SKÝRSLAN: Vesturbæjarstórveldið aftur í Bestu
Hvað réði úrslitum?
KR sýndu mikla baráttu, ákefð og vilja til að vinna leikinn. Þær voru nánast alltaf í sókn og sigurinn því verðskuldaður. Keflavík sköpuðu sér varla færi og voru mjög varnarsinnaðar í dag.
Bestu leikmenn
1. Kyla Elizabeth Burns
Hún þurfti ekki að gera mikið í dag en þessi stórkostlega tækling bjargaði KR. Annars varði hún þau fáu skot sem fóru á markið og náði nokkrum sinnum að kýla frá eftir horn.
2. Makayla Soll
Fyrirliðinn mögnuð í dag. Hún var potturinn og pannan á miðjunni og skapaði oft frábærar stöður fyrir KR.
Atvikið
Annars vegar þessi fullkomna tækling hjá Kylu. Ariela var við það að sleppa í gegn en Kyla æddi út úr markinu og stoppaði hana. Hins vegar sigurmarkið sem Valgerður skoraði, enda skaut það KR upp í Bestu deild kvenna.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að KR spila í Bestu deild kvenna á næsta tímabili. Keflavík enda tímabilið í 8. sæti með 21 stig.
Vondur dagur
Það var enginn sem átti vondan dag í dag.
Dómarinn - 5
Jakob var ekki upp á sitt besta í dag. Nokkrir skrýtnir dómar hjá honum og línan furðuleg.



