J. Lerma
Jefferson Lerma (Crystal Palace) fær gult spjald fyrir gróft brot.Yéremy Pino
Yéremy Pino (Crystal Palace) fær gult spjald fyrir gróft brot.A. Wharton
Adam Wharton (Crystal Palace) fær gult spjald fyrir gróft brot.A. Tanaka
Ao Tanaka (Leeds United) fær gult spjald fyrir gróft brot.J. Bogle
Jayden Bogle (Leeds United) fær gult spjald fyrir gróft brot.Umræða um leikinn í Hjammi.net
Daniel Farke, stjóri Leeds, gerir engar breytingar á liðinu sem vann 4-1 sigur á Newcastle í síðustu umferð, en mótherjinn í dag er Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace.
Pierre Sage gerir á meðan tvær breytingar á liði Palace. Takehiro Tomiyasu og Jaydee Canvot koma inn fyrir Axel Disasi og Honest Ahanor.
Leeds: Trafford, Justin, Elvedi, Muharemovic, Bogle, Stach, Ampadu, Tanaka, Gudmundsson, Calvert-Lewin, Okafor
Crystal Palace: Benítez, Canvot, Richards, Tomiyasu, Khalaili, Timber, Wharton, Mitchell, Kamada, Yéremy Pino, Larsen
Leeds vann stórsigur á Newcastle í síðustu umferðog hefur liðið ekki byrjað ensku úrvalsdeildina betur í tæpan aldarfjórðung.
Leeds er með átta stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar og hefur liðið í raun verið meðal bestu liða deildarinnar eftir að þýski stjórinn Daniel Farke breytti um leikkerfi undir lok síðasta árs.
Mikill hiti var á Farke snemma síðasta tímabils og voru stuðningsmenn liðsins margir hverjir farnir að kalla eftir brottrekstur Þjóðverjans.
Hann breytti úr fjögurra manna varnarlínu í þriggja manna í hálfleik gegn Manchester City 29. nóvember. Leeds vann þar upp tveggja marka forskot en City skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma.
Breytingarnar lofuðu góðu og vann Leeds sigur á Chelsea í næsta leik þar á eftir. Síðan þá hefur Leeds tapað fimm af 29 deildarleikjum.
Sá árangur myndi skila liðinu fimmta sæti deildarinnar á þeim tíma.

Sunnudagur:
13:00 Bournemouth - Liverpool
13:00 Leeds - Crystal Palace
13:00 Man City - Sunderland
15:30 Fulham - Man Utd



