Fotbolti.net
Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
5. deild karla - Úrslit
VÍS völlurinn
7° hiti, smá gola og sólskin. Haustið er fallegur tími.
Hamrarnir
Hamrarnir
2 - 0
Skallagrímur
Skallagrímur
Tómas Ernir Guðmundsson 19'1 - 0Viðar Guðbjörn Jóhannsson 24'2 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: Ekki vitað. Sennilega milljón.

SKÝRSLAN: Gulldrengir Akureyrar tóku 5. deildina

Hvað réði úrslitum?

Hamrarnir áttu sigurinn heilt yfir skilið. Pressuðu Skallagrímsmenn stíft í fyrri hálfleik og gerðu þar tvö mörk með skömmu millibili. Þegar líða tók á leikinn ógnuðu þó Borgnesingar nokkrum sinnum og Hamrarnir geta þakkað Ævari Breka í markinu fyrir það að hafa haldið hreinu.

Bestu leikmenn

1. Tómas Veigar Eiríksson (Hamrarnir)

Stýrði leiknum af mikilli kostgæfni inná miðri miðjunni. Var öruggur í öllum sínum aðgerðum, gerði hlutina einfalt og braut upp sóknaraðgerðir Skallagríms í tíma og ótíma. Glæsilegur.

2. Ævar Breki Ottesen Ævarsson (Hamrarnir)

Varði nokkrum sinnum hetjulega seint í leiknum. Engar smá vörslur og enginn smá rammi á þessum bráðefnilega markmanni. Mun reynast Hömrunum afar vel á næsta leiktímabili.

Atvikið

Mark Viðars var stórglæsilegt. Mark sem að David Beckham hefði verið stoltur af. Bíðum eftir Netflix heimildarmyndinni um Vidda.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið spila í 4. deildinni að ári og geta því fagnað glimrandi góðri uppskeru nú þegar sumarið er búið. Bæði lið eru virkilega vel að því komin að fara upp og tel ég ekki að halli á nokkurt lið þegar ég segi að tvö bestu lið 5. deildarinnar séu á leið upp.

Vondur dagur

Við hendum engum undir rútuna í dag.

Dómarinn - 8

Var flottur í dag og ekkert útá Sigurð að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.