThibang Sindile Theophilius
ÚtDevyn Payne
Afturelding
65. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtÓðinn Bjarkason
62. mín
Myndir
Vallarmet slegið en það eru að minnsta kosti 1200manns á vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

62. mín
Hornspyrna fyrir Vestra
Elmar Atli sækir horn.
Arnar Daði hugrakkur og kýlir boltann út og í innkast.
61. mín
Vestri aðeins líflegri þessar mínúturnar, sést svo sem alveg að þetta dugar fyrir Aftureldingu og þeir virðast svolítið ekki vilja klúðra þessu.
Afturelding
59. mín
Gult spjald

Bart Kooistra

Vestri
58. mín
InnEmmanuel Agyeman Duah
ÚtGunnar Jónas Hauksson
Vestri
58. mín
InnBirkir Eydal
ÚtSergine Modou Fall
55. mín
Holtan með skot
Aron Elí kemur honum á Holtan sem reynir erfitt skot sem kemst þó að markinu en Benedikt Snædal alveg með þetta.
51. mín
Nokkuð róleg byrjun á seinni hálfleik, dæmt brot á sóknarmann Aftureldingar þegar hann var að fá sendingu inn fyrir.

Smá markmanna tennis í gangi.
47. mín
Fyrsta færi í seinni er Vestra
Balde með skalla en yfir markið fer boltinn.
46. mín
Seinni hálfleikur af stað!
Staðan einsog er þá er Afturelding aftur á leiðinni í Bestu Deildinna, en 45 mínútur af fótbolta framundan og við þekkjum öll hvað fótbolti getur gert á 45mín.

Vestri eiga upphafssparkið fyrir seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Afturelding leiðir í hálfleik!
Mosfellsbær er ekkert að grínast í dag, komið vallarmet en yfir 1200 manns eru mætt og líklegast bætist bara í mannskapinn.
Að leiknum þá verður bara að segjast að Afturelding á þetta skilið, komið boltanum í netið þrisvar. Vestra menn þó alveg verið sterkir en vantað smá upp á í sókninni.
Afturelding
42. mín
Þetta telur! 1-0!!!

Joacim Emil Godhei Holtan (stoðsending: Aron Elí Sævarsson)

Fínt spil og fullkominn sending í fæturnar á Holtan sem kann ekkert annað en að smella honum í netið.

Glæsileg stoðsending og óverjandi skot.

41. mín
Styttist í hálfleik, Afturelding verið betri en Vestri eru alveg gíraði í þetta verkefni. Tel þá samt heppna líka og heimamenn á sama tíma svangir í að komast sem fyrst yfir í þessum leik.
38. mín
Benedikt Snædal með vörslu, hefur verið fínn en líka heppinn að mörkin hafa ekki talið hjá Aftureldingu.
34. mín
Rangstöðu mark eða boltinn útaf!
Aftur eru heimamenn óheppnir. Skora en boltinn líklegast farinn útaf þegar skallinn kemur út í teiginn við endalínuna og Bart Kooistra skallar í netið.
33. mín
Balde hreinsar aukaspyrnu yfir markið og í horn.
29. mín
Arnar Daði með sópinn
Ibrahima Balde með góða takta og svo fína sendingu milli varnarmann heimamanna en Breki Þór of hægur og Arnar Daði kemur út og hirðir boltann.
24. mín
Sergine Fall með skemmtilegan sprett en boltinn endar of framarlega og Arnar Daði hrifsar þetta upp.
23. mín
Axel Óskar á að kasta þessu innkasti í teiginn.

Fór beint í hendurnar á Benedikt Snædal.
21. mín
Bjarga af línu!
Skot frá að mér sýndist Holtan er bjargað af línu síðan kemur skalli sem er eiginlega líka bjargað frá línu.

Fá innkast hinu meginn.
20. mín
Fyrsta horn er Aftureldingar
Kristinn Freyr tekur.
18. mín
Vestra sókn
Komnir í fínan takt við boltann og búnir að rúlla honum milli allra leikmanna, Afturelding aðeins búnir að bakka.

Endar með vonlausu skoti frá Elmari sem fer yfir.
11. mín
Joacim Holtan fær högg
Önnur aukaspyrna eftir að leikmaður Vestra virðist fara eitthvað í andlitið á honum. Ekkert spjald og aukaspyrnan fer í gegnum allan pakkann
9. mín
Boltinn í netið en dæmt brot!!!
Aukaspyrnan á fjær og Andi Hoti skallar hann í netið en það er dæmt brot á hann.

