Fotbolti.net
Besta deildin
Sverrir Örn Einarsson
Besta karla - Efri hluti
HS Orku völlurinn
Nánast logn í Keflavík 10 fingur upp til Guðs
Keflavík
Keflavík
2 - 2
Fram
Fram
Stefan Alexander Ljubicic 48'1 - 01 - 152' Freyr Sigurðsson1 - 259' Freyr SigurðssonElvis Okello Bwomono 66'2 - 2
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 390

SKÝRSLAN: Köflött í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Markmenn beggja liða skiluðu sínu í kaflaskiptum leik. Bæði Viktor og Ásgeir björguðu úr hættulegum færum hvor fyrir sitt lið og urðu öðrum fremur þess valdandi að liðin skildu jöfn í dag. Sóknarlega voru bæði lið að komast í álitlegar stöður en inn vildi boltinn ekki oftar fyrir þau og því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Viktor Freyr Sigurðsson

Frábær á milli stanga marksins og varði úr þó nokkrum dauðafærum. Gat lítið gert við mörkum Keflvíkinga í leiknum og var heilt yfir mjög öruggur í sínum aðgerðum.

2. Freyr Sigurðsson

Tveggja marka maður í dag og átti þokkalegasta dag á vellinum. En mörkin tvö fleyta honum í þennan reit.

Atvikið

Fyrra mark Fram var í skrautlegra lagi, darraðardans eins og hann gerist bestur sem endar með klaufalegu marki frá sjónarhóli Keflvíkinga.

Hvað þýða úrslitin?

Fram minnkar bilið í KR í 2.sæti niður í 1 stig en liðin mætast í næstu umferð sem verður leikin á næstu öld að manni finnst. Keflavík situr í 6.sætinu og siglir lygnan sjó.

Vondur dagur

Föst leik atriði Fram.... Sextán hornspyrnur og ég man ekki til þess að þeir hafi átt fyrstu snertingu á boltann eftir neina þeirra. Með öfluga spyrnumenn og sterka menn í teignum verða þeir einfaldlega að gera betur. Alls ekki gott.

Dómarinn - 7

Heilt yfir bara fínt, ég set samt spurningamerki við það hvort að Frans Elvarsson hafi mögulega átt að fá rautt spjald í fyrri hálfleik þegar hann virtist sparka frá sér í baráttu um boltann við Kennie Chopart. Leit allavega ekki vel út við fyrstu sýn. En það er ekki hægt að ræða dómara leiksins án þess að minnast á AD 2 Þráinn Jón Elmarsson. Pilturinn er 17 ára gamall, hóf snemma að dæma fyrir KSÍ og er mættur á hliðarlínuna í Bestu deildinni 17 ára gamall. Fróðari menn en ég verð að svara því en hann hlýtur hreinlega að vera sá yngsti til að starfa í teymi í efstu deild á Íslandi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.