Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta karla - Neðri hluti
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Fyrir leik
Bæði lið gera eina breytingu
FH gerir eina breytingu frá sigurleiknum gegn KA. Erlingur Agnarsson er ekki með í dag og kemur Kristján Flóki Finnbogason inn í byrjunarliðið.

Stjarnan gerir líka eina breytingu þar sem Ari Leifsson kemur inn í liðið fyrir Guðmund Kristjánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Byrjunarlið Stjörnunnar
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
7. Örvar Eggertsson
10. Daníel Finns Matthíasson
11. Birnir Snær Ingason
14. Bjarki Hauksson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Ari Leifsson
22. Emil Atlason (f)
23. Benedikt V. Warén
29. Alex Þór Hauksson
Fyrir leik
Byrjunarlið FH
1. Jökull Andrésson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
5. Oliver Stefánsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Kristján Flóki Finnbogason
14. Adolf Daði Birgisson
17. Jóhannes Kristinn Bjarnason
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
32. Gils Gíslason
37. Baldur Kári Helgason
Fyrir leik
Fyrri leikir þessara liða
Þessi lið mættust fyrst í annarri umferð í Garðabænum þar sem fimm mörk voru skoruð í 3-2 sigri Stjörnunnar. Birnir Snær Ingason kom Stjörnunni yfir en FH svaraði með tveimur mörkum, Kjartan Kári Halldórsson jafnaði fyrir hlé og Tómas Orri Róbertsson kom þeim yfir. En Guðmundur Baldvin Nökkvason og Andri Rúnar Bjarnason svöruðu fyrir Stjörnuna.

Í Kaplakrika var niðurstaðan 2-2 jafntefli. Adolf Daði Birgisson kom FH yfir gegn sínum gömlu félögum en Sindri Þór Ingimarsson og Örvar Eggertsson komu Stjörnumönnum yfir. Ísak Óli Ólafsson jafnaði hins vegar metin fyrir FH og þar við sat.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fáum við annan markaleik hér í dag?
Fyrir leik
Rosalegur gærdagur
Það var rosalegur gærdagur í Bestu deildinni þar sem Víkingur innsiglaði meistaratitilinn á Meistaravöllum og KA fór illa með Þór. Fjallað var um leikina í Innkastinu og þá er einnig hægt að sjá það helsta úr þeim hér að neðan.


Fyrir leik
Spámaðurinn
Hinrik Harðarson, leikmaður Egersund í Noregi, spáir í leikina í þessari annari umferð eftir skiptingu. Um leik FH og Stjörnunnar sagði hann:

FH 2 - 0 Stjarnan
Stjarnan hefur átt í erfiðleikum í Krikanum eftir leikinn 2014. 2-0 fyrir FH, hreint lak hjá frænda í markinu. Oliver skorar fyrra mark FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er aðaldómari í Kaplakrika í dag. Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic eru aðstoðardómarar. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er fjórði dómari og Hjalti Þór Halldórsson er eftirlitsmaður KSÍ í þessum leik.
Fyrir leik
Stjarnan
Þetta hefur verið skrautlegt tímabil fyrir Stjörnuna. Það voru miklar væntingar áður en tímabilið hófst, væntingar um titilbaráttu en allt annað hefur komið á daginn. Stjarnan hefur rekið tvo þjálfara í sumar og er fyrir leik dagsins í efsta sæti neðri hlutans.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Stjörnumenn, sem eru með þrjá þjálfara þessa stundina, stefna eflaust á að klára deildina í efsta sæti neðri hlutans - þeir eru með einu stigi meira en Valur - en sama hvernig fer þá verður þetta vonbrigðasumar fyrir Garðbæinga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH
Eftir erfitt gengi framan af tímabili, þá hefur FH harkað inn fleiri stig eftir því sem liðið hefur á tímabilið. Varnarleikur liðsins hefur orðið sterkari og Jökull Andrésson hefur átt mjög gott tímabil í markinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


FH er fyrir þennan leik þremur stigum frá fallsæti en með sigri í dag getur liðið farið langleiðina með að halda sér uppi í Bestu deildinni. Tapi FH hins vegar í dag og ÍBV vinnur Val á sama tíma, þá opnast fallbaráttan enn frekar upp á gátt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góðan daginn!
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik FH og Stjörnunnar í Bestu deild karla.

Flautað verður til leiks í Kaplakrika klukkan 16:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

sunnudagur 20. september

Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.