Var með einhverja tvö menn á sér og mikið klafs.
8. mín
Heimamenn fá aukaspyrnu í fínri fyrirgjafar stöðu á vinstri kantinum.

Senda skallamennina í teiginn.
7. mín
Fyrsta skotið
Fyrsta skot leiksins er Vestra en það flýgur hátt yfir mark Aftureldingar.
5. mín
Snædal þægilegur
Birkir Már reynir að koma boltanum fyrir markið en það er ekkert varið í það og Benedikt Snædal léttur á fæti og rennur sér á þetta, enginn hætta.
4. mín
Balde og Selvén í fínu spili fram á við en ná ekki að skapa neitt.
3. mín
Afturelding stjórnar boltanum
Byrjaði af krafti hjá heimamönnum en aðeins búnir að stilla sig og halda í boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Afturelding reynir við dollu og sæti í Bestu!!!!
Við erum kominn í gang hér og Aftureldinga eiga upphafssparkið.

Sigur fyrir heimamenn og þeir fara aftur í Bestu Deildina!
Fyrir leik
Liðin gang á völlinn
Það er hörku stemning í mosó og liðinn eru mætt á völlinn. Aftureldingar leikmenn í flottum treyjum enda treyjudagar.

Ég ætla lofa skemmtun það er bara svoleiðis, það er góður dagur í dag.
Fyrir leik
Síðast þegar liðin mættust
Það var í 10.umferð þar sem Afturelding fór til Ísafjarðar og mætti Vestra. Þar voru það heimamenn sem unnu 2-0 sigur. Emmanuel Duah skoraði fyrsta mark leiksins á 72.mín og Breki Þór Hermannsson innsiglaði svo sigurinn með marki á 93.mín.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Guðbjörn Smári Birgisson, fyrirliði Hvíta riddarans spáði fyrir næst síðustu umferð Lengjudeildarinnar og þar með talið leik dagsins í Mosfellbæ. Afturelding 3 - 1 Vestri
„Bæjarhátíðs leikur í Mosó og Afturelding getur tryggt sér upp um deild og dollu í leiðinni. Leikurinn verður fjörugur og skemmtilegur þar sem Bjartur Bjarmi tekur þrennuna - Mark, stoðsendingu og gult. Hin mörk mosfellinga skora Holtan og Óðinn Bjarka."
Fyrir leik
Vestri
Það eru engir aðrir en bikarmeistararnir frá því í fyrra frá Ísafirði, Vestri. Sem fá það verðuga verkefni að reyna stöðva partýið í Mosó. Það er gott sem ekkert fyrir Vestra að berjast fyrir töflulega séð. Liðið kemst ekki í umspilssæti og er öruggt frá falli.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þeir unnu 2-0 sigur á heimavelli gegn Leikni í síðustu umferð en Jacob Stensson fékk að líta beint rautt eftir leik og er eini leikmaðurinn í þessum leik sem tekur út leikbann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Afturelding
Heimaleikur með bæjarhátíð í fullum gangi hjá Mosó. Titill og sæti í Bestu Deildinni í boði. Það er varla hægt að biðja um betri uppstillingu á svona stórum degi. Sigur fyrir Aftureldingu þýðir einfaldlega fullkominn dagur. Jafntefli þá er þetta eiginlega komið þökk sé markatölunni. Tap og Afturelding þarf að sækja 1.sætið í útileik gegn Njarðvík í síðustu umferð Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eldingin er að koma á góðu skriði í leikinn hér í dag. 2-0 sigur gegn Gróttu á Þriðjudaginn og þar áður þæginlegur 7-0 sigur á Ægir í Þorlákshöfn.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Joacim Holtan er markahæstur leikmaður Lengjudeildarinnar með 15mörk en hann skoraði einmitt bæði mörk Aftureldingar í síðustu umferð. Holtan var fenginn í spjall nýlega til að fara yfir stöðuna og sumarið.
Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason er á flautunni.
Aðstoðardómarar 1 og 2 eru þeir Mikael Ívan Axelsson og Ragnar Arelíus Sveinsson.
Dómaraeftirlitsmaðurinn er Þórður Ingi Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
RISA LEIKUR Í LENGJUDEILDINNI
Nóg um að vera í Mosfellsbæ um þessar mundir og Malbikstöðin að Varmá tekur heldur betur þátt. Það er Afturelding sem fær Vestra í heimsókn. Titill og sæti í Bestu Deildinni í boði fyrir Aftureldingu hér í dag. Næst síðasti leikur liðanna í deildinni þetta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.