Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Mjólkurbikar kvenna
Laugardalsvöllur
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
1 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
Ása Björg Einarsdóttir 69'1 - 01 - 176' Sæunn Björnsdóttir (víti)1 - 282' Unnur Dóra Bergsdóttir
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Þróttur eru MJÓLKUBIKARMEISTARAR 2026!
Þróttarar taka þennan leik 1-2 og eru mjólkurbikarmeistarar 2026!

Takk fyrir samfylgdina, einkunnir og viðtöl koma á síðunna innan skamms!
96. mín
runnið út í sandinn?
Emma Nicole reynir langan bolta inn fyrir á Sana og Ásu en þær ná ekki til boltans
96. mín
Bríet og Unnur Dóra taka hornið stutt reyna að tefja en missa boltann
94. mín
Tvær mínútur sem þróttur þarf að halda út!
94. mín
Bríet Fjóla kemst fram hjá Sophia og reynir fyrirgjöf en hún fer ekki á neinn
92. mín
Hannah brýtur á Bríeti, Sæunn og Unnur reyna að taka þetta stutt en þetta er eitthvað voðalega klaufalegt hjá þeim og þær missa boltann útaf
91. mín
2.318 manns mættir á völlinn í dag!
90. mín
A.m.k. 6 mínútur hér í uppbótartima það er ekki öll von úti enn hjá Gri/Nja!
Þróttur R.
90. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
89. mín
Tinna með hornið á fjær, Emma Nicole n ær skallanum en Mollee að verja eins og herforingi og tekur þennan skalla í fangið
88. mín
Tinna Hrönn tekur hornið, setur hann á fjær þar eru kanónur sem rétt missa af skallanum en annað horn dæmt!
88. mín
MOLLEEEEEEE!
Þvílik markvarsla! Kemur í veg fyrir að Sophia nái að jafna fyrir Gri/Nja
86. mín
Miðvörðurinn Emma Nicole Phillips er komin upp á topp hjá Gri/Nja það er spurning hvort það takist eins vel og fyrr í sumar þegar hún setti fernu!
Grindavík/Njarðvík
84. mín
InnSanta Sanija Vuskane
ÚtElísa Birta Káradóttir

Þróttur R.
82. mín
ÞRÓTTUR AÐ KOMAST YFIR!

Unnur Dóra Bergsdóttir (stoðsending: Björg Gunnlaugsdóttir)

Björg finnur Unni Dóru aleina inn í teignum og hún bara getur ekki annað en þakkað fyrr sig og skorað!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
82. mín
Báðar staðnar á fætur, þetta er í þriðja sinn sem Mollee lendir í hörku hnjaski,
81. mín
Mollee í baráttu um boltann skutlar sér á hann og tekur Tinnu Hrönn niður í leiðinni, þær liggja hér báðar eftir óvígar
80. mín
Markið hennar Ásu var fangað á mynd
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þróttur R.
77. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtKayla Marie Rollins
Þróttur R.
77. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtSierra Marie Lelii
Þróttur R.
76. mín
SÆUNN JAFNAR!

Sæunn Björnsdóttir

Sæunn var öryggið uppmálað og setur þetta öruggt niðri í vinstra hornið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
75. mín
VÍTI dæmt á GRI/NJA!
Elísa Birta brýtur inn í teig, Sæunn fer á punktinn
74. mín
Mist reynir fyrirgjöf en hún fer yfir markið
73. mín
Kayla Marie Rollins kemst heldur betur í færi til að jafna leikinn en skotið hennar er laust og Taylor Fox handsamar hann auðveldlega
Grindavík/Njarðvík
69. mín
ÞAR KOM AÐ ÞVÍ!

Ása Björg Einarsdóttir

Hrafnhildur Salka finnur Sophiu í frábærri stöðu, hún hins vegar ákveður að setja hann fyrir í stað þess að skjóta, Tinna Hrönn rétt missir af honum en ekki ÁSA BJÖRG! Hún leggur hann fyrir sig áður en hún leggur hann í fjærhornið!!

