Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla - Neðri hluti
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
1 - 1
Valur
Valur
Mattias Edeland 80'1 - 01 - 192' Kristófer Dagur Arnarsson
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson

SKÝRSLAN: Valsmenn stálu stigi í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

Færanýting ÍBV var ekki góð í þessum leik. Einbeitingarleysi í lok leiks tapaði einnig tveimur dýrmætum stigum fyrir ÍBV í fallbaráttunni.

Bestu leikmenn

1. Mathias Edeland

Var nokkuð solid í vörninni mest allan leikinn og skorar stórgott mark sem kemur ÍBV yfir.

2. Kristófer Dagur Arnarsson

Skorar sitt fyrsta mark í Bestu deildinni og bjargar stigi fyrir Valsmenn á lokamínútunni.

Atvikið

Víti eða ekki víti og gult spjald eða ekki gult spjald? Róbert Elís fellur inn í teig Valsmanna eftir samstuð. Einhverjir vilja meina að þetta hefði átt að vera víti og gult spjald fyrir dýfu frekar strangur dómur. Svo má auðvitað líka nefna færin sem Róbert Elís og félagar fóru illa með.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV er áfram á botninum og eru með 19 stig. Það stefnir allt í þriggja liða baráttu um fallið mlli KA, Þórs og ÍBV. ÍBV á eftir að fara tvisvar norður og mæta þessum liðum. Valsmenn sigla lygnan sjó á toppnum í neðri hlutanum með 31 stig.

Vondur dagur

Róbert Elís Hlynsson átti ekki góðan dag fyrir framan markið. Duglegur að koma sér í færi að sjálfsögðu en það þarf að klára þau.

Dómarinn - 7

Einn okkar besti dómari ÞÞÞ. Átti fínan leik, spurning með vítaspyrnuna og gula spjaldið en annars flott frammistaða.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.