Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
10gráður og logn
Selfoss
Selfoss
2 - 1
KFG
KFG
Brynjar Bergsson 13'1 - 0Brynjar Bergsson 31'2 - 0Filip Ivan Sabatti 42'2 - 144' Franz Bergmann Heimisson
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 730
Myndir: Hrefna Morthens

SKÝRSLAN: Martraðar lok á fyrri hálfleik beit ekki á Selfyssinga

Hvað réði úrslitum?

Frammistaða Selfossar og bara meiri vilji. Bæði mörkin eru flott og svo eru menn að henda sér fyrir allt og alla í seinni hálfleiks lág blokk.

Bestu leikmenn

1. Brynjar Bergsson

Skorar bæði mörk Selfoss og gerir virkilega vel í báðum, fullkominn staðsetning og þægilega kláraðir boltar. Auðveldlega maður leiksins.

2. Rökkvi Rafn Agnesarson

Kemur í markið og fær strax mark á sig uppúr góðri aukaspyrnu. En stendur síðan vaktina vel í seinni hálfleik. Erfiðar aðstæður en hann "deliverar" og skilar nauðsynlegu verkefni vel.

Atvikið

Rauða spjaldið og markið beint frá því. Það hefur eflaust alveg farið um marga Selfyssinga. Þetta er akkúrat endir á hálfleik sem maður vill ekki sjá. Á öðrum degi, stað og stund. Fer svona hlutur algjörlega með leikinn, en hrós á Selfoss sem létu þetta ekki skemma neitt fyrir sér.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss mun leika í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Fara upp á 45stigum sem er tveimur minna en Haukar sem unnu deildina. KFG hinsvegar fellur í 3.deild. Liðið endaði með 22stig sem er einu minna en Þróttur Vogum sem héldu sér naumlega uppi.

Vondur dagur

Sóknarleikur KFG fær þetta í dag. Á móti er ég ekkert að taka af varnarleik Selfoss liðsins. Það voru hinsvegar lítil gæði í sóknar aðgerðum KFG sem spiluðu seinni hálfleik einum manni fleirri. Illa nýtt tækifæri hjá þeim í dag og það skilar falli fyrir félagið.

Dómarinn - 7

Það er enginn að mótmæla þessu rauða spjaldi á Sabatti í markinu. Twana bara með fínustu tök á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.