Grindavík/Njarðvík taka hér forystu!

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

68. mín
Mollee vel vafinn á vinstra lærinu en áfram gakk!
67. mín
Mollee þarf frekari aðhlynningu það er spurning hvort hún nái að klára þennan leik?
66. mín
Tinna Hrönn með stungusendingu úr efstu hillu! finnur það Sophiu en Mollee er grimm og meur vel út á móti, boltinn upp í loft, Sophia nær honum aftur en færið mjög þröngt og hún er ekki í jafnvæi og boltinn yfir!
65. mín
Katie Cousins með skot sem allir sjá í köttara stúkunni sjá inni en framhjá fór boltinn þrátt fyrir mikil fagnaðarlæti!
64. mín
Björg reynir skot fyrir utan teig en Taylor sem fyrr á ekki í neinum vandræðum með það
63. mín
Sierra reynir fyrirgjöf en Taylor Fox grípur þetta örugglega
61. mín
Mollee er klár og við höldum áfram
59. mín
Mollee þarf aðhlynningu eftir þetta brot, leit alls ekki vel út
Grindavík/Njarðvík
58. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
Grindavík/Njarðvík
58. mín
InnTinna Hrönn Einarsdóttir
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
Grindavík/Njarðvík
57. mín
Gult spjald

Júlía Ruth Thasaphong

Er alltof sein í tæklingu og straujar Mollee í markinu.
57. mín
María Eva fær tiltal eftir harkalegt samstuð við Elísu Birtu en hún sleppur við skrekkinn
56. mín
Sierra reynir skot af löngu færi en það er rétt yfir, ekki galin tilraun þarna!
54. mín
ÚFFFFF
Boltinn berst til Ásu inn í teignum, hún fellur við að mér sýnist eftir tog frá Mist og allir í Gri/Nja stúkunni öskra víti! Þórður hins vegar vill ekki meina neitt brot
52. mín
Sophia Faith finnur Ásu Björg innfyrir, hún nær fyrirgjöfinni en Þróttarar koma þessu frá, Gri/Nja hins vegar fljótar að komast aftur í boltann sem endar með skoti frá Ellie Coffield en það er yfir markið
51. mín
Unnur Dóra gerist brotleg og er alveg steinhissa en Þórður dómari er alveg viss í sinni sök
49. mín
Brotið á Emmu Fanndal, Natasha setur boltann langann fram
48. mín
Elísa Birta með frábæran sprett upp allan kantinn, tekur svo gabbhreyfinguna og reynir skotið en það er aðeins of laust og Mollee á ekki í neinum vandræðum með það. Þarna hefði þurfti fleiri hvítar treyjur í teignum!
47. mín
Sæunn tekur aukapyrnu fyrir Þrótt á miðjum vallarhelmingi Gri/Nja en ekkert kemur úr þessu
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Júlía Ruth sparkar þessu aftur af stað fyrir okkur
45. mín
Hálfleikur
0-0 í hálfleik!
Ekkert mark skorað í fyrri hálfleik og staðan því jöfn þegar liðin ganga til búningsklefa!

Þróttur byrjaði leikinn af krafti og átti hverja sóknina af fætur annarri. Þær gáfu þó eftir og Grindavík/Njarðvík náðu að vinna sig meira og meira inn í leikinn, allt þær til þær hreinlega tóku hann yfir! Þær voru mun líklegra liðið þegar leið á á

