Fotbolti.net
Besta deildin
Kristján Hrafn Kristjánsson
Besta kvenna
PEPSI völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 0
Þór/KA
Þór/KA
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai

SKÝRSLAN: Markalaust jafntefli í Laugardal og mikil spenna á botninum

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var lokaður nánast allan tíman og liðin sköpuðu lítið af færum. Á móti má segja að liðin hafi spilað góðan varnarleik og varið mark sitt vel. Þróttur fengu ótal hornspyrnur í dag sem þær eru mjög líklega svekktar að hafa ekki nýtt sér betur.

Bestu leikmenn

1. Alessandra Dorothy Augur

Alessandra var flott í markinu hjá Þór/KA í dag. Hún átti nokkrar flottar vörslur og ég veit ekki hversu oft hún kom út úr markinu til að grípa inn í eða kýla fyrirgjafir Þróttar í burtu.

2. Mist Funadóttir

Mist spilaði góðan leik í vinstri bakverðinum hjá Þrótti í dag. Þór/KA sóttu ekki mikið en hún var á réttum stað og stoppaði þeirra sóknir.

Atvikið

á 71 mínútu komst Margrét Árnadóttir í dauðafæri einn á móti markmanni og reyndi að fara framhjá Mollee í marki Þróttar. Mark þarna hefði gert mikið fyrir leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur er ennþá í 6. sæti deildarinnar en nú eru Fram konur komnar tveim stigum frá þeim og Þór/KA er ennþá þrem stigum frá. Það þýðir að Þróttur er ekki búið að tryggja sér sæti í efri hlutanum en eru í bílstjórasætinu.
Þór/KA eru nú nær falli en efri hlutans eftir úrslit dagsins, Víkingur og Fram unnu bæði sem þýðir að nú eru Valskonur neðstar með 16 stig og Þór/KA tveim stigum frá þeim.

Vondur dagur

Kayla Marie Rollins spilaði frammi hjá Þrótti í dag og komst aldrei í takt við leikinn.

Dómarinn - 6

Ronnarong og teymið dæmdi leikinn ágætlega. Það er lítið hægt að setja út á þeirra frammistöðu enda var lítið um stór atvik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.