Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla - Neðri hluti
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
0 - 0
Valur
Valur
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Fyrir leik
Eyjamenn ekki unnið síðan Valur kom síðast í heimsókn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við þurfum að fara safna stigum, getum ekki bara horft á KA og Þór. Ennþá fjórir leikir eftir, tólf stig og ég held að þetta verður slagur til síðustu umferðar," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir tap gegn Stjörnunni á dögunum.

ÍBV hefur mætt Stjörnunni í Garðabæ í síðustu tveimur leikjum, gerði fyrst 2-2 jafntefli í Miðgarði og tapaði svo 2-0 á Samsungvellinum.

ÍBV er án sigurs í síðustu níu leikjum, liðið vann síðast þann 4. júlí en það var einmitt heimaleikurinn gegn Val. Það eru því 78 dagar liðnir síðan ÍBV vann síðast leik.

Eyjamenn eru í neðsta sæti, fimm stigum frá öruggu sæti, og þurfa nauðsynlega á öllum stigunum þremur að halda í dag.
Fyrir leik
Valur siglir sjóinn lygna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsmenn sigla lygnan sjó. Það var mikið áfall fyrir félagið að enda í neðri hlutanum en liðið vann 4-1 sigur gegn Þór Akureyri í fyrsta leik sínum eftir skiptingu.

„Á þessari næstu viku og næsta mánuði held ég að það sé alveg ljóst að við erum að keyra á frekar fáliðuðum hópi. Jafnvel í dag sá maður leikmenn inni á vellinum sem eru ekki hundrað prósent. En ég held að þetta sýni karakter hjá strákunum. Sumir hafa dregið hann í efa, en þeir hafa aftur látið verkin tala inni á vellinum, eins og þeir hafa gert þessar síðustu vikur," sagði Chris Brazell, þjálfari Vals eftir sigurinn gegn Þór.

Brazell stýrir Val til bráðabirgða en Halldór Árnason tekur við liðinu eftir tímabilið.
Fyrir leik
Fyrri leikir á tímabilinu
ÍBV vann Val á Goslokahátíð fyrr í sumar. Alex Freyr Hilmarsson skoraði eina markið. Þegar liðin mættust á Hlíðarenda voru það hinsvegar þeir rauðu sem fögnuðu sigri.



Fyrir leik
ÞÞÞ er flautuleikari dagsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er öflugt dómarateymi á leiknum hér í Vestmannaeyjum í dag. Þórður Þorsteinsson Þórðarson dæmir leikinn. Aðstoðardómarar eru Antoníus Bjarki Halldórsson og Guðni Freyr Ingvason. Fjórði dómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson.
Fyrir leik
Síðustu leikir fyrir landsleikjagluggann ljúfa
Mynd: ÍBV

Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)

Það eru fjórir leikir í Bestu deildinni í dag, áður en kemur að landsleikjaglugganum langa sem spannar þrjár vikur að þessu sinni! Hér fylgjumst við með leik ÍBV og Vals á Hásteinsvelli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.