Það verður því gaman að sjá hvernig liðin koma út í seinni hálfleikinn! Eitthvað þarf allavega að gerast til að annað liðið lyfti bikarnum!
45. mín
Fáum við mark fyrir lok fyrri hálfleiks?!?!
43. mín
ÚFFF
Vel spilað hjá Gri/Nja sem endar með skoti frá Hannah en boltinn rétt yfir, "Liggur í loftinu" er sungið í Gri/Nja stúkunni
42. mín
Horn!
Ása Björg vinnur horn fyrir Grindavík/Njarðvík, Birta setur boltann út í teiginn en þar kemur enginn önnur en Kate Cousins sem á flugskalla og kemur boltanum frá!
41. mín
Elísa Birta með fínan sprett, finnur Hannah en sú er alltof lengi að athafna sig og gefur boltann til baka á Ellie sem reynir að finna leið fram á við á ný en ekkert kemur úr þessu
40. mín
Katie Cousins, mundar skotfótinn, en Emma Phillips er sannarlega mætt í dag til að verja sitt mark og stekkur upp og skallar skotið frá
37. mín
Birta brýtur á Katie Cousins, hún er fljót að spila úr þessu
36. mín
Passssssa sig
Mist stálheppin að fjúka ekki útaf hérna, bæði rífur í og fellir Sophia Faith og hún er á gulu spjaldi!
35. mín
Unnur Dóra brýtur á Ellie Coffield við miðjubogann, þær senda þetta til baka og reyna að byggja upp sókn frá öftustu línu
33. mín
Mist brýtur á Ásu á kantinum, hún ætlar ekki að hleypa Ásu eitt fet í dag.

Gri/Nja konur taka þetta stutt
29. mín
Ása Björg kemst upp kantinn er stöðvuð af Mist sem setur hann útaf
28. mín
Mikil stöðubarátta þessa stundina og það er greinilegt að spennustigið er hátt hjá báðum liðum
24. mín
Birta með aukaspyrnu fyrir Gri/Nja út á vinstri kanti við miðjulínuna, setur boltann á fjær þar sem Emma Nicole fær hann í sig en boltinn skoppar framhjá markinu
22. mín
Natasha aftur í baráttunni við Kaylu Rollins, sú síðarnefnda hefur náð að nýta hraðann, Natasha hins vegar kann alveg á þennan leik og nær að hreinsa boltann útaf með frábærri tæklingu
18. mín
Birta tekur aukaspynruna og Hannah nær skallanum en hann er yfir
Þróttur R.
17. mín
Gult spjald

Mist Funadóttir

Stöðvar Ellie Coffiled sem var við það að sleppa í gegn eftir frábært samspil hjá Emmu Fanndal
16. mín
Mislukkuð sending til baka hjá Hannah sem Kayla Marie kemst inn í, setur boltann á Björgu en hún missir boltann klaufalega frá sér. Gri/Nja Stálheppnar þarna
15. mín
Þróttur fær aukaspyrnu sem Sæunn setur á miðjann teiginn, þar er barátta sem enda með að Þróttar setja boltann bæði hátt yfir og framhjá markinu
13. mín
Júlía Ruth gerir vel, með flottar gabbhreyfingar reynir að finna Ellie inn fyrir en Ellie ekki alveg nógu vakandi í þetta skiptið
10. mín
Við heyrum hér ljúfa tóna í stúkunni
En tónlistar og fréttamaðurinn Sigurbjörn Daði spilar á gítar í stúku Gri/Nja! Greinilega margt til lista lagt

