Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
0 - 0
Vestri
Vestri
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Fyrir leik
Síðast þegar liðin mættust
Það var í 10.umferð þar sem Afturelding fór til Ísafjarðar og mætti Vestra. Þar voru það heimamenn sem unnu 2-0 sigur. Emmanuel Duah skoraði fyrsta mark leiksins á 72.mín og Breki Þór Hermannsson innsiglaði svo sigurinn með marki á 93.mín.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Guðbjörn Smári Birgisson, fyrirliði Hvíta riddarans spáði fyrir næst síðustu umferð Lengjudeildarinnar og þar með talið leik dagsins í Mosfellbæ. Afturelding 3 - 1 Vestri
„Bæjarhátíðs leikur í Mosó og Afturelding getur tryggt sér upp um deild og dollu í leiðinni. Leikurinn verður fjörugur og skemmtilegur þar sem Bjartur Bjarmi tekur þrennuna - Mark, stoðsendingu og gult. Hin mörk mosfellinga skora Holtan og Óðinn Bjarka."
Fyrir leik
Vestri
Það eru engir aðrir en bikarmeistararnir frá því í fyrra frá Ísafirði, Vestri. Sem fá það verðuga verkefni að reyna stöðva partýið í Mosó. Það er gott sem ekkert fyrir Vestra að berjast fyrir töflulega séð. Liðið kemst ekki í umspilssæti og er öruggt frá falli.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þeir unnu 2-0 sigur á heimavelli gegn Leikni í síðustu umferð en Jacob Stensson fékk að líta beint rautt eftir leik og er eini leikmaðurinn í þessum leik sem tekur út leikbann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Afturelding
Heimaleikur með bæjarhátíð í fullum gangi hjá Mosó. Titill og sæti í Bestu Deildinni í boði. Það er varla hægt að biðja um betri uppstillingu á svona stórum degi. Sigur fyrir Aftureldingu þýðir einfaldlega fullkominn dagur. Jafntefli þá er þetta eiginlega komið þökk sé markatölunni. Tap og Afturelding þarf að sækja 1.sætið í útileik gegn Njarðvík í síðustu umferð Lengjudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eldingin er að koma á góðu skriði í leikinn hér í dag. 2-0 sigur gegn Gróttu á Þriðjudaginn og þar áður þæginlegur 7-0 sigur á Ægir í Þorlákshöfn.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Joacim Holtan er markahæstur leikmaður Lengjudeildarinnar með 15mörk en hann skoraði einmitt bæði mörk Aftureldingar í síðustu umferð. Holtan var fenginn í spjall nýlega til að fara yfir stöðuna og sumarið.
Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason er á flautunni.
Aðstoðardómarar 1 og 2 eru þeir Mikael Ívan Axelsson og Ragnar Arelíus Sveinsson.
Dómaraeftirlitsmaðurinn er Þórður Ingi Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
RISA LEIKUR Í LENGJUDEILDINNI
Nóg um að vera í Mosfellsbæ um þessar mundir og Malbikstöðin að Varmá tekur heldur betur þátt. Það er Afturelding sem fær Vestra í heimsókn. Titill og sæti í Bestu Deildinni í boði fyrir Aftureldingu hér í dag. Næst síðasti leikur liðanna í deildinni þetta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.