Fyrir leik
Tveir í banni hjá HK
Þeir Arnþór Ari Atlason og Atli Hrafn Andrason taka út leikbann hjá HK í dag.

Fyrir leik
Enn einu sinni 0-0?
Guðbjörn Smári Birgisson er spámaður umferðarinnar. Hann spáir sjöunda markalausa jafntefli Grindavíkur í sumar.
Grindavík 0 - 0 HK
Enn eina markalausa jafnteflið hjá Grindavík. Þeir verða einbeittir að halda markinu sínu hreinu í þessum leik eftir skellinn gegn Fylki og uppskera 1 stig.
Grindavík 0 - 0 HK
Enn eina markalausa jafnteflið hjá Grindavík. Þeir verða einbeittir að halda markinu sínu hreinu í þessum leik eftir skellinn gegn Fylki og uppskera 1 stig.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Twana Khalid Ahmed er með flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Kári Mímisson og Bergur Daði Ágústsson. Dómaraeftirlitsmaður er Sigurður G Friðjónsson.

Fyrir leik
Allt undir hjá Grindavík
Grindavík er í 10. sæti deildarinnar með 21 stig, stigi meira en Völsungur sem er í fallsæti. Sigri Grindavík í dag og Völsungur sigrar ekki ÍR þá tryggir Grindavík sætið sitt í deildinni.
HK er í 4. sæti og mun enda í 4. eða 5. sætinu þegar deildarkeppninni lýkur. Liðið mætir því annað hvort 2. eða 3. sætinu í undanúrsitum umspilsins.
HK er í 4. sæti og mun enda í 4. eða 5. sætinu þegar deildarkeppninni lýkur. Liðið mætir því annað hvort 2. eða 3. sætinu í undanúrsitum umspilsins.

Fyrir leik
Velkomin á Stakkavíkurvöll
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Grindavíkur og HK í 21. umferð Lengjudeildarinnar.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 og fer fram á Stakkavíkurvelli.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 og fer fram á Stakkavíkurvelli.