Hann var einnig mættur með gítarinn á Bikarúrslitum Karla 2017 þegar ÍBV vann FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
9. mín
horn
Sæunn með hornið fyrir Þrótt en sóknarbrot dæmt inn í teignum
8. mín
Natasha missir Kaylu framúr sér en það kom ekki að sök þar sem Emma Phillips hleypur hana uppi og setur hann út fyrir endalínu
8. mín
Ása Björg kemst á sprettinn en Sæunn með frábæra tæklingu stöðvar hana
7. mín
Sierra reynir að lauma boltanum inn á Kaylu Marie en Taylor Fox er vel vakandi og hirðir boltann
4. mín
JEEEEEEEESÚS
Þróttarar ná hér 3x hálfskotum inn í TEIG!! Katie Cousins, Kayla Marie og Unnur Dóra en inn vill boltinn ekki og Gri/Nja fleygja sér fyrir hvert skotið, fjórða skotið síðan yfir markið og hættunni þar með bægt frá
3. mín
Fyrsta horn leiksins
Sæunn tekur fyrsta horn leiksins, setur hann í pakkann á teignum Taylor reynir við hann en missir af honum, hann berst svo út en Ása Björg er fyrst á boltann og kemur honum frá
1. mín
Hasar hérna á fyrstu mínútu! Þróttarar koma sér í fína stöðu en Kayla brýtur þá á Natöshu inn í teig Gri/Nja og sóknin þar með úr sögunni
1. mín
Leikur hafinn
Kayla Marie Rollins sparkar þessu af stað fyrir okkur!
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn
Grindavík/Njarðvík eru Hvítar-svartar-hvítar og Þróttur eru dimmbláar í dag.

Heiðursgestir liðanna fylgja þeim út á völl,
Hjá Grindavík/Njarðvík er það Pétur Georg Markan og Vilhjálmur Árnason

Hjá Þrótti er það Indriði Waage
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, gerir þrjár breytingar frá 4-1 tapinu gegn Val í síðasta deildarleik.

Taylor Fox tekur stöðu Stephanie Bukovec í markinu og þá koma Birta Birgisdóttir og Júlía Ruth Thasaphong inn í liðið. Santa Sanija Vuskane og Hayden Colson fara á bekkinn.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, gerir þá tvær breytingar frá 1-1 jafnteflinu gegn Breiðabliki. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði liðsins, og Björg Gunnlaugsdóttir koma inn fyrir Bríeti Fjólu Bjarnadóttur og Þórdísi Nönnu Ágústsdóttur.

Byrjunarlið Grindavík/Njarðvík

14. Taylor Fox (m)
2. Ellie Coffield
5. Natasha Moraa Anasi
6. Birta Birgisdóttir
12. Hannah McLaughlin
17. Sophia Faith Romine
18. Ása Björg Einarsdóttir
19. Elísa Birta Káradóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
26. Júlía Ruth Thasaphong
28. Emma Nicole Phillips


Byrjunarlið Þróttur R.

1. Mollee Swift (m)
3. Mist Funadóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
10. Katherine Amanda Cousins
11. Björg Gunnlaugsdóttir
14. Sierra Marie Lelii
16. María Eva Eyjólfsdóttir
21. Kayla Marie Rollins
23. Sæunn Björnsdóttir
27. Unnur Dóra Bergsdóttir
Fyrir leik
Sameiginleg upphitun fyrir stuðningsmenn
Það verður sannkölluð bikarstemning í Þróttarheimilinu fyrir leik en stuðningsmenn Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttar verða þar með sameiginlega upphitun.

Síðan er stutt yfir á Laugardalsvöll þar sem flautað verður til leiks klukkan 16:00.


Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík með tak á Þrótti
Liðin hafa mæst tvisvar í Bestu deildinni í sumar og þar sem Grindavík/Njarðvík fór með sigur af hólmi í báðum leikjum.

Fyrri leikurinn fór 1-2 á heimavelli Þróttar í maí. Grindavík/Njarðvík vann síðan fjörugan 4-2 sigur þegar liðin mættust á JBÓ-vellinum í júlí.

Grindavík/Njarðvík hefur því skorað sex mörk gegn Þrótti í sumar en úrslitaleikur á Laugardalsvelli er auðvitað allt annað verkefni.



Fyrir leik
Þróttarar vilja bæta fyrir árið 2021
Þetta er í annað sinn sem Þróttur leikur til úrslita í bikarkeppni kvenna.

Fyrra skiptið var árið 2021 þegar Þróttarar mættu Breiðabliki hér á Laugardalsvelli. Blikar unnu þann leik 4-0 og Þróttur bíður því enn eftir sínum fyrsta bikarmeistaratitli.

Gengi Þróttar hefur verið upp og niður í sumar en góð stigasöfnun í lok sumars tryggði þeim í efri hlutann þar sem eitt stig, skilja liðin sem mætast í dag, að. Þróttur situr í fimmta sætinu með 23 stig en Grindavík/Njarðvík í því sjötta með 22 stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leið Þróttar í úrslitin

Þróttarar hafa þurft að hafa fyrir öllum sínum sigrum í keppninni en allir þrír bikarleikir liðsins hafa unnist með eins marks mun.

16-liða úrslit: Þróttur 3-2 Breiðablik
Átta liða úrslit: Þróttur 1-0 Víkingur
Undanúrslit: Þróttur 1-0 ÍBV

Þróttur hefur því slegið út þrjá fyrrverandi bikarmeistara á leið sinni á Laugardalsvöll.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Sögulegur dagur fyrir Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík leikur í dag til úrslita í Mjólkurbikarnum í fyrsta sinn í sögu sameiginlegs liðs félaganna.

Liðið vann sér sæti í Bestu deildinni síðasta haust og er því komið alla leið í bikarúrslit á sínu fyrsta tímabili eftir að hafa unnið sér sæti meðal þeirra bestu.

Þær hafa þá einnig tryggt sér sæti í efri hlutanum í deildinni og halda því sæti sínu í deild þeirra bestu að ári!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leið Grindavíkur/Njarðvíkur í úrslitin

Grindavík/Njarðvík hefur skorað átta mörk og fengið á sig þrjú á leið sinni í úrslitaleikinn.

16-liða úrslit: Valur 2-3 Grindavík/Njarðvík
Átta liða úrslit: Grindavík/Njarðvík 2-1 Stjarnan
Undanúrslit: Fram 0-3 Grindavík/Njarðvík

Nýliðarnir hafa því slegið út Val og Stjörnuna, sem eiga samanlagt 18 bikarmeistaratitla, auk Fram sem þær sigruðu sannfærandi 0-3 á Lambhagavellinum. Hannah McLaughlin kom liðinu yfir í fyrri hálfleik áður en Ellie Coffield og Natasha Moraa Anasi innsigluðu sigurinn eftir hlé.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Nýr bikarmeistari verður krýndur
Hvorugt liðanna hefur áður orðið bikarmeistari kvenna og því er ljóst að nýtt nafn verður skráð á bikarinn í dag.

Átta félög hafa hampað bikarnum frá upphafi en sigurvegari dagsins verður því níunda félagið til þess að verða bikarmeistari.

Leið liðanna í úrslit Mjólkurbikarsins

Grindavík/Njarðvík
16 liða úrslit - Valur - Grindavík/Njarðvík 2-3
8 - liða úrslit - Grindavík/Stjarnan - Stjarnan 2-1
Undanúrslit - Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3

Þróttur R.
16 liða úrslit - Þróttur R. - Breiðablik 3-2
8 liða úrslit -Þróttur R. - Víkingur R. 1-0
Undanúrslit - Þróttur R. - ÍBV 1-0

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins!
Á flautunni í dag verður Þórður Þorsteinn Þórðarson og honum til halds og trausts verða Ragnar Þór Bender og Antoníus Bjarki Halldórsson aðstoðardómarar.

Varadómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson og varaaðstoðardómari er Tijana Krstic.

Þá er eftirlitsmaður dómara í dag Sigurður Hannesson og eftirlitmaður leiks er Bryndís Sigurðardóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gleðileg BIKARÚRSLIT!
Kæru lesendur, verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Laugardalsvellinum þar sem Grindavík/Njarðvík og Þróttur R. eigast við í úrslitum Mjólkurbikarsins

Leikurinn hefst á slaginu 16:00!

Mynd: KSÍ